Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Harður kjaravetur

Útlit er fyrir að það stefni í harðan vetur í kjara­málum.

Harður kjaravetur

Síðustu miss­eri hefur andað köldu milli for­ystu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, Samtaka atvinnu­lífs­ins og stjórn­valda, ef marka má orð­ræð­una sem birst hefur í fjöl­miðlum og þá stöðu sem hreyf­ingin hefur tekið. Hvernig sem því líður er ljóst að nú í lok des­em­ber renna út 82 kjara­samn­ingar og í mars 2019 losna 152 samn­ingar. Um þetta þarf að semja. Á sama tíma er verð­bólga, sem hefur verið nokkuð stöðug, að aukast – komin vel yfir 3% og hækk­aði tals­vert í des­em­ber.

Hin nýja for­ysta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar virð­ist standa þétt saman, þrátt fyrir að Efling, VR og Verka­lýðs­fé­lag Akraness hafi valið að vera ekki í sam­floti með Starfs­greina­sam­band­inu. Fyrsti form­legi fundur hefst hjá rík­is­sátta­semj­ara í dag á milli þeirra aðila og Samtaka atvinnu­lífs­ins en í gær kom fram að það væri ófrá­víkj­an­leg krafa félag­anna að samn­ingar verði aft­ur­virkir þ.e. að launa­hækk­anir taki gildi frá og með þeirri stund sem gömlu samn­ingar losn­uðu. Það hefur ekki verið venjan hingað til en getur skipt millj­örðum.

Í pistli fyrir nokkrum dögum sagði Forseti ASÍ að hreyf­ingin sé sam­mála um meg­in­mark­mið þó að greint sé um aðferðir. Verka­lýðs­hreyf­ingin krefst alvöru aðgerða í þágu launa­fólks og sagði for­seti ASÍ fyrir nokkum dögum að vet­ur­inn ráð­ist af því hvort stjórn­völd leggi fram aðgerðir svo um munar í skatta- og hús­næð­is­málum. Meðal ann­ars sé gerð krafa um að breyt­ingar verði gerðar á skatt­kerf­inu til að létta byrðar lág­launa­fólks.

Þessar áherslur for­seta ASÍ fara að ein­hverju leyti saman við áherslur rík­is­stjórn­ar­innar þó aug­ljóst sé að aðilar deili um hvað sé nóg og hvað séu aðgerðir sem um munar. Í fjár­lögum segir að áherslur kjara­við­ræðna muni snú­ast að nokkru leyti um aðra þætti en launa­lið samn­inga. Þess vegna var lögð til hækkun per­sónu­af­sláttar um 1% umfram þá hækkun sem á sér stað með vísi­tölu neyslu­verðs og „veru­leg“ hækkun barna­bóta – 16% hækkun milli 2018-2019.

Raunar má deila um hvort að 16% hækkun sé veru­leg hækkun í ljósi þess að útgjöld rík­is­ins vegna barna­bóta og einkum vaxta­bóta hafa ekki auk­ist í nokkur ár. Fjöldi fjöl­skyldna hafa raunar dottið út úr þeim tekju­jöfn­un­ar­kerfum. Því má snúa þessu við og segja að 16% hækkun barna­bóta sé leið­rétt­ing.

Takmarkað svigrúm til launahækkana

Í fjár­lögum kemur jafn­framt fram að svig­rúm til launa­hækk­ana sé tak­markað enda hafi „launa­þróun und­an­far­inna ára verið hröð og hækk­anir launa komnar að mörkum þess sem við­ráð­an­legt er talið.“ Það kann að vera að launa­þróun hafi verið hröð sem og hækkun launa en spurn­ingin sem blasir auð­vitað við er: laun hvaða hópa? Meðaltal er fínt mæli­tæki en þessar hækk­anir verður að skoða út frá stöðu hvers hóps. Tölur hafa verið lagðar fram sem sýna að lág­launa­hópar hafa setið eftir í launa­hækk­unum og skatta­lækk­unum enda leiða flatar skatta­lækk­anir alltaf til mestu launa­hækk­unar fyrir þá sem mestar tekjur hafa.

Stærsta póli­tíska verk­efni næstu vikna verða þessar kjara­við­ræður. Það stefnir í störu­keppni. Það hjálpar ekki að teikn eru á lofti um ein­hvern óstöð­ug­leika í íslensku efna­hags­kerfi, sem bitnar á öllum, en ekki síst lág­launa­hópum. Verð­bólgan er að stíga og íslenska krónan hefur verið að taka dýfur und­an­farið, en hún virð­ist aðeins geta boðið upp á ein­hvern stöð­ug­leika með miklum inn­gripum.

Í þess­ari samn­inga­lotu virð­ist ekki áhersla lögð á að ræða áhrif íslensku krón­unnar. En staða gjald­mið­ils þess­arar þjóðar skiptir gríð­ar­lega miklu máli fyrir almenn­ing – sem breyta í kjara­við­ræðum í þessu lok­aða hringrás­ar­hag­kerfi – ekki síður en skatt­kerfið og aðgerðir í hús­næð­is­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ