Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Veruleiki barna annar en áður

Berglind Brynj­ólfs­dóttir, sál­fræð­ingur hjá Sál­stof­unni, veit meira um kvíða barna og ung­menna en flestir lands­menn.

Veruleiki barna annar en áður

Starf Berg­lindar felst fyrst og fremst í grein­ingu og með­ferð á fjöl­breyttum vanda og frá­vikum í hegðun og líðan barna en einnig í ráð­gjöf til for­eldra og fag­að­ila. Hún segir meiri­hluta vinnu sinnar snú­ast um kvíða í ein­hverri mynd, þar sem kvíði barna fari vax­andi og snerti flest mál með ein­hverjum hætti. Berglind hefur ára­langa reynslu af ráð­gjöf og hefur haldið fjöl­mörg vel sótt nám­skeið og fyr­ir­lestra tengda mál­efnum barna og ung­linga. Hún segir nám­skeiðin og kvíða­vinn­una almennt fyrst og fremst ganga út á fræðslu. „Að vita hvað maður er að glíma við og af hverju, er jafn­mik­il­vægt og að vita hvernig er svo hægt að takast á við vand­ann. Þá er líka mik­il­vægt fyrir for­eldra og börn að vita hvað þarf að forð­ast að gera og hvað ekki.Ég held að flestir sál­fræð­ingar sem hafa haldið nám­skeið eða fyr­ir­lestur um kvíða séu með fullt út úr dyrum.  Maður á alltaf von á að koma að hálf­tómu húsi ein­hvern tíma og að fólk sé búið að heyra nóg um kvíða barna en það virð­ist að minnsta kosti ekki vera komið að því ennþá.“

Kvíði er eðlileg tilfinning 

Berglind segir kvíða hafa margar og ólíkar birt­ing­ar­myndir. „Helstu ein­kenni hans eru ýmis konar áhyggjur, feimni gagn­vart fólki og /eða aðstæðum, hræðsla gagn­vart ýmiss konar aðstæðum og þrá­látar hugs­anir. Kvíða fylgja gjarnan ýmis lík­am­leg ein­kenni, s.s. hraður hjart­sláttur, maga­verkur eða hröð öndun. Kvíðin börn og ung­menni forð­ast gjarnan aðstæður sem valda þeim kvíða og ef þau þurfa að fara í slíkar aðstæður reyna þau yfir­leitt að kom­ast úr þeim eins fljótt og þau geta og líður þá oft eins og þau hafi rétt sloppið við eitt­hvað sem er upp­lifað mjög hættu­legt. Þannig getur mynd­ast víta­hringur sem vindur oft upp á sig ef ekk­ert er að gert.“

Kvíði er í grunn­inn eðli­leg til­finn­ing sem allir finna fyrir ein­hvern tíma og er okkur nauð­syn­legur. Hann verður hins vegar að vanda þegar hann er far­inn að birt­ast of oft, við aðstæður sem eru ekki hættu­legar og er far­inn að trufla barn/ung­menni í sínu dag­lega lífi og far­inn að koma í veg fyrir að það taki þátt og/eða njóti þess sem það tekur sér fyrir hendur.“

Veruleiki barna annar en áður

Kvíði er nokkuð algengur að sögn Berg­lindar, en hún segir mörg börn glíma við ein­hver ein­kenni kvíða í lengri eða styttri tíma. „Eins og ég segi, þá kemur ein­hvers konar kvíði inn í meiri­hluta mála sem við veitum með­ferð við á stofu. Stundum erum við fljót að laga það sem truflar, stundum tekur það lengri tíma. Veru­leiki barna og ung­linga er annar en hann var og felur í sér aðrar áskor­anir og verk­efni en þegar við vorum ung. Umræða um til­finn­ingar og líðan er án nokk­urs vafa opn­ari en hún var og algeng­ara að fólk ræði almennt þau mál við börnin sín. Á hinn bóg­inn er auð­velt að falla í þá gryfju að vilja að börn­unum okkar líði aldrei illa, sem er auð­vitað óraun­hæf krafa og getur leitt til þess að venju­leg líðan og við­brögð eru orðin að vanda í huga for­eldra.“

Mikilvægast að afla sér upplýsinga

Aðspurð um ráð fyrir for­eldra sem grunar að barnið sitt gæti þjáðst af kvíða, segir Berglind mik­il­væg­ast að afla sér upp­lýs­inga og fræðslu. „Algeng­ustu hindr­anir for­eldra sem ég rekst á eru tvenns konar; að átta sig ekki á hvar/hvenær kvíði er far­inn að trufla og leyfa barni að „sleppa“ við aðstæður sem geta undið upp á sig. Hins vegar að ætla alls ekki að leyfa kvíða að stjórna og krefj­ast því of mik­ils af barn­inu sem getur líka við­haldið vand­anum og gert hlut­ina verri. Það er því mik­il­vægt að afla sér upp­lýs­inga um eðli kvíða og fá ráð hjá fag­fólki ef ein­föld inn­grip duga ekki til“ segir Berglind að lokum.

Lesið umfjöll­un­ina í heild sinni í 15.tölu­blaði Vikunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur