Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heiðurstengt ofbeldi þrífst á Íslandi

Dæmi um að fólk af ólíkum erlendum upp­runa haldi uppi heiðri fjöl­skyld­unnar með ofbeldi.

Heiðurstengt ofbeldi þrífst á Íslandi
|||

Höfundur / Linda Blöndal

„Hún bjó við mikið ofbeldi á heim­ili sínu, bæði af hendi föður og bróður síns. Allt frá því að hún var ung stúlka hafi hún og systk­ini hennar ekki mátt eiga íslenska vini heldur þurftu alltaf að koma beint heim eftir skóla og leika við krakka af sama upp­runa. Hún var í vinnu og pabbi hennar tók af henni pen­ing­ana hennar. Hún klæddi sig ekki og hag­aði sér ekki eins og fjöl­skyldan vildi og það stóð til að gifta hana manni af sama upp­runa.“

Heið­urstengd átök hjá fjöl­skyldum af erlendum upp­runa eiga sér stað hér á landi. Ýktasta birt­inga­mynd heið­urstengdra átaka eru svo­nefnd heið­urs­morð sem af frétt­ist frá öðrum Norð­ur­löndum og víðar um heim. „Tími er kom­inn til að bera kennsl á þetta hér á landi,“ segir Edda Ólafs­dóttir, félags­ráð­gjafi á vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borgar, „þar sem þetta er íslenskur veru­leiki. Það sem ger­ist ann­ars staðar kemur líka hingað til lands, bara aðeins seinna,“ segir hún. Ráð­stefna var haldin í vik­unni þar sem tveir norskir sér­fræð­ingar sögðu frá því hvernig bera má kennsl á slíkt ofbeldi og hvernig vinna megi gegn því.

Tími er kom­inn til að bera kennsl á þetta hér á landi.
Edda Ólafs­dóttir, félags­ráð­gjafi á vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borgar.

Um er að ræða mann­rétt­inda­brot þegar heiður fjöl­skyld­unnar er hærra settur en frelsi ein­stak­lings­ins. Edda segir að þarna sé stór­fjöl­skyldan og heiður hennar alls­ráð­andi og jafn­vel þótt hún sé ekki á Íslandi, heldur bara hluti hennar.

Sig­þrúður Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins, segir þessi dæmi oftar koma upp nú en kannski af því að starfs­konur athvarfs­ins hafa augun betur opin fyrir þeim.

„Eins og þetta birt­ist okkur, fáum við konur til okkar sem hafa ekki haft neitt um það að segja hverjum þær gift­ast eða hvort þær gangi í hjóna­band heldur er það fjöl­skyldan sem ákveður það. Ekki síður sjáum við konur sem hafa ekki val hvort þær fari úr hjóna­band­inu. Þær koma ekki bara vegna ofbeldis maka síns eða fyrr­ver­andi maka, heldur vegna þess að upp­runa­fjöl­skyldan eða tengda­fjöl­skyldan þrýsti mjög á að konan haldi áfram í sam­band­inu og geri þeim ekki þá skömm að verða frá­skilin kona,“ segir Sig­þrúður.

Sig­þrúður Guð­munds­dóttir.

„Þetta teng­ist þjóð­ar­menn­ingu en minnst af öllu trú, þetta getur komið upp í öllum mögu­legum trú­ar­brögðum. Þetta teng­ist þessu feðra­veldi, styrk karla og styrk þeirra eldri.“

Þannig getur fjöl­skyldan verið upp­runnin frá Mið­aust­ur­löndum jafnt sem Asíu­löndum eða Austur-Evr­ópu­ríkjum.

Ásta Kristín Bene­dikts­dóttir.

Ásta Kristín Bene­dikts­dóttir, félags­ráð­gjafi og deild­ar­stjóri Þjón­ustu­mið­stöðvar Laug­ar­dals- og Háa­leitis, segir dæmi um þetta koma inn á borð til sín: „Við sjáum þetta oft hjá fjöl­skyldum af erlendum upp­runa. Eitt dæmið er af ungri stúlku sem leit­aði til bráða­mót­tök­unnar vegna sjálfs­vígs­hættu. Þegar við fórum að ræða við hana kom í ljós að hún bjó við mikið ofbeldi á heim­ili sínu, bæði af hendi föður og bróður síns. Hún sagði frá því að allt frá því að hún var ung stúlka hafi hún og systk­ini hennar ekki mátt eiga íslenska vini heldur þurftu alltaf að koma beint heim eftir skóla og leika við krakka af sama upp­runa. Hún var í vinnu og pabbi hennar tók af henni pen­ing­ana hennar. Hún klæddi sig ekki og hag­aði sér ekki eins og fjöl­skyldan vildi og það stóð til að gifta hana manni af sama upp­runa.“

Eitt dæmið er af ungri stúlku sem leit­aði til bráða­mót­tök­unnar vegna sjálfs­vígs­hættu.

Annað dæmi er ung kona af erlendum upp­runa sem hafði verið með fjöl­skyldu sinni í fríi erlendis. „Hún leit­aði til Toll­gæsl­unnar á Kefla­vík­ur­flug­velli með barnið sitt. Hún hafði verið gift hingað til lands manni sem var samt af erlendum upp­runa og hún tal­aði hvorki íslensku né ensku, hafði engin fjár­ráð og átti ekki sam­skipti við neinn nema fjöl­skyld­una og var beitt ofbeldi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð