Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Finna hlerunarbúnað í fundaherbergjum

Fyr­ir­tæki og stofn­anir eru í auknum mæli farin að láta leita að hler­un­ar­bún­aði í húsa­kynnum sínum. Reglu­lega finn­ast tæki sem ætluð eru til slíkrar notk­unar. Fyr­ir­spurnum fjölg­aði eftir að Klaust­urs­málið kom upp.

Finna hlerunarbúnað í fundaherbergjum
|

„Mörg af þeim fyr­ir­tækjum sem við erum að þjón­usta eru mjög með­vituð um örygg­is­mál og meta það oft sjálf ef auka þarf varnir,“ segir Theodór Carl Stein­þórs­son, deild­ar­stjóri þró­unar og sér­lausna hjá Securitas í sam­tali við Mannlíf og bætir við að Securitas bjóði upp á ráð­gjöf og þjálfun starfs­fólks til að minnka líkur á að við­kvæm fund­ar­efni séu tekin upp eða leki út.

Theodór Carl Stein­þórs­son.

Theodór segir að fyr­ir­spurnum eftir ákveð­inni þjón­ustu hafi fjölgað en það snýr að því sem hann kallar að „svípa“ eftir hler­un­ar­bún­aði og hreinsa út úr skrif­stofu- og fund­ar­rými.

„Við erum með sér­stakan vél­búnað sem skannar veggi og loft í fund­ar­her­berjum og á skrif­stofum og nemur allt sem er í loft­inu, hljóð­bylgjur, raf­bylgjur og það sem kemur af þráð­lausu neti. Jafnvel ef það er fal­inn hljóð­nemi eða mynda­vél inni í veggjum,“ útskýrir hann og bætir við að algengt sé að lög­fræði­stofur og skrif­stofur með fund­ar­her­bergi leiti eftir þess­ari þjón­ustu og það komi reglu­lega fyrir að hler­un­ar­bún­aður upp­götv­ist við slíka leit

„Við finnum fyrir því að fyr­ir­spurnum hefur fjölgað í kjöl­far Klaust­urs­máls­ins og höfum fengið pant­anir í þessa þjón­ustu í beinu fram­haldi af því.“

Þegar þjón­ustu af þessu tagi er lokið skilar Securitas af sér skýrslu að sögn Theodórs og ver­kaup­andi metur það sjálfur hvað hann vill gera í kjöl­farið ef hler­un­ar­bún­aður finnst; hvort hann vilji fara með málið til lög­reglu.

Það sem við höfum verið að finna er hler­un­ar­bún­aður uppi í fölskum loftum og inni í „hleðslu­dokkum“ fyrir tölvur og öðru laus­legu inni í fund­ar­her­bergjum.

„Það er ekki okkar að ákveða með fram­haldið í slíkum málum,“ segir hann og tekur fram að við slíkar leitir hafi í nokkrum til­fellum fund­ist merki um greini­legan ásetn­ing um að hlera. „Það sem við höfum verið að finna er hler­un­ar­bún­aður uppi í fölskum loftum og inni í „hleðslu­dokkum“ fyrir tölvur og öðru laus­legu inni í fund­ar­her­bergjum eða dæmi um að átt hafi verið við dokk­una á ein­hvern hátt.“

Einnig komi upp til­felli þar sem ekki er um ásetn­ing að ræða. Til dæmis ef starfs­menn hafa verið að vinna með búnað með bluetooth-teng­ingum og gleymt að  slökkva á honum.

Bún­að­ur­inn sem not­aður er við hler­un­ar­leitir er afar nákvæmur að hans sögn. „Þó að þú takir sím­kort úr síma, boraðir lítið gat í gips­vegg, settir kortið inn, spartl­aðir og mál­aðir yfir, þá myndi tækið samt nema það,“ útskýrir hann og tekur fram að mögu­legt sé að kaupa alls kyns hler­un­ar­búnað á eBay, m.a. tæki sem getur skotið geisla inn um rúðu á her­bergi eða skrif­stofu og numið hljóð­bylgjur af slíkri nákvæmni að heyra má tveggja manna tal. Hann bendir jafn­framt á að slíkt megi koma í veg fyrir.

„Það er settur lít­ill titr­ari á rúð­una til að hrista hana og brýtur þannig geisl­ann sem kemur að utan og kemur í veg fyrir að hljóðið kom­ist út. Við erum líka með nýjan hátækni­búnað sem gerir upp­töku nán­ast ómögu­lega, þó að ein­hver sé með upp­töku­búnað utan við her­bergið. Fyr­ir­tæki hafa verið að leigja þetta af okkur og það er klár aukn­ing á beiðnum um að tryggja að her­bergi sé hler­un­ar­frí und­an­farin ár,“ segir hann.

Aukning eftir Klaustursmálið

Leit að hler­un­ar­bún­aði í skrif­stofu eða fund­ar­her­bergi fer þannig fram að tveir eða fleiri sér­þjálfaðir starfs­menn eru sendir á vett­vang í skjóli nætur með full­komin tækni­búnað. Allt inni í rým­inu er nákvæm­lega skoðað og skannað; upp í fölsk loft, inn í veggi og ofan í blóma­potta svo eitt­hvað sé nefnt. Ef verið er að óska eftir að tryggja að fund­ar­her­bergi sé öruggt fyrir mik­il­vægan fund dag­inn eftir, þá er her­bergið einnig vaktað fram að fundi til að tryggja að ekki sé hægt að koma fyrir hler­un­ar­bún­aði í milli­tíð­inni. Verk­beiðnum af þessu tagi hefur fjölgað í beinu fram­haldi af því að sam­töl sex þing­manna voru tekin upp á Klaust­ur­bar, 20. nóv­em­ber sl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð