Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Vandræðalegt karlagrobb en kallar ekki á afsagnir

Gróf og móðg­andi ummæli þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins í garð sam­starfs­manna þeirra á þingi munu vænt­an­lega ekki hafa áhrif á stöðu þeirra á þing­inu að öðru leyti en að þetta geng­is­fellir þeirra per­sónur.

Vandræðalegt karlagrobb en kallar ekki á afsagnir

DV og Stundin hófu í fyrra­kvöld að birta afrit af sam­tölum þing­manna Mið­flokks­ins og Fólks flokks­ins sem áttu sér stað á barnum Klaustur við Aust­ur­völl. Samtölin voru tekin upp án þeirra vit­undar og lekið til fjöl­miðl­anna en ekki liggur fyrir hver það var sem tók sam­tölin upp. Þing­menn­irnir sem um ræðir eru Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir úr Mið­flokki og Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son úr Flokki fólks­ins.

Á upp­tök­unum heyr­ist að þing­menn­irnir eru við skál og láta þeir margt og mis­jafnt flakka um sam­starfs­fólk sitt á þingi. Gunnar Bragi lýsir því til að mynda hvar hann skip­aði Árna Þór Sig­fús­son, fyrrum þing­mann VG, sem sendi­herra til að frið­þægja þing­menn VG og draga athygl­ina frá skipun Geirs H. Haarde sem sendi­herra. Þingmenn Mið­flokks­ins leggja hart að þeim Ólafi og Karli Gauta að ganga í raðir Mið­flokks­ins og eru miður smekk­leg ummæli um Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, látin falla í því sam­hengi. Þá er að finna rætin ummæli í garð nafn­greindra þing­manna á borð við Oddnýju G. Harð­ar­dóttur, Loga Ein­ars­son og Pál Magn­ús­son sem og önnur ummæli sem verður ekki lýst nema sem stækri kven­fyr­ir­litn­ingu.

Málið er í besta falli afar neyð­ar­legt fyrir þing­menn­ina, sér í lagi þing­menn Mið­flokks­ins sem láta vaða á súðum í sam­töl­unum. Almenn­ingur er hneyksl­aður á fram­ferði þeirra og hefur ekki farið leynt með það á sam­fé­lags­miðlum. Fjór­menn­ing­arnir sendu frá sér yfir­lýs­ingu um miðjan dag í gær þar sem þeir báð­ust afsök­unar.

Við­mæl­endur Mannlífs segja ólík­legt að málið kalli á afsögn þeirra þing­manna sem um ræðir. Þeir hafi ekki gerst brot­legir við neitt nema almennt vel­sæmi og þurfi fyrst og fremst að standa á sínu gagn­vart sam­starfs­mönnum og kjós­endum. Þá sé ólík­legt að eft­ir­málar verði fyrir þá fjöl­miðla sem birtu sam­tölin.

Enginn getur þvingað þingmenn til að segja af sér

„Þetta orð­færi er auð­vitað með miklum ólík­indum. Þarna eru ummæli sem eru svaða­legri en áður hafa heyrst af munni stjórn­mála­manna,“ segir Eiríkur Bergmann Ein­ars­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, um ummæli þing­mann­anna og rifjar upp að á dög­unum hafi háskóla­kenn­ari í HR verið rek­inn fyrir mun væg­ari ummæli. „Það er eng­inn sem getur þvingað þing­menn til þess að segja af sér, vilji þeir það ekki sjálfir, en eft­ir­mál hljóta meðal ann­ars að verða þau að aðrir þing­menn eigi örð­ugt með að treysta þeim sem svona tala um kollega sína. Og svo þurfa þeir auð­vitað að standa frammi fyrir kjós­endum sínum.“

Þarna eru ummæli sem eru svaða­legri en áður hafa heyrst af munni stjórn­mála­manna.

Eiríkur segir boð Mið­flokks­manna um að gera Ólaf Ísleifs­son að þing­flokks­for­manni áhuga­vert og til marks um það að þessir tveir flokkar séu að miklu leyti án lýð­ræð­is­legra inn­viða. „Fremur eins og skeljar utan um þing­menn. Í hefð­bundnum flokkum þar sem lýð­ræð­is­legir inn­viðir eru til staðar væri trauðla hægt að bjóða mik­il­vægt emb­ætti fram með slíkum hætti,“ segir Eiríkur og bætir við: „Krafan um sífellda end­ur­nýjun á Alþingi og í stjórn­málum yfir­leitt hefur valdið mjög hröðum umskiptum og raun valdið eins konar við­van­ings­væð­ingu stjórn­mál­anna á Íslandi. Það birt­ist meðal ann­ars í því að sumir þing­menn virð­ast ekki skilja til hlítar skyldur og eðli­lega hátt­semi þing­manna. Inn á þing eru því komnir margir sem rísa kannski ekki undir þeim auknu kröfum sem gerðar eru til þing­manna umfram óbreytta borg­ara.“

Krafan um sífellda end­ur­nýjun á Alþingi og í stjórn­málum yfir­leitt hefur valdið mjög hröðum umskiptum og raun valdið eins konar við­van­ings­væð­ingu stjórn­mál­anna á Íslandi.

Fyllirísraus og karlagrobb

Birgir Guð­munds­son, stjórn­mála­fræð­ingur við Háskól­ann á Akureyri, seg­ist ekki muna eftir svip­uðu máli; að stjórn­mála­menn hafi náðst á upp­töku með þessum hætti og fréttir birtar upp úr sam­tölum þeirra. „Þetta hljómar eins og eitt­hvað fyllirís­raus og karla­grobb í ein­hverju bar­horni og er fyrst og fremst vand­ræða­legt fyrir við­kom­andi þing­menn.“

Birgir telur málið ekki koma til með að hafa póli­tíska eft­ir­mála. „Ekki nema til að geng­is­felli alla þá þing­menn sem voru þarna,“ segir hann en bætir við að hann sjái það fyrir sér að ein­hver láti reyna á hvort það sé lög­legt eða sið­legt að fjöl­miðlar birti upp­lýs­ingar sem eru fengnar með þessum hætti. „Þá munu menn láta reyna á það hvort upp­lýs­ing­arnar varði almenn­ing eða ekki. Hvort þetta sé eitt­hvað sem skiptir máli fyrir þjóð­fé­lags­um­ræð­una? Við sjáum að það gerir það miðað við við­brögðin sem frétt­irnar hafa fengið.“

Birgir bendir jafn­framt á að Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hafi áður kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að jafn­vel opin­berar per­sónur eigi rétt á frið­helgi einka­lífs. Jafnvel þó að þær séu á staddar á almanna­færi. „Það að menn sitji ein­hvers staðar fullir með vinum sínum getur hugs­an­lega flokk­ast undir slíkt. En þetta eru fyrst og fremst forms­at­riði og ég er ekki viss um mál myndi vinn­ast endi­lega á þessum atriðum. Skaðinn er auð­vitað skeður fyrir þetta fólk. Fyrst og fremst er þetta bara hall­æris­legt með stóru H-i, enda kemur það í ljós að menn eru í sárum yfir því að hlusta á sjálfa sig.“

Birgir segir full­mögu­legt að málið verði kært til siða­nefndar Blaða­manna­fé­lags Íslands (BÍ) en efast um að félagið hafi að öðrum kosti eitt­hvað um málið að segja. Blaða­manna­fé­lagið geti ekki skipt sér af ein­stökum rit­stjórn­ar­legum ákvörð­unum og hvort þær eigi erindi við almenn­ing.

Fólk verður að gæta eigin orða

Í kjöl­far birt­ingar DV og Stund­ar­innar á sam­tölum á upp­tök­unni hafa margar spurn­ingar vaknað, m.a. hvort birt­ingin sé lög­leg. Lára V. Júl­í­us­dóttir lög­maður segir prent- og tján­ing­ar­frelsi alltaf vega þyngra en hömlur sem reynt er að setja á það. Það sé bundið í stjórn­ar­skrána. „Annars veit ég ekki hvort það er hægt að leggja ábyrgð­ina á aðra en þá sem létu þessi ummæli falla í upp­hafi. Tæknin í dag er auð­vitað orðin þannig að fólk verður að passa sig á því hvað það segir og hvar það segir það. Annars hafa ein­stak­ling­arnir sem eiga þarna hlut að máli s.s. ekk­ert verið að reyna að þræta fyrir eigin orð.“

Tæknin í dag er auð­vitað orðin þannig að fólk verður að passa sig á því hvað það segir.

En tel­urðu að sá sem hljóð­rit­aði sam­talið gæti átt kæru yfir höfði sér ef hann finnst?

„Það eru alveg líkur á því,“ svarar hún. „Þ.e.a.s ef það tekst að hafa uppi á við­kom­andi.“

Texti / Magnús Geir Eyj­ólfs­son, Egill Páll Egilsson, Roald Viðar Eyvinds­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Klausturmálið

FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð