Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jakki af tengdapabba klikkar aldrei

Inga Rósa Harð­ar­dóttir ólst hálf­part­inn upp í Sautján-veld­inu og fékk að kynn­ast tísku­brans­anum vel þar í heil fimmtán ár. Hún seg­ist hafa upp­lifað skemmti­leg­ustu tísku­bólurnar og er sek um að koma Poplife-skóm og Punk Royal-buxum í tísku. Hún er nýhætt sem aug­lýs­inga- og mark­aðs­stjóri hjá íslenska Glamour og búin að landa drauma­djobb­inu, sem verður þó ekki upp­lýst um að svo stöddu. Inga Rósa er alger konu-kona og því fannst okkur til­valið að fá hana til þess að mæla með því sem hún getur ekki verið án. Það sem kemur upp­tek­inni mömmu í gegnum vik­una, ef svo má segja.

Jakki af tengdapabba klikkar aldrei
||
Farmers Market-jakk­inn.

Hvaða flík er ómissandi í fata­skápnum þínum? Farmers market-jakk­inn minn, Kvísker, er mest not­aða flíkin mín. Hann passar við allt. Þegar maður er alltaf að flýta sér þá skiptir máli að eiga eina kápu sem er klass­ísk en sker þig samt úr hópnum.

Hvað heitir upp­á­hald­s­vara­lit­ur­inn þinn? Rouge Allure Ink frá Chanel í litnum 140 Rosetto og Captive frá MAC klikka ekki.

Hvaða drykkur hjálpar þér í gegnum dag­inn? Ég fæ mér Sjö­strand-kaffi fyrst á morgn­ana ásamt hveitigrasskoti og 1/2 lítra af vatni með chia-fræjum. Það er besta byrj­unin á deg­inum og gefur mér góða orku yfir dag­inn.

Hvar fær maður bestu bux­urnar? Ég er rosa­lega ánægð með Levi’s 501 skinny. Ég á þær í nokkrum litum og sniðið smellpassar mér. Svo klikkar Zara ekki – er alltaf með putt­ann á púls­inum með réttu sniðin og verðið er snilld.

Hvaða dress leit­arðu alltaf í ef þú þarft að vera svo­lítið fín með stuttum fyr­ir­vara? Galla­buxur, hvíta skyrtu og blazer af tengdapabba – svín­virkar alltaf.

Geturðu mælt með besta brjósta­hald­ar­anum? Mín síð­ustu kaup voru tvennir brjósta­hald­arar frá Lindex. Ég bað um mæl­ingu og komst að því að ég hef verið í rangri stærð ansi lengi, haha! Ég er mjög sátt með þá og þeir eru á við­ráð­an­legu verði.

Hvaða snyrti­vörur finn­ast þér ómissandi í tíu mín­útna förðun? Bioeffect micellar-vatnið hentar minni húð ofsa­lega vel, svo nota ég ann­að­hvort Bioeffect day serum eða Abeille Royal double R-serumið frá Guerlain. Ég vel alltaf létta farða en Chanel aqua vitalu­mi­ere og Mac Studio Waterweight eru í upp­á­haldi hjá mér.
Sensai hig­hlight­ing-hylj­ar­inn reddar mér yfir vetr­ar­tím­ann og Sephora-auga­brúna­blý­antur.
Maskar­inn Le volume de Chanel er æðis­legur en stundum sleppi ég mask­ara og nota vara­lit í stað­inn, svona Noru-lúkk úr Skam.
Et voilà!

Hvað lætur þér líða vel með sjálfa þig?
Þegar ég hunskast á lappir þrisvar sinnum í viku kl. 5.45 og fer í rækt­ina/jóga eða í sund.
Hreyfing skiptir öllu máli fyrir mig og þetta er eini tím­inn sem ég kemst óáreitt og fæ tíma fyrir sjálfa mig.

Hvar líður þér best? Ég á heima í dásam­legu húsi í 105 Reykja­vík, inni í skógi.
Þar líður mér alltaf best … heima.

Hvaða ilmur er í upp­á­haldi hjá þér?
Ég hef verið áskrif­andi í mörg ár að Chanel chance eau fraiche en kynnt­ist svo Obsessed frá Calvin Klein og hann er í stöðugri notkun í dag.

Hver er upp­á­halds­versl­unin þín? Ég er algjör Farmers Market-stelpa, finnst alltaf gaman að koma í búð­ina úti á Granda.

Áttu upp­byggj­andi orð eða mottó fyrir okkur?
Já, þessi er erfið en þar sem ég hef eig­in­lega séð um mig sjálf frá átján ára aldri þá er þetta mottó alltaf ofar­lega í huga mér: „There is no elevator to success. You have to take the stairs.”
Svo klikkar „Carpe Diem“ aldrei.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð