Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Spjallmenni alltaf til þjónustu reiðubúin

Fólk er farið að senda fyr­ir­spurnir á fyr­ir­tæki í gegnum net­spjall í auknum mæli að sögn Sigurðar Svans­sonar. Þá koma svokölluð spjall­menni sér vel að hans mati.

Spjallmenni alltaf til þjónustu reiðubúin

Sigurður Svansson, einn af stofn­endum staf­rænu aug­lýs­inga­stof­unnar SAHARA, og Elvar Andri Guð­munds­son, sam­fé­lags­miðla­full­trúi hjá SAHARA, munu halda erindi í næstu viku um Facebook-chatbots eða spjall­menni eins og það kall­ast á íslensku. Að þeirra mati aukast mögu­leikar fyr­ir­tækja með til­komu spjall­menna.

Spurður út í hvernig þessi svoköll­uðu spjall­menni virka segir Sigurður: „Spjall­menni eða chatbots virka þannig að þau taka yfir sam­skipti við við­skipta­vini sem hafa sam­band við fyr­ir­tæki í gegnum til dæmis Facebook Messen­ger eða net­spjall á heima­síðum fyr­ir­tækja. Spjall­menni eru sett upp með því mark­miði að leysa ákveðnar þarfir við­skipta­vina, hvort sem það er að svara ein­földum spurn­ingum um þjón­ustu, vörur og opn­un­ar­tíma eða leysa flókn­ari mál.“

„Spjall­menni eða chatbots virka þannig að þau taka yfir sam­skipti við við­skipta­vini sem hafa sam­band við fyr­ir­tæki í gegnum til dæmis Facebook Messen­ger eða net­spjall.“

Beðinn um dæmi um flókn­ari verk­efni sem spjall­menni geta leyst segir Sigurður: „Til að mynda að sjá um flug­bókun við­skipta­vinar eða taka á móti mat­ar­pöntun. Svona flókn­ari útfærslur krefj­ast mik­illar fjár­fest­ingar en í dag eru komnar ein­fald­ari og not­enda­vænni lausnir sem gera nær öllum fyr­ir­tækjum, sem eru í ein­hverjum sam­skiptum við við­skipta­vini, kleyft að prófa nýja nálgun.“

Sigurður tekur fram að ein­stak­lingar séu farnir að senda inn fyr­ir­spurnir á fyr­ir­tæki í gegnum Facebook Messen­ger og heima­síður fyr­ir­tækja í auknum mæli. „Með spjall­menum verður auð­veld­ara fyrir fyr­ir­tæki að svara hratt og örugg­lega. Þannig lækkar kostn­að­ur­inn sem fylgir því að hafa starfs­menn að vakta skila­boð frá við­skipta­vinum. Einnig minnka lík­urnar á að við­skipta­vinur leiti annað eftir svörum, vöru eða þjón­ustu sem getur gerst ef við­skipta­vinur þarf að bíða lengi eftir svari.“

Að sögn Sigurðar hefur notkun spjall­menna ýmsa kosti fyrir fyr­ir­tæki því spjall­mennin eru alltaf til þjón­ustu reiðu­búin. En hvað með galla? „Í fljótu þá sé ég ekki marga galla við þetta nema þá að mann­leg nálgun minnkar. Of vél­ræn nálgun þegar maður þarf nauð­syn­lega að fá aðstoð getur haft nei­kvæð áhrif á við­skipta­sam­bandið. Þess vegna er mjög mik­il­vægt að hugsa þetta frá upp­hafi til enda.“

„Of vél­ræn nálgun þegar maður þarf nauð­syn­lega að fá aðstoð getur haft nei­kvæð áhrif.“

Sigurður tekur fram að hlut­verk ein­stak­lings­ins verði áfram mik­il­vægt. „Eins og staðan er núna þá held ég ekki að spjall­menni muni taka alveg yfir sam­skiptin. Hlutverk ein­stak­lings­ins veður áfram mik­il­vægt þó að það þurfi ekki að vera frá upp­hafi sam­tals fram að úrlausn máls. Oft eru við­skipta­vinir að leita eftir svörum við algengum spurn­ingum og þá er hægt að nýta sér spjall­menni. En ég sé ekki fyrir mér að spjall­menni geti tekið alfarið við þegar sam­skiptin eru orðin flókn­ari. Kröfur um per­sónu­leg sam­skipti er enn mjög sterkar. En með þróun gervi­greindar þá er aldrei að vita hvernig þetta endar,“ segir Sigurður.

Þess má geta að fyr­ir­lest­ur­inn verður hald­inn 6. nóv­em­ber kl. 8:30-10:00 í Hyli, Húsi atvinnu­lífs­ins, Borg­ar­túni 35, 105 Reykja­vík. Frítt fyrir félaga í Samtökum versl­unar og þjón­ustu. Aðrir greiða 2.500 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ