Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Kerfið lokar á mennskuna“

Auður Axels­dóttir, iðju­þjálfi og einn stofn­enda Hug­arafls, hefur unnið innan geð­heil­brigð­is­kerf­is­ins í hátt á þriðja ára­tug. Aðferðir hennar hafa að mörgu leyti verið bylt­ing­ar­kenndar því þær miða að því að koma fólki til bata og hjálpa því úti í sam­fé­lag­inu en ekki inni á stofn­unum. Auður var for­stöðu­maður GET, geðteymis innan heilsu­gæsl­unnar, í fimmtán ár en það starf­aði í nánu sam­starfi við Hugarafl. Nú hafa stjórn­völd ákveðið að hætta að veita því úrræði braut­ar­gengi þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á ótví­ræðan árangur.

„Kerfið lokar á mennskuna“
|

Varla líður sú vika án þess að fjallað sé um ófremd­ar­á­stand í geð­heil­brigð­is­kerf­inu. Ungu fólki er vísað frá bráða­geð­deild og stundum endar það með ósköpum. Sjálfs­víg ung­menna eru stór vandi, löng bið er eftir plássi á BUGL og sífellt fleiri glíma við fíkn. Öryrkjum í hópi ungs fólks fjölgar einnig ár frá ári og margir þeirra glíma við and­leg veik­indi, ekki lík­am­leg. Skýtur þá ekki svo­lítið skökku við að verið sé að loka á úrræði sem miðar að því að styðja fólk til sjálf­bjargar og bata?

Óhefð­bundnar leiðir eiga ekki upp á pall­borðið.

„Í mörg ár var Hugarafl og GET, þekkt og metin stærð í sam­fé­lag­inu og stöðin þró­að­ist hratt og eft­ir­spurnin var alltaf mikil. Ástæða þess að Hugarafl og GET unnu í nánu sam­starfi var að við vildum gefa fólki færi á að leita líka til þeirra sem reynsl­una hafa af líkum vanda og þeir sjálfir en ekki ein­göngu til fag­manna. Þegar við hófum starf­semi var okkur mætt af skiln­ingi og áhuga innan kerf­is­ins en núna er kalt and­rúms­loft, of stofn­ana­miðað og sjúk­dómsvæð­ing í gangi. Óhefð­bundnar leiðir eiga ekki upp á pall­borðið. Nú eiga allir að fara sömu leið­ina, á göngu­brettið inn í opin­bera kerfið og það á taka við okkur. Því miður virkar það ekki. Ég er mjög sorg­mædd yfir þess­ari þróun.“

Frá því Hugarafl var stofnað hefur þjón­usta þess auk­ist jafnt og þétt og til GET og Hug­arafls leit­uðu ríf­lega 1.000 manns árlega. En nú hefur GET sem sagt verið lokað. „Við höfum sýnt fram á gríð­ar­legan árangur,“ segir Auður.

„Við höfum líka unnið mikið með fjöl­skyldum og þar er jú að finna dýr­mætasta bak­landið. Starf Hug­arafls og GET-teym­is­ins var mjög ódýrt úrræði, senni­lega það ódýrasta á land­inu en það er samt lagt niður. Teymið kost­aði 56 millj­ónir á ári og það hefur eng­inn getað rök­stutt fyrir mér að leggja þurfi niður starf sem sinnti svo mörgum og er svo ódýrt en stofnuð séu í stað­inn teymi sem kosta um 200 millj­ónir hvert innan heilsu­gæsl­unnar.

Nálgunin er önnur, ekki opin þjón­usta, mun ekki líkj­ast þeirri sam­fé­lags­legu geð­þjón­ustu sem við höfum sinnt og fylgir að mínu mati ekki nútíma­stefnu­mótun. Mér virð­ist áherslan býsna sjúk­dómsmiðuð og í raun til að létta á starf­semi Land­spít­al­ans. Hér er verið að taka fjár­magn úr úrræði sem stuðl­aði að sam­fé­lags­þátt­töku og bata og færa það yfir í úrræði sem byggir á sjúk­dómsmið­aðri nálgun.

Hingað kom skýrslu­höf­undur geð­heil­brigð­is­mála innan Sam­ein­uðu þjóð­anna og skil­aði skýrslu í júní 2017. Dainius Puras kom í upp­hafi árs­ins og hitti m.a. aðila í vel­ferð­ar­nefnd þings­ins og kom við hjá okkur. Hann sagði að ekki mætti leggja þetta niður því við værum að gera nákvæm­lega það sem ætti að gera, þ.e. úrræði sem er opið, byggt á for­sendum þeirra sem leita þjón­ust­unnar, not­enda­þekk­ing væri nýtt í starf­inu öllu og stuðlað að bata og vald­efl­ingu.

Hér er verið að taka fjár­magn úr úrræði sem stuðl­aði að sam­fé­lags­þátt­töku og bata og færa það yfir í úrræði sem byggir á sjúk­dómsmið­aðri nálgun.

Það er líka skrýtið að leggja niður starf sem algjör­lega er byggt á þeirri stefnu­mótun sem Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin WHO leggur áherslu á. Hér á landi höfum við ekki verið neitt sér­stak­lega dug­leg í stefnu­mótun í heil­brigð­is­málum en árið 2016 var gefin út stefna í geð­heil­brigð­is­málum og hún byggir einmitt á þeim hug­tökum sem við höfum að leið­ar­ljósi. Því tel ég heil­brigð­is­ráðu­neytið og ráð­herra fara á móti stefnu Alþingis þegar lagt er niður mik­il­vægt starf sem vinnur nákvæm­lega sam­kvæmt henni. Leitað var til mín þegar mótun stefn­unnar fór fram en okkar starf var m.a. notað sem fyr­ir­mynd stefn­unnar.“

Vildi opna umræðu um lyfjanotkun

Í tvö ár hefur Hugarafl barist fyrir því að koma í veg fyrir að þessi sam­fé­lags­lega geð­heil­brigð­is­þjón­usta sem GET veitti yrði lögð niður. „Við höfum vakið athygli á mál­inu í fjöl­miðlum, verið með sýni­lega við­burði og not­endur og aðstand­endur þeirra hafa látið í sér heyra,“ segir Auður.

„Fjöldinn allur af fólki sem náð hefur bata hefur tjáð sig um hann og kynnt hvernig það hefur kom­ist út í sam­fé­lagið á ný til virkrar þátt­töku. GET og Hugarafl hafa komið í veg fyrir að stór hópur manna fari á örorku og marg­borgað til baka það fjár­magn sem til þeirra rann árlega. Hugarafl er einnig vin­sælasta úrræðið meðal ungs fólks í dag því það sér að þetta nýt­ist því og stýrir út í lífið á ný. Hjá okkur eru um fimm­tíu ung­menni í virkri þjón­ustu. Þau dvelja hjá okkur þar til bat­inn næst og þau geta farið aftur í skóla eða vinnu.“

Auður Axels­dóttir vill per­sónu­lega nálgun í geð­heil­brigð­is­málum. Mynd / Hallur Karlsson

Hún segir að ekki hafi enn feng­ist rök­stuðn­ingur fyrir þess­ari ákvörðun. „Þegar við komum fyrir vel­ferð­ar­nefnd fundum við að rök­stuðn­ingur okkar var mun mál­efna­legri en emb­ætt­is­manna ráðu­neyt­is­ins. Heil­brigð­is­ráðu­neytið bar fátt fram á móti svo við álitum okkur hafa komið vel út úr þessu. Allan tím­ann höfum við haft mik­inn stuðn­ing í þing­inu og héldum að þetta hlyti að bjarg­ast en allt kom fyrir ekki. Margt er því þarna mjög skrýtið. Engin rök að finna og eins og heil­brigð­is­ráð­herra hafi ákveðið að hlusta hvorki á mig né aðra Hug­arafls­menn. Ég hef mætt kulda­legu við­móti sem ég hef aldrei upp­lifað áður hjá ráðu­neyt­inu og furðu­lega hefur verið komið fram við mig sem mann­eskju í þessu ferli.“

Hún, sem rík­is­starfs­maður innan heilsu­gæsl­unnar í starfi sínu sem for­stöðu­maður GET, gat í raun ekki fengið skýr­ingar þegar heilsu­gæslan ákvað að leggja niður hennar starf og þá þjón­ustu sem hún var frum­kvöð­ull að án rök­semda­færslu.

„Það virð­ist vera bein lína milli ráð­herr­ans og heilsu­gæsl­unnar og ég hafði afar veika rödd í ferl­inu og eng­inn gætti míns réttar eða skjól­stæð­inga þjón­ust­unnar. Mér finnst þetta und­ar­leg stjórn­sýsla. Ég mald­aði auð­vitað í móinn og vildi fá sam­ræðu og rök en fram­koma þess­ara aðila byggði einna helst á þöggun. Ég vil ítreka að fjöldi ein­stak­linga sem voru í sínu bata­ferli hjá okkur hafa misst þjón­ustu og rétt­indi þeirra hafa ekki verið varin.“

Ég hef mætt kulda­legu við­móti sem ég hef aldrei upp­lifað áður hjá ráðu­neyt­inu og furðu­lega hefur verið komið fram við mig sem mann­eskju í þessu ferli.

Stendur með fólki með geðraskanir

Auður ákvað að sætta sig ekki við þetta en for­seti Íslands var nýbú­inn að sæma hana Fálka­orð­unni þegar ákveðið var að leggja starf hennar niður fyr­ir­vara­laust. „Mitt mál sendi ég til umboðs­manns Alþingis,“ segir hún.

„Nið­ur­staðan mun svo sem ekki skipta mestu máli en mér fannst það grund­vall­ar­at­riði að Alþingi vissi hvernig komið er fram við fólk og það af rík­is­stofn­unum. Ég er braut­ryðj­andi og vann allan sól­ar­hring­inn til að koma Hug­ar­afli og GET á lagg­irnar. Þegar úrræðið hefur sannað sig er þessi stefna tekin. Ég veit ekki hvað veldur. Ef við tökum stóru mynd­ina vill kerfið ekki láta ýta við sér. Ég er ein af þeim sem hef valið að standa með fólki með geð­rask­anir í einu og öllu og líka viljað hafa eðli­legt upp­lýs­inga­flæði um alla með­ferð, m.a. geð­lyfin. Við notum of mikið af geð­lyfjum á Íslandi og of lengi. Við ættum að nýta aðrar aðferðir til að byrja með, gefa tíma og nánd og efla þannig mögu­leika á að hægt sé að kom­ast í gegnum til­finn­inga­legt upp­nám án lyfja.

Mér hefur þótt nauð­syn­legt að hafa opna umræðu um lyfja­notkun og ýmiss konar með­ferð almennt. Það eru ekki allir ánægðir með það. Ég hef líka talað fyrir per­sónu­legri nálgun og sumum finnst það ekki smart. En það er ekki rétt­læt­an­legt að leggja niður starf­semi vegna þess að for­stöðu­maður tjái sig opin­ber­lega eða hafi skoð­anir.

Við notum of mikið af geð­lyfjum á Íslandi og of lengi.

Hvert erum við þá komin sem sam­fé­lag? Erum við á móti mennsk­unni? Auk alls þessa hef ég orðið fyrir róg­burði. Lítil grúppa fag­manna sem hafði áhuga á að ýta okkur út, bæði mér og Hug­ar­afli, vann mark­visst að því. Það var meira að segja farið inn á minn vinnu­stað til að róg­bera mig. Ég lít það mjög alvar­legum augum ef emb­ætt­is­menn hlusta á slíkt. Eins er óverj­andi að for­svars­menn ann­arra stofn­ana, úrræða eða félaga­sam­taka gangi svo langt að bera út róg um aðra er sinna sama hópi. Ég hef alltaf litið svo á að ill­mælgi segi meira um þann sem notar hana en hinn sem um er rætt. Hún er alltaf sprottin af ein­hverjum rótum sem gera hana ekki trú­verð­uga. Ég held í raun að öll trixin í bók­inni hafi verið notuð í þessu ferli. Einn góður vinur minn kallar þetta hágæða­at­gervis­ein­elti.“

Auður bætir því við að ef henni hefði verið gerð grein fyrir að nú væri tíma­bært að heilsu­gæslan leit­aði nýrra leiða og veldi annan far­veg hefði hún verið opin fyrir umræðu um hann. „Það var ekki gert,“ segir hún. „Mér var bara til­kynnt að svona yrði þetta. Þarna loka menn aug­unum fyrir árangri, orð­spori, óskum not­enda og aðstand­enda. Starf okkar hefur verið óhefð­bundið og fólk velur þetta úrræði sjálft og það stendur einnig fjöl­skyld­unni til boða. Allt annað upp­haf að bata er að geta valið eigin leið en þegar ein­hver segir þér að þú eigir að gera svona eða hinsegin. Við tókum einnig á bráða­vanda og unnum þá gjarnan heima með fjöl­skyld­unni. Það er lyk­il­at­riði að strax í upp­hafi sé hlustað á for­sendur ein­stak­lings­ins og litið á veik­indin sem tíma­bundin.“

Reynt að komast hjá innlögn

Þegar um and­lega veika ein­stak­linga er að ræða er oft mikil tog­streita í gangi bæði milli hans og fjöl­skyld­unnar og innan hennar. „Það eru svo þung skref að þurfa að fara út og leita sér hjálpar hjá stofnun,“ segir Auður.

„Núna er ég í námi í fjöl­skyldu­með­ferð „Open Dialog“ sem ég hef lengi horft mikið til og byggir á að vinna með ein­stak­linga í geð­rofi og fjöl­skyldu þeirra. Þá er allt tengsla­netið kallað saman og tveir fag­menn bera ábyrgð á sam­tal­inu sem fer í gang. Finnar gera þetta þannig að sam­talið getur átt sér stað einu sinni á dag sé þörf á meðan geð­rofið er að ganga yfir.

Fjöl­skyldan fær upp­lýs­ingar og stuðn­ing til að halda þetta út og sá veiki er með í öllu ferl­inu og engin ákvörðun tekin á bak við tjöldin. Fyrsta stefnan er að kom­ast hjá inn­lögn og lyfja­gjöf en ef ekki er hjá henni kom­ist er inn­lögn eins stutt og hægt er og lyfin notuð eins lítið og hægt er. Finnar hafa náð þeim árangri að 82% þeirra ein­stak­linga sem fara í gegnum þessa með­ferð fá bata. Það er ekk­ert smá­ræði. En þá er líka unnið út frá því að geð­rof sé eðli­leg við­brögð við óeðli­legu ástandi. Þá er ekki verið að sjúk­dóms­gera til­finn­ingar.“

Stofnanakerfi hamlandi

En hver er bak­grunnur þinn og hvernig var Hugarafl til? „Ég útskrif­að­ist sem iðju­þjálfi frá Ergot­er­a­peut­skolen árið 1994,“ segir Auður, „og gekk beint inn á geð­svið Land­spít­al­ans. Að mínu mati var ómet­an­leg reynsla að fá að vinna á bráða­geðsviði. Læra á hvað það þýðir að vera bráð­veikur og líka hvernig þjón­ustan var. Eftir á að hyggja er ég mjög þakk­lát fyrir þetta tíma­bil.

En það trufl­aði mig alltaf að stofn­ana­kerfi er í sjálfu sér svo­lítið hamlandi bæði fyrir fag­mann­inn og not­and­ann. Ég fann á þessum árum hvað það var sem mér lík­aði ekki og ramm­inn var fyr­ir­staða gagn­vart þeirri nálgun sem mig lang­aði til að iðka. Kerfið lok­aði á mennsk­una. Sem fag­maður á bráða­sjúkra­húsi veit maður lítið hvað verður um fólk og hvað ger­ist í sam­fé­lag­inu þegar kemur að útskrift.

Ég vann á Hvíta band­inu þegar ég kynnt­ist bata­mód­el­inu Pace sem ég er að vinna eftir í dag og er eftir Daniel Fisher geð­lækni, M.D., PhD, og Laurie Ahern. Rauði þráð­ur­inn í mód­el­inu er að að bati er mögu­legur fyrir alla og vald­efl­ing ein af for­send­unum. Pace byggir fyrst og fremst á per­sónu­legri þjón­ustu og áherslan er á dag­legt líf í sam­fé­lag­inu en ekki inni á stofn­unum. Við Fisher höfum starfað náið saman síðan 2005 og hans hug­myndir eru vel kynntar í íslensku sam­fé­lagi. Hefð­bundin með­ferð byggir hins vegar meira á „við­haldi“ en bata og því getur það ögrað fag­fólki að starfa sam­kvæmt bata­hug­mynda­fræði sem byggir á jafn­ingja­grunni.“

Fimm­menn­ing­arnir sem stofn­uðu Hugarafl höfðu allir svip­aðar skoð­anir á geð­heil­brigð­is­málum og vildu breyta þeirri þjón­ustu sem var í boði. „Við vorum einn fag­maður og fjórir með reynslu af því að not­færa sér aðstoð geð­heil­brigð­is­kerf­is­ins. Ein af fyrstu regl­unum sem við settum okkur var einmitt að allir ættu að vera jafn­ingjar. Við vorum svona að spek­úlera hvernig við gætum nýtt okkar reynslu og ann­arra sem hafa þurft á þjón­ustu að halda og hvað það væri sem okkur lík­aði ekki við í kerf­inu og hverju við gætum breytt. Við ákváðum þarna að vald­efl­ing yrði okkar verk­færi, sömu­leiðis bata­nálg­unin og við vildum auka rétt­indi sjúk­linga.“

Völdin tekin af fólki

Þú við­ur­kennir að þú hafir fljótt fundið að þér lík­aði ekki alls kostar við þær aðferðir sem not­aðar voru inni á stofn­unum. Var það vegna þess að þér fannst stofn­anir ekki færar um að veita ein­stak­lingum þjón­ustu eða var það and­rúms­loft er þar skap­að­ist á ein­hvern hátt til að hefta batann?

„Völdin eru tekin af fólki þegar það fer inn á stofnun og þegar fólk er að glíma við geð­rænan vanda eða til­finn­inga­lega van­líðan er svo stutt í að menn missi völd og sjálf­stjórn. Stofn­an­ara­mmi getur illa lagað sig að for­sendum ein­stak­lings­ins. Hann verður að laga sig að ein­hvers konar kerfi og innan hans er valda­ó­jafn­vægi ríkj­andi. Ein­stak­ling­ur­inn fær eitt­hvert til­boð og hann verður bara að taka því eða missa þjón­ust­una. Val­mögu­leikar eru ekki margir.

Stofn­ana­kerfið byggir einnig á sjúk­dóms­grein­ingum og nálg­unin þannig að mann­eskjan verður að passa inn í kass­ann en ekki öfugt. Við notum mikið af lyfjum á Íslandi og forð­umst umræð­una um gagn­semi þeirra. Við notum 43% meira af lyfjum en t.d. Norðmenn en örorku­þegar eru mun fleiri á Íslandi. Á þeim tíma er ég vann innan kerf­is­ins sá ég að ég mátti ekki vera per­sónu­leg, mátti ekki nálg­ast um of. Ef mann­eskja var í geð­rofi átti ég ekki að skipta mér af því og fleiri svona mýtur sem ég er löngu búin að henda.“

Góðir möguleikar á að ná bata

Hvernig fór svo starf­semin fram þegar Hugarafl var komið á lagg­irnar?

„Á sama tíma og hóp­ur­inn varð til fór ég með hug­mynd að sam­fé­lags­þjón­ustu fyrir þáver­andi samn­inga­nefnd heil­brigðis- og trygg­inga­mála­ráð­herra og fékk hana sam­þykkta á einu sumri. Það myndi ekki ger­ast í dag. Heilsu­gæslan kom að borð­inu og óskaði eftir að fá eft­ir­fylgd­ina til sín og ég sam­þykkti það. Ég var hvött til þess og það þótti öruggt að heilsu­gæslan yrði gott bak­land fyrir þetta frum­kvæði að sam­fé­lags­legri geð­þjón­ustu. Því miður, segi ég í dag, því aldrei varð ég vör við bak­landið og heilsu­gæslan ákvað að leggja þjón­ustu GET niður, hirða fjár­magnið sem fylgdi verk­efn­inu og þar með komst starf­semi Hug­arafls í upp­nám.“ Hún segir að Hugarafl hafi hins vegar ákveðið að gef­ast ekki upp og bar­áttan skil­aði loks árangri því skrifað hafi verið undir samn­ing við vel­ferð­ar­ráðu­neytið og vinnu­mála­stofnun.

„Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra sýnir þar með að hann hlust­aði á raddir fólks af öllu land­inu sem sótt hafði þjón­ustu til GET og Hug­arafls og náð bata. Einnig var hlustað á rödd fjölda þing­manna sem vildu að þessi þjón­usta héldi áfram.  Vinnu­mála­stofnun sér einnig gildi opinnar end­ur­hæf­ingar með vald­efl­ingu að leið­ar­ljósi og Gissuri Pét­urs­syni var falin samn­inga­gerð við Hugarafl og tókst afar vel úr hendi.“

Auður segir að bar­áttan fyrir GET sé hins vegar eftir, en hún muni áfram berj­ast fyrir sam­fé­lags­legri geð­þjón­ustu sem byggir á for­sendum not­and­ans/fjöl­skyld­unnar og ýtir undir bata en ekki stofn­ana nálgun.

„Þegar við lögðum af stað árið 2003 var ekki oft talað um bata og vald­efl­ing er til­tölu­lega nýtt hug­tak í okkar sam­fé­lagi. En sam­fé­lagið var til­búið og vildi breyt­ingar í geð­heil­brigð­is­kerf­inu. Okkur var tekið opnum örmum margra hluta vegna og það var far­vegur fyrir nýja nálgun. Við boð­uðum til borg­ara­fundar og þá höfðum við ekki einu sinni starfað í þrjá mán­uði og þangað mættu þrjú hund­ruð manns. Sveiflan í þjóð­fé­lag­inu var jákvæð gagn­vart nýrri nálgun,“ segir hún og bætir við að hún sé bjart­sýn á að pendúll­inn muni aftur sveifl­ast til baka.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ