Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Baráttan gegn hlýnun jarðar – hvað getur þú gert?

Í nýlegri skýrslu loft­lags­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna er varað við því að tím­inn til að bregð­ast við hlýnun jarðar sé á þrotum og að bylt­ing­ar­kenndra breyt­inga sé þörf ef hlýn­unin eigi ekki end­an­lega að fara úr bönd­unum. Bent er á það séu ekki bara rík­is­stjórnir sem verði að grípa í taumana, heldur þurfa allir að leggj­ast á plóg. Hinn venju­legi Íslend­ingur er þar ekki und­an­skil­inn. Inter­netið er upp­fullt af visku um hvernig hinn venju­legi maður getur með til­tölu­lega ein­földum og öfga­lausum hætti lagt sitt af mörkum í bar­átt­unni og jafn­vel sparað pen­inga um leið.

Baráttan gegn hlýnun jarðar – hvað getur þú gert?
|||||
Mat­ar­sóun er hluti af kolefn­is­fótspori heim­ila.

Matvæli
Neysla mat­væla hefur marg­háttuð áhrif á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Fram­leiðslu á kjöti og mjólk­ur­af­urðum fylgir almennt meiri orku­notkun og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda en ræktun á græn­meti, til að mynda. Þetta á sér­stak­lega við um fram­leiðslu á rauðu kjöti en fram­leiðsla á því er talið valda nær 20% af losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Þannig að meira grænt, minna rautt. Flutn­ingar á mat­vælum standa oft fyrir stórum hluta los­unar og á þetta sér­stak­lega við um inn­flutt mat­væli sem koma ýmist með skipum eða flug­vélum til lands­ins. Kauptu þess vegna frekar inn­lendar vörur og stilltu kaupum á inn­fluttum vörum í hóf. Einnig er um að gera að spara bíl­ferðir og fara sjaldnar í búð­ina en kaupa þá lengra fram í tím­ann.
Mat­ar­sóun er sömu­leiðis hluti af kolefn­is­fótspori heim­ila og tölu­verður hluti af losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi kemur frá urðun á líf­rænum úrgangi, meðal ann­ars mat­vælum. Hvert heim­ili getur sömu­leiðis sparað tugi þús­unda á ári hverju með því að draga mark­visst úr mat­ar­sóun.

Forðastu plast og sér í lagi einnota plast­um­búðir.

Neyslan
Hafðu í huga að flestallt sem þú kaupir úti í búð hefur áhrif á jörð­ina. Þetta á meðal ann­ars við um skó, fatnað og raf­tæki. Bæði tekur fram­leiðslan sinn toll af jörð­inni sem og flutn­ingar heims­horna á milli. Hægt er að spyrja sig hvort þú þurfir virki­lega á þessum hlutum að halda og/eða hvort þú getir end­ur­unnið það sem þú átt fyrir eða keypt notað. Kannski á nágranni þinn eða vinur eitt­hvað á lager. Ef þú þarft að kaupa hlut­inn, spáðu í gæðin og vertu viss um að varan end­ist og athug­aðu hvort varan sé ekki örugg­lega umhverf­is­vottuð. Forðastu plast og sér í lagi einnota plast­um­búðir. Ekki bara eru höfin að fyll­ast af plasti heldur eru meg­in­uppi­staða fram­leiðslu þess olía og jarð­gas.

Sparperur nota 80% minna raf­magn og eru end­ing­ar­meiri.

Heimilið
Bless­un­ar­lega eru íslensk heim­ili umhverf­is­væn í alþjóð­legum sam­an­burði þar sem þau hafa aðgang að hreinu vatni, jarð­varma­hita­veitu og end­ur­nýj­an­legum auð­lindum til raf­magns­fram­leiðslu. En það þýðir ekki að það eigi að spreða, það er gott fyrir veskið og nátt­úr­una að spara orku. Ef öll heim­ili bættu orku­nýtni sína mætti spara orku sem sam­svarar fram­leiðslu 40MW vatns­afls­virkj­unar á ári, sem er um það bil jafn­mikið og afl Ljósa­foss- og Stein­gríms­stöðvar í Soginu til sam­ans. Þess vegna er góð regla að slökkva alltaf á raf­tækjum og ljósum í þeim her­bergjum sem ekki er verið að nota. Sparperur nota 80% minna raf­magn og eru end­ing­ar­meiri. Svo eru ákveðin raf­magns­tæki orku­þjófar, til dæmis þurrk­ar­inn og þess vegna er oft betra að hengja þvott­inn til þerris. Ekki er verra ef efnin sem notuð eru umhverf­is­vottuð eða, enn betra, heima­til­búin úr nátt­úru­legum efnum. Það sama gildir um snyrti­vörur.

Sam­göngur
Það segir sig sjálft að hjól­reiðar og almenn­ings­sam­göngur draga mjög losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Því færri bílar á ferð­inni því minni losun. Vita­skuld geta ekki allir án bíls­ins verið en þar er einnig hægt að velja vist­vænni kosti, til að mynda raf­magns- og met­an­bíla. Þess utan er hægt að keyra minna, til að mynda með betri skipu­lagn­ingu, sleppa ónauð­syn­legum ferðum og/eða nota hjól eða tvo jafn­fljóta í skreppit­úra.
Einnig er hægt að draga úr elds­neyt­is­notkun bíla með öðrum ein­földum ráðum. Lágur loft­þrýst­ingur í dekkjum eykur til að mynda elds­neyt­is­notkun sem og öll við­bót­ar­þyngd. Til að mynda getur far­ang­urs­grind á toppnum, sem ekki er í notkun, aukið elds­neyt­iseyðslu um allt að 20%. Notaðu loft­kæl­ing­una spar­lega og ekki nagla­dekk nema brýna nauð­syn beri til.
Flug­sam­göngur eiga sífellt meiri þátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og sem dæmi má nefna að ein flug­ferð til og frá Kaup­manna­höfn losar um 360 kíló af koltví­sýr­ingi á hvern far­þega. Það jafn­gildir 2.600 kíló­metra akstri meðal fólks­bíls. Farðu færri og styttri flug­ferðir og not­aðu aðra sam­göngu­máta, svo sem lestar­ferðir, þegar þess er kostur.

Best er að snið­ganga einnota plast eins og mögu­legt er og það sem eftir stendur skal fara í grænu tunn­una.

Flokkun og end­ur­vinnsla
Íslend­ingar eru orðnir með­vit­aðri um mik­il­vægi þess að flokka úrgang og end­ur­vinna en betur má ef duga skal. Best er að snið­ganga einnota plast eins og mögu­legt er og það sem eftir stendur skal fara í grænu tunn­una. Ekki gleyma að taka fjöl­nota poka með í búð­ina. Allt sem endar í rusla­tunn­unni okkar endar á einn eða annan hátt í nátt­úr­unni, ýmist er úrgang­ur­inn brenndur eða brotnar niður á löngum tíma á urð­un­ar­stöðum. Bless­un­ar­lega er hægt að flokka nán­ast allt sem fellur til á heim­il­inu og van­þekk­ing er engin afsökun lengur því á vefnum flokkid.sorpa.is er ekki bara hægt að finna ítar­legar leið­bein­ingar um flokkun heldur get­urðu líka séð hvað verður um úrgang­inn eftir að honum er skilað. Mikið af hús­gögnum og fatn­aði má end­ur­nýta með því að skila þeim í nytjagáma eða selja á Facebook.

Í takti við gjöf­ina skal þessu pakkað inn í end­ur­vinn­an­legan pappír eða dag­blöð.

Jól og ára­mót
Hátíð­irnar fram undan eru akkúrat tím­inn til að sýna hversu umhverf­is­lega með­vit­aður og ónæmur fyrir neyslu­hyggj­unni þú ert. Í stað þess að gefa enn eitt dótið eða raf­magns­tækið getur þú gefið gjöf sem mengar lítið sem ekk­ert. Þetta getur verið eitt­hvað heima­gert eða upp­lifun eins og miði í leik­hús eða nám­skeið. Þeir allra hörð­ustu gefa til góð­gerða­mála í nafni við­tak­and­ans. Í takti við gjöf­ina skal þessu pakkað inn í end­ur­vinn­an­legan pappír eða dag­blöð. Eða papp­ír­inn sem þú tókst utan af jóla­gjöf­unum í fyrra. Umhverf­is­væn­ast er að kaupa tré sem ræktað hefur verið í íslenskum skógum.
Vart þarf að taka fram að flug­eld­arnir sem skotið er upp um ára­mótin inni­halda fjöl­mörg efni sem skað­leg eru nátt­úr­unni og heilsu manns­ins. Þess vegna er best að kaupa ann­að­hvort minna eða ekki neitt af flug­eldum og þá ein­göngu flug­elda sem upp­fylla kröfur um efna­inni­hald. Settu svo ára­móta­skrautið ofan í poka og not­aðu aftur á næsta ári.

Vertu með­vit­aður
Á vefnum orku­setur.is er að finna fjöl­mörg góð ráð um mögu­leika til orku­sparn­aðar. Þar er einnig að finna fjölda reikni­véla þar sem meðal ann­ars er hægt að reikna út elds­neytis- og umhverfis­kostnað við akstur, rekstr­ar­kostnað bif­reiða, hversu mikið hægt er að spara með því að hjóla í stað þess að aka og hversu mikið af íslenskum skógi þarf til að binda það magn koltví­sýr­ings sem bif­reið blæs út á ári. Svo fátt eitt sé nefnt. Á vefnum kol­vi­dur.is er sömu­leiðis að finna reikni­vél sem reiknar út þitt eigið kolefn­is­fót­spor og er þá tekið til­lit bæði til akst­urs og flug­ferða.

*Heim­ildir:
Vefur Umhverf­is­stofn­unar
Orku­setur.is
Matarsoun.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð