Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Kennarar smánaðir á samfélagsmiðlum

Nemendur deila myndum af kenn­urum í afkára­legum stell­ingum.

Kennarar smánaðir á samfélagsmiðlum

Fátt hefur fengið við­líka athygli í fjöl­miðlum og þjóð­fé­lags­um­ræð­unni en Klaust­urs­málið svo­kall­aða. Fyrir utan sjokkið við að heyra ógeð­feld sam­tölin á milli þing­mann­anna á upp­tök­unum sem um ræðir þá hefur málið vakið upp margar spurn­ingar í kjöl­farið. Ein þeirra er hvenær má og hvenær má ekki hljóð­rita opin­berar per­sónur?  Þá má einnig velta því fyrir sér hversu algengt það er yfir­höfuð að fólk noti snjall­tæki sín til þess að hljóð­rita eða festa á mynd annað fólk án sam­þykkis og deila efn­inu jafn­vel áfram á sam­fé­lags­miðlum.

Ingi Ólafsson, skóla­stjóri Verzlunarskóla Íslands, segir í sam­tali við Mannlíf að umræða á milli kenn­ara í grunn- og fram­halds­skólum snú­ist í auknum mæli um einmitt þetta.

„Það hefur ekki komið neitt ákveðið mál mér vit­andi hér inn­an­húss hjá okkur í Verzlunarskólanum. Maður heyrir það almennt í umræð­unni bæði í grunn- og fram­halds­skólum að nem­endur séu oft að taka t.d. myndir af kenn­ara, þar sem hann er í afkára­legri stell­ingu og verið að senda áfram á sam­fé­lags­miðlum. Ég gef mér það að þetta ger­ist hér eins og ann­ars staðar,“ segir hann og tekur fram að hann hafi heyrt frá for­ystu Kenn­ara­sam­bands­ins að þetta sé vax­andi vanda­mál.

Maður heyrir það almennt í umræð­unni bæði í grunn- og fram­halds­skólum að nem­endur séu oft að taka t.d. myndir af kenn­ara, þar sem hann er í afkára­legri stell­ingu og verið að senda áfram á sam­fé­lags­miðlum.

Anna María Gunn­ars­dóttir, vara­for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands, tekur undir með Inga. Hún stað­festir í sam­tali við Mannlíf að sam­bandið hafi fengið inn á borð til sín mál þar sem myndum af kenn­urum í vand­ræða­legum aðstæðum hafi verið deilt á sam­skipta­miðlum t.d. Twitter og Instagram.

„Við höfum fengið mál þar sem teknar hafa verið myndir af rassi kenn­ara eða þar sem kenn­arar eru sýni­lega sveittir undir höndum og fleira í þeim dúr,“ segir Anna María og bætir við að síðan séu mynd­irnar merktar með vand­ræða­legum upp­hróp­unum á sam­skipta­for­ritum.

„Óneit­an­lega eru vanda­mál sem þessu fylgir, einnig eru nem­endur ein­fald­lega of mikið í símunum og eru að nota þá í kennslu­stundum m.a. til að senda á milli sín myndir og annað slíkt,“ segir hún og tekur fram að hún sé fram­halds­skóla­kenn­ari og tali út frá sínum veru­leika.

Anna María segir að ekki séu nein sam­ræmd við­ur­lög eða verk­lags­reglur um það hvernig eigi að takast á við þetta vanda­mál en bendir á að kenn­arar séu með ákveðnar siða­reglur þar sem tekið er á raf­rænum sam­skiptum og þær gætu átt við í þessu sam­hengi. Hún tekur einnig fram að opin­ber mynd­birt­ing af ein­stak­lingum án þeirra sam­þykkis geti stang­ast á við lög, sér í lagi ef um er að ræða ólög­ráða ein­stak­linga og að vanda­málið sé mikið rætt innan kenn­ara­stétt­ar­innar.

„Ég hef líka setið í stjórn nor­rænu kenn­ara­sam­tak­anna þar sem þessi mál hafa verið rædd en þetta er fyrst og fremst á umræðu­stigi enn sem komið er,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ