Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tilbúinn að fara að djöflast

Gunnar Nelson bar­daga­í­þrótta­maður berst á laug­ar­dag­inn í Toronto í Kanada við Bras­il­íu­mann­inn Alex Oliveira. Gunnar segir bar­dag­ann leggj­ast vel í sig en hann er vel und­ir­bú­inn bæði and­lega og lík­am­lega. Alex sé hörku­bar­daga­maður, með öðru­vísi stíl en margir sem hann hefur keppt við og frekar villtur miðað við marga á þessu stigi.

Tilbúinn að fara að djöflast
|

„Bar­dag­inn leggst vel í mig,“ segir Gunnar. „Æfinga­búð­irnar hafa gengið vel, ég er til­bú­inn í þetta og ánægður með and­stæð­ing­inn sem ég fékk. Ég er spenntur og til­bú­inn að fara að djöfl­ast á laug­ar­dag­inn.“

Gunnar tap­aði í júlí í fyrra gegn Santiago Ponzinibbio og hefur ekki barist síðan þá. And­stæð­ingur hans að þessu sinni, Bras­il­íu­mað­ur­inn Alex Oliveira, er númer 13 á heims­list­anum í velti­vigt eða einu sæti fyrir ofan Gunnar.

Alex er hörku­bar­daga­maður, með öðru­vísi stíl heldur en margir sem ég hef keppt við.

„Alex er hörku­bar­daga­maður, með öðru­vísi stíl heldur en margir sem ég hef keppt við og er frekar villtur miðað við marga á þessu stigi. Hann er árás­ar­gjarn og sækir svo­lítið mikið inn með höggum. Hann er með frekar miklar sveiflur og er yfir­höfuð mjög fær bar­daga­maður – fínn á jörð­inni og fínn stand­andi. Hann er topp­and­stæð­ingur en vill örugg­lega helst halda bar­dag­anum stand­andi. Það vilja fæstir fara í jörð­ina með mér þannig að menn vilja halda þessu stand­andi og nota högg og spörk þannig að maður þarf að vera vak­andi fyrir svo­leiðis hlutum og setja niður góðar gildrur.“

Gunnar segir að hver bar­dagi sé sá mik­il­væg­asti hverju sinni og skipti öllu máli upp á fram­haldið. „Það er ekk­ert annað en full ein­beit­ing á það sem er næst og svona bar­dagi skiptir gríð­ar­lega miklu máli, sér­stak­lega þegar maður kemur eftir tap – ekki það að ég spái mikið í það en þessi bar­dagi skiptir bara öllu máli.“

Hálfpartinn núllstillir sig

Gunnar seg­ist hafa æft stíft und­an­farna mán­uði. „Ég hef und­an­farna tvo mán­uði æft svona 10-12 sinnum í viku. Þrjár af þeim æfingum eru hreinar þrekæf­ingar og lyft­ingar en hvað aðrar æfingar varðar þá hef ég verið að æfa mig í ákveðnum aðstæðum sem tengj­ast íþrótt­inni – ég er þá kannski að glíma eða æfa kickbox og síðan blanda ég þessu öllu saman. Þetta er mis­jafnt; sumar æfingar eru meira tækni­æf­ingar en aðrar eru meira við­bragðsæf­ingar og þrek í leið­inni þar sem ég tek vel á því. Þetta hef ég sem sagt gert síð­ast­liðna tvo mán­uði og er nú kom­inn til Kanada og er til­bú­inn.“

„Ég er spenntur og til­bú­inn að fara að djöfl­ast á laug­ar­dag­inn,“ segir Gunnar.

Gunnar segir and­legan und­ir­bún­ing líka skipta máli. „Ég þekki sjálfan mig og ég veit hvernig mér finnst best að haga mér dags­dag­lega þegar ég er að æfa og síðan í hvaða hug­ar­á­standi ég vil vera þegar fer að nálg­ast bar­dag­ann og nátt­úr­lega þegar að honum kemur. Mér finnst gríð­ar­lega mik­il­vægt að vera til­tölu­lega rólegur og afslapp­aður en þá finnst mér ég bregð­ast lang­best við og vera með bestu við­brögðin í raun­inni, til dæmis þegar maður þarf að taka snöggar ákvarð­anir og hreyfa sig hratt og örugg­lega.

Maður hálf­part­inn núll­stillir sig þegar maður er að fara þarna inn og ég spái ekki sér­stak­lega í neitt.

Andlegur und­ir­bún­ingur kemur með reynsl­unni, maður lærir á sjálfan sig og hvernig manni finnst vera best að haga sér þegar nær dregur bar­dag­anum. Það hjálpar gríð­ar­lega mikið upp á allar æfingar ef manni líður vel, er með gott fólk í kringum sig og ef góð stemn­ing er í æfinga­búð­unum. Þegar nær dregur bar­dag­anum þá spái ég lítið í hann; ég dreifi hug­anum. Ég er núna að bíða eftir bar­dag­anum og þegar kemur að því að fara inn í búrið snýst þetta fyrst og fremst, í mínu til­felli, um að vera afslapp­aður, rólegur og treysta á sjálfan mig og horna­menn­ina mína og ef ég er afslapp­aður og ein­beittur þá tek ég réttar ákvarð­anir og bregst hratt og örugg­lega við. Maður hálf­part­inn núll­stillir sig þegar maður er að fara þarna inn og ég spái ekki sér­stak­lega í neitt nema ef maður þarf snögg­lega að breyta um leik­á­ætlun eða setja eitt­hvað upp öðru­vísi.“

Bruce Lee og Jackie Chan

Gunnar segir að hann hafi haft áhuga á bar­daga­í­þróttum frá því hann man eftir sér. Þess má geta að Haraldur Dean Nelson, faðir og umboðs­maður Gunnars, er fram­kvæmda­stjóri íþrótta­fé­lags­ins Mjölnis sem hefur þann til­gang að efla ástundun og keppni lif­andi bar­daga­í­þrótta. „Ég hafði gaman af því að horfa á bíó­myndir með Bruce Lee og Jackie Chan og síðan byrj­aði ég í karate þegar ég var 13 ára og fór aðeins að fá að tuskast. Ég fann strax að þetta höfð­aði mikið til mín.“

Gunnar segir að það að æfa og keppa í bar­daga­í­þróttum sé það sem hann elski að gera og að honum líði vel meðan á æfingum og keppnum stendur.

„Þetta er eitt­hvað sem ég hef gríð­ar­legan áhuga á og mér finnst vera gaman að finna út úr alls konar aðstæðum og vanda­málum sem tengj­ast bar­daga­í­þróttum og sem teng­ist því að þjálfa skrokk­inn á mér til þess að takast á við þessar aðstæður. Þetta gefur mér ein­hverja ástæðu. Það er ekk­ert annað sem lætur mér líða svona. Þetta á svo hrika­lega stóran part í mér.“

Gunnar segir að lang­tíma­mark­miðið sé fyrst og fremst að bæta sig og auð­vitað að halda áfram að vinna bar­daga. „Ég ein­beiti mér að því að bæta mig, verða sífellt betri og skilja í raun­inni íþrótt­ina betur og bæta á mig ein­hverjum vopnum. Það sem mér finnst vera skemmti­leg­ast er þegar ég finn að ég er að öðl­ast ein­hvern skiln­ing og til­finn­ingu fyrir ein­hverju sem ég hafði kannski ekki áður.“

Sársaukinn venst

Gunnar segir að sárs­auk­inn sem getur fylgt íþrótt­inni sé eitt­hvað sem venj­ist þegar tek­ist er á. „Það er hægt að meiða sig í hvaða íþrótt sem er og kannski ekki síst þess­ari íþrótt þar sem eru mikil átök. Það er ekki eitt­hvað sem stoppar mann þótt eitt­hvað sé smá­sárt. Þetta venst og húðin þykknar og maður herð­ist af því að vera að djöfl­ast svona dags­dag­lega og takast á en sárs­auki er, held ég, ekki eitt­hvað sem margir spá í sem stunda þessa íþrótt. Ég held að það séu frekar þeir sem hafa ekki verið í þess­ari íþrótt og eru að horfa á þetta utan frá sem halda að þetta hljóti að vera rosa­lega vont. En þegar á hólm­inn er komið og maður þekkir til og er kom­inn með smá­reynslu þá er sárs­auk­inn ekk­ert sér­stakt atriði.“

Þar sem ég var meiddur á tíma­bili og þurfti að taka mér hlé, hefur þetta ár svo­lítið snú­ist um að ná sér góðum.

Gunnar segir að sárs­auk­inn sé þess virði. „Þótt maður meiði sig eitt­hvað smá … Þetta er eitt­hvað sem er inn­gróið í okkur frá örófi alda því mað­ur­inn hefur alltaf tek­ist á. Þetta er í eðli okkar.“

Talið berst þá aftur að bar­dag­anum sem er fram undan, viður­eign­inni við Alex Oliveira. „Þar sem ég var meiddur á tíma­bili og þurfti að taka mér hlé, hefur þetta ár svo­lítið snú­ist um að ná sér góðum og fara inn í þennan bar­daga. Annars er ég bara spenntur fyrir þessu og til­bú­inn í slag­inn.“

Texti / Svava Jóns­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð