Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Icelandair Group kaupir WOW air

Icelandair Group kaupir WOW air

Stjórn Icelandair Group hefur gert kaup­samn­ing um kaup á öllu hlutafé í flug­fé­lag­inu WOW air. Kaupin eru m.a. gerð með fyr­ir­vara um sam­þykki hlut­hafa­fundar Icelandair Group, sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar. Félögin verða rekin áfram undir sömu merkjum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Icelandair til kaup­hall­ar­innar. Í kjöl­farið voru við­skipti með hluta­bréf í Icelandair Group stöðvuð í kaup­höll­inni. Sölu­verðið nemur 2,18 millj­örðum króna en getur hækkað eða lækkað út frá nið­ur­stöðu áreið­an­leikakann­ana á Wow.

Ekki er langt síðan tví­sýnt var um rekstur Wow en félagið komst tíma­bundið í skjól eftir að hafa lokið 60 millj­óna evra skulda­fjár­út­boði um miðjan sept­em­ber. Þó var ljóst að tví­sýnt var um fram­haldið en til stóð að safna meira fé með hluta­fjár­aukn­ingu í kjöl­farið.

Sem gagn­gjald fyrir hlutafé WOW Air munu hlut­hafar WOW air, að upp­fylltum skil­yrðum, eign­ast alls 272.341.867 hluti eða sem sam­svarar um 5,4% hluta­fjár Icelandair Group eftir við­skiptin. Þar af eru 178.066.520 hlutir eða sem nemur 3,5% hluta­fjár gagn­gjald fyrir hið selda hlutafé. Það gagn­gjald getur hækkað í 4,8% og lækkað í 0,0% út frá ákveðnum for­sendum í tengslum við áreið­an­leika­könnun. 94.275.347 hlutir eða sem sam­svarar 1,8% hluta­fjár eru gefin út til selj­enda vegna breyt­ingar á víkj­andi láni í hlutafé. Selj­endur hafa skuld­bundið sig til að halda hlutum sínum í Icelandair Group í a.m.k. 6 mán­uði og helm­ing hlut­anna í a.m.k. 6 mán­uði til við­bótar.

Félögin verða áfram rekin undir sömu vöru­merkjum en sam­eig­in­leg mark­aðs­hlut­deild þeirra á mark­aðnum yfir Atl­ants­hafið er um 3,8%. Með yfir­tök­unni skap­ast tæki­færi til sóknar á nýja mark­aði og auk þess er gert ráð fyrir að ein­inga­kostn­aður Icelandair Group muni lækka. Félagið verður þannig enn betur í stakk búið til þess að veita erlendum flug­fé­lögum öfl­uga sam­keppni á hinum alþjóð­lega flug­mark­aði.

Bogi Nils Bogason, starf­andi for­stjóri Icelandair Group:
“WOW air hefur á und­an­förnum árum byggt upp sterkt vöru­merki og náð miklum árangri á mörk­uðum félags­ins, til og frá Íslandi og yfir Atl­ants­hafið. Það eru mikil tæki­færi til hag­ræð­ingar en félögin verða áfram rekin á eigin for­sendum undir eigin vöru­merkjum og flug­rekstr­ar­leyfum. Íslensk ferða­þjón­usta er grunn­stoð í íslensku  hag­kerfi og það er mik­il­vægt að flug­sam­göngur til og frá land­inu séu í traustum skorðum.”

Skúli Mogensen, for­stjóri og stofn­andi WOW air:
„Ég er mjög stoltur af þeim árangri og þeirri upp­bygg­ingu sem við hjá WOW air höfum náð á und­an­förnum árum og er jafn­framt  þakk­látur fyrir þær frá­bæru við­tökur sem við höfum fengið frá fyrsta degi. Við höfum byggt upp öfl­ugt teymi sem hefur náð eft­ir­tekta­verðum árangri og verið braut­ryðj­andi í lággjalda­flugi yfir Norður-Atl­ants­hafið. Nú tekur nýr kafli við þar sem WOW air fær tæki­færi til að vaxa og dafna með öfl­ugan bak­hjarl eins og Icelandair Group sem mun styrkja stoðir félags­ins enn frekar í alþjóð­legri sam­keppni“.

Boðað verður til hlut­hafa­fundar Icelandair Group á næstu dögum þar sem tekin verður end­an­leg ákvörðun um kaupin. Hlut­hafa­fund skal boða með þriggja vikna fyr­ir­vara hið skemmsta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð