Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hrifin af funkisstíl og húsum kenndum við Sigvalda Thordarson

Þóra Birg­is­dóttir er fast­eigna­sali vik­unnar.

Hrifin af funkisstíl og húsum kenndum við Sigvalda Thordarson

Þóra Birg­is­dóttir er lög­gildur fast­eigna­sali og fram­kvæmda­stjóri Borgar fast­eigna­sölu. Hún er gift Ingi­mundi Árnasyni og á 3 börn, Birgi Viðar 26 ára, Ingu Rós 15 ára og Árna Þór 14 ára. Fjöl­skyldan býr í nota­legu og fjöl­skyldu­vænu húsi í Suð­ur­hlíðum Kópavogs við Hlíð­ar­hjalla 72.

Hvað heillar þig mest við starfið? „Að vinna með fólki og í þeim miklu sam­skiptum sem starfið krefst á sama tíma og tölur og samn­ingar leika stórt hlut­verk – þannig hef ég náð að sam­eina áhuga­mál og menntun en ég er menntuð í við­skipta­fræði og er lög­gildur fast­eigna­sali.“

Getur þú lýst hefð­bundnum vinnu­degi hjá þér? „Hann getur orðið æði langur – ég er B-mann­eskja og reyni að kom­ast í rækt­ina sem fyrst að morgni – ann­ars fer ég ekki þann dag­inn. Í vinn­unni er oft mik­ill erill og áreiti og margt sem þarf að bregð­ast við án fyr­ir­vara þannig að eng­inn dagur er eins, flestir dagar enda þó með sýn­ingum á fast­eignum milli 16.30-19.00 sem einnig er algengt um helgar.“

Hvað er það sem þér finnst gera hús að heim­ili? „Fólkið sem þar býr en auð­vitað er inn­búið og and­inn sem þar ríkir það sem gerir gæfumun­inn. Við fjöl­skyldan fluttum fimm sinnum á fimm árum hér fyrir nokkrum árum, en við áttum draum um að byggja okkar eigið hús sem ekki varð af því við fengum ekki lóð­ina sem okkur lang­aði í. Þá fann maður að það eina sem skipti máli var að hafa fjöl­skyld­una og hlut­ina sína í kringum sig og það er heima hverju sinni.“

„Heitur pottur er á óska­list­anum og helst heilt garð­hús utan um hann.“

Getur þú lýst þínum stíl? „Hann er örugg­lega frekar sund­ur­leitur, hluta til gam­al­dags og hlý­legur en á sama tíma reyni ég að vera nýtísku­leg og hafa allt í röð og reglu að ósk dótt­ur­innar en það er bara ekki alveg ég.“

Áttu þinn upp­á­halds­arki­tekt? „Hér heima hef ég verið hrifin af húsum sem eru byggð í funkis­stíl og hús kennd við Sigvalda Thordar­son, sem alls ekki var arki­tekt heldur verk­fræð­ingur, hafa mjög sterka skírskotun hjá mér.“

Áttu þinn upp­á­halds­hönnuð? „Anna Þórunn vin­kona mín er vöru­hönn­uður sem ég hef miklar mætur á enda hlut­irnir hennar alveg ein­stakir.“

„Heitur pottur er á óska­list­anum og helst heilt garð­hús utan um hann,“ segir Þóra, spurð hvort það sé eitt­hvað sem hana langi til að eign­ast í garð­inn.

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að eign­ast en ekki eign­ast hingað til? „Eggið eftir Arne Jacobsen, hlýt að finna að minnsta kosti eitt slíkt í stof­unni hjá mér fljót­lega.“

Upp­á­halds­lit­ur­inn þinn? „Blár litur ratar alltaf inn á heim­ilið bæði í hlutum, lista­verkum og vefn­aði.“

Hvar líður þér best? „Heima hjá mér í kósí­heitum með fjöl­skyld­unni.“

Nú er sum­arið komið og margir huga að garð­inum, er eitt­hvað sem þig langar að eign­ast í garð­inn? „Heitur pottur er á óska­list­anum og helst heilt garð­hús utan um hann.“

Svalasti veit­inga­stað­ur­inn á Íslandi í dag?  „Apótekið er í upp­á­haldi hjá mér og mínum.“

Að lifa líf­inu lif­andi er að … taka það ekki of alvar­lega – njóta hverrar stundar eins og hún kemur fyrir – hvort sem er í vinnu eða með fjöl­skyld­unni úti að leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur