Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Njósnað um náungann

Njósnað um náungann
björg­vin guð­munds­son kom almanna­tengsl

Björgvin Guð­munds­son skrifar,

Frá lokum nóv­em­ber hefur mörgum verið tíð­rætt um að við ættum að tala vel um hvert annað í stað þess að níða skó­inn af náung­anum. Þessum skjót­fengna náunga­kær­leik hefur síðan vaxið ásmegin eftir því sem liðið hefur á umræðu um upp­á­kom­una á Klaustur bar sem gerð var opin­ber eftir að ólög­legri hljóð­upp­töku var lekið í fjöl­miðla. Við eigum auð­velt með að setja okkur á háan stall þegar aðrir hafa fallið af honum.

Þótt flestir venji sig ekki á að fara niðr­andi orðum um annað fólk óska þess þó fáir að sam­töl þeirra við vini eða sam­starfs­menn séu hljóð­rituð og prentuð til opin­berrar birt­ingar. Við kjósum að njóta ákveð­innar frið­helgi þegar kemur að per­sónu­legum sam­ræðum og upp­lýs­ingum um einka­hagi. Í því felst ekki endi­lega að við höfum eitt­hvað að fela.

Um þetta eru flestir sam­mála enda hefur íslensk lög­gjöf byggt á því sjón­ar­miði að vernda okkur fyrir hvers kyns hnýsni og söfnun per­sónu­legra upp­lýs­inga. Til dæmis gilda ákveðnar reglur um svo­kall­aða hlustun sím­tala sem eiga ein­ungis að vera á valdi stjórn­valda, þótt þeim heim­ildum hafi verið beitt frjáls­lega gegn borg­ur­unum. Slíkt eft­ir­lit þarf að rök­styðja með vísan til hugs­an­legra lög­brota.

Við erum að feta vara­sama slóð ef við sýnum ákveðið umburð­ar­lyndi gagn­vart því að fylgst sé með okkur ef ske kynni að ósæmi­leg umræða eða hegðun ætti sér stað. Skiptir þá engu þótt slíkt sé rétt­lætt með vísun til göf­ugra hags­muna heild­ar­innar, hvernig sem það er svo skil­greint. Til dæmis að fá inn­sýn í hug­ar­heim fólks sem viðrar skoð­anir sem við jafn­vel fyr­ir­lítum og erum hjart­an­lega ósam­mála. Þá fyrst reynir á umburð­ar­lyndi þeirra umburð­ar­lyndu.

Sé slíkt hins vegar sam­þykkt er rétt­indum borg­ar­anna fórnað fyrir ein­hverja heild­ar­hyggju, svipað og ráð­stjórn­ar­ríkin rétt­lættu umfangs­mikið eft­ir­lit með fólki í þágu kerf­is­ins. Í slíku and­rúms­lofti voru þeir, sem voru á skjön við ríkj­andi við­horf, ógn við sam­fé­lagið og án rétt­inda. Til að hafa upp á þeim voru borg­ar­arnir sjálfir gerðir að njósn­urum.

Þessi hug­mynda­fræði birt­ist til dæmis í við­horfi fólks til þess hvort birta eigi tekju­upp­lýs­ingar ein­stak­linga opin­ber­lega. Til­gang­ur­inn er sagður helga með­alið og aðferðin hafi fæl­ing­ar­mátt gegn skattsvikum. Aðhaldið á að fel­ast í því að við getum klagað nágranna okkar til yfir­valda ef við teljum að þeir lifi um efni fram miðað við upp­gefnar tekjur. Kannað hvort hjól­hýsið í bíla­stæð­inu og utan­lands­ferðir fjöl­skyld­unnar á síð­asta ári sam­ræm­ist inn­komu fjöl­skyld­unnar. Ekki er slík hugsun lík­leg til að auka sam­heldni, sam­kennd og virð­ingu fólks á milli. Hún elur á sundr­ungu, ill­mælgi og öfund. Eitthvað sem allir vilja nú sporna gegn.

Í þessu við­horfi felst eng­inn stuðn­ingur við hót­anir og lít­ils­virð­ingu eða skatt­svik og ójafna tekju­skipt­ingu. Við höfum bara aðferðir til að tækla þessa hluti. Án þess að fórna frið­helgi ein­stak­lings­ins með vísan til hags­muna heild­ar­innar. Og njósna um náung­ann.

Höfundur er með­eig­andi KOM ráð­gjafar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Klausturmálið

FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ