Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Hér birtist fólki nýr heimur“

Versl­unin Nexus hefur starfað í einni eða annarri mynd síðan árið 1992 og hefur til sölu mynda­sögur, spil, bækur, leik­föng, DVD-myndir, vegg­spjöld og fleira sem tengja má við nör­disma. Versl­unin flutti nýlega starf­sem­ina í kjall­ar­ann í Glæsibæ, þar sem Útilíf var um ára­bil, og jók umfang sitt um helm­ing auk þess sem gríð­ar­stór spila­salur verður á staðnum. Við hittum fjóra starfs­menn Nexus til að fá inn­sýn í starfið og áhuga­svið þeirra.

„Hér birtist fólki nýr heimur“
||||||
Bryndís Ósk Þ. Ingv­ars­dóttir hefur starfað í Nexus í bráðum ár og sér­hæfir sig í spilum, kvik­myndum, bókum og gjafa­vöru. Mynd / Unnur Magna
Jubilee úr X-mönnum.

Safnar Harry Potter-bókum á mis­mun­andi tungu­málum
Bryndís Ósk Þ. Ingv­ars­dóttir hefur starfað í Nexus í bráðum ár og sér­hæfir sig í borð­spilum, bókum, kvik­myndum og gjafa­vöru. „Mitt fyrsta áhuga­mál innan nör­dism­ans voru Harry Potter og aðrar fantasíu­bækur. Síðan hafa spilin komið inn með árunum því það er svo gaman að geta hitt annað full­orðið fólk og leikið sér,“ segir Bryndís. „Ég safna bæði borð­spilum og Harry Potter-bókum sem hafa verið gefnar út um heim allan á ýmsum tungu­málum. Þær hafa allar sinn sjarma, eru með mis­mun­andi for­síðum og stundum er ólíkum skreyt­ingum bætt við inn í bæk­urnar. Sem áhuga­konu um Harry Potter og þýð­anda finnst mér þetta mjög áhuga­vert, ekki síst menn­ing­ar­lega séð.“
Eigandi Nexus er Gísli Ein­ars­son og versl­unin hefur sér­stöðu á heims­vísu þegar litið er til úrvals. „Oft eru svona versl­anir á erlendri grundu minni og sér­hæfð­ari en hér er lagt upp úr miklu og fjöl­breyttu úrvali,“ heldur Bryndís áfram. „Það er líka ákveðin upp­lifun að koma í Nexus, hand­leika vör­una og fá per­sónu­lega þjón­ustu frá fólki sem gjör­þekkir efni­við­inn. Hér er alltaf kósí stemn­ing og mér finnst mest spenn­andi að fylgj­ast með ung­ling­unum, sér­stak­lega þeim sem búa úti á landi. Hér birt­ist þeim nýr heimur.“

Aðspurð segir hún að nör­dismi sé sann­ar­lega kom­inn í tísku. „Krakkar eru farnir að upp­götva að þeir þurfi ekki að spila hand­bolta, að þau geta átt allskyns önnur áhuga­mál. Það er mikil aukn­ing í hlut­verka­spilum, alltaf nýtt fólk að detta inn í Dungeons and Dragons. Borðspil eru góð til að halda vina­hópum saman, ekki síst þegar fólk er búið að eign­ast krakka. Þá er hægt að bjóða fólki heim og eiga góða kvöld­stund yfir spili – þarf ekki að vera á ein­hverju fyll­eríi.“

Hlín Hrann­ars­dóttir safnar teikni­mynda­sögum, hlut­verka­spilum og D&D-ten­ingum. Mynd / Unnur Magna

Á leið á tölvu­leikja­ráð­stefnu
Hlín Hrann­ars­dóttir er sér­fræð­ingur í teikni­mynda­sögum, hlut­verka­spilum og almennum popp­kúltúr og hefur unnið í Nexus í bráðum tvö ár. Hún safnar teikni­mynda­sögum, hlut­verka­spilum og D&D-ten­ingum. „Þessir ten­ingar eru not­aðir í hlut­verka­spilum eins og Dungeons and Dragons þar sem ten­ing­unum er kastað og í korta­spilum eins og Magic: The Gather­ing en þá er engum ten­ingum kastað en tutt­ugu-hliða­ten­ing­ur­inn not­aður fyrir líf. Byrjar í 20 lífum og svo skiptir þú honum á lægri tölu þegar þú missir líf. Hinir ten­ing­arnir eru þá not­aðir sem karakt­erar úti á vell­inum.“
Hlín var með bás á Midgard, fyrstu alhliða nörda­ráð­stefn­unni sem haldin hefur verið á Íslandi, í sept­em­ber síð­ast­liðnum. „Hún var vel heppnuð og náði að flytja anda Nexus út til fólks­ins. Svo hef ég farið á keppn­ina NCC, Nordic Cosplay Championship í Svíþjóð sem er haldin árlega. Þar keppa Norð­ur­löndin sín á milli um bestu bún­ing­ana sem fólk býr til út frá karakt­erum úr tölvu­leikjum, teikni­myndum og þáttum. Þessi keppni er sýnd í rík­is­sjón­varpi Sví­þjóðar auk Noregs og Dan­merkur. Hún er ekki sýnd hér á landi enda hefur Ísland sjaldan tekið þátt. Eftir nokkra daga fer ég svo á Blizzcon-tölvu­leikja­ráð­stefnu í LA,“ segir Hlín.

Óskar Árnason segir að með komu Facebook hafi nör­dinn fengið upp­reista æru þar sem mynd­ast hafi aðgengi­legur vett­vangur fyrir þennan hóp til að tala saman. Mynd / Unnur Magna

Elur upp efni­lega nörda
Óskar Árnason er hús­gagna­smiður að mennt og starfar sem véla­maður á fræs­ara hjá Fást efh. sem sér um hönnun, sölu og fram­leiðslu á plexí­gleri og véla­plasti. Aðra hverja helgi starfar Óskar hins vegar í Nexus og er sér­fræð­ingur í borð­spilum. „Upp­á­halds­spilið mitt þessa dag­ana er Brass sem er hag­fræðispil –taktískt korta­drifið iðn­aðar- og upp­bygg­ing­ar­spil. Það fangar ákveðið tíma­bil í sögu Bret­lands og snýst meðal ann­ars um hvort menn ætli að lifa á vöxtum eða taka lán,“ segir Óskar og hans upp­á­halds­við­skipta­vinir eru fólk sem búið er að spila ein­földu spilin og er að detta í aðeins flókn­ari borð­spil. „Það er gaman að útskýra og kynna spilin fyrir þeim sem eru til­búnir að læra eitt­hvað djúsí.“
Óskar segir að með komu Facebook hafi nör­dinn fengið virð­ingu en þar hafi mynd­ast aðgengi­legur vett­vangur fyrir þennan hóp til að tala saman í stað þess að fólk væri hvert í sínu lagi. Eftir að hann stofn­aði Borð­spila­spjallið hafa 1000 manns bæst í hóp­inn. Óskar á tvo syni, fjög­urra og sjö ára, og hann segir að þeir séu efni­legir nördar. „Eldri var að horfa á Lord of the Rings í fyrsta sinn, er búinn með Hobbita-mynd­irnar og svo er legið yfir Star Wars. Við fjöl­skyldan söfnum svo öll Pop-fígúrum, strák­arnir safna Star Wars, konan mín safnar Harry Potter og ég gríp einn og einn inn á milli úr mynda­sögum og bókum,“ segir Óskar sem er á leið­inni á Essen Spiel-spila­ráð­stefnu í Þýska­landi ásamt þremur öðrum starfs­mönnum úr Nexus. „Ég fór líka í fyrra og ráð­stefnan er stærst sinnar teg­undar í heim­inum. Þarna er bara fjallað um spil, af hund­ruðum útgef­enda og spilin um 1200 tals­ins.“

Lords of Waterdeep er spilið sem kveikti áhuga Magnúsar Gunn­laugs­sonar á borð­spilum og hann er búinn að kenna það tugum ein­stak­linga. Mynd / Unnur Magna

Fylgist með tölvu­leikja­keppnum
Magnús Gunn­laugs­son hóf að selja borð­spil hjá Nexus fyrir ári en ástríða hans á borð­spilum byrj­aði fyrir sjö árum. „Þá komst ég á fleygi­ferð í þetta eftir að hafa spilað klassík­ina Catan eins og svo margir aðrir. Svo datt ég niður á þætti á YouTube sem heita TableTop með Wil Wheaton, sem margir þekkja kannski úr Star Trek-þátt­unum, en hann er erk­inörd og í gegnum þessa þætti kynnt­ist ég fleiri borð­spilum. Ég er gæinn í vina­hópnum sem á öll spilin og und­irbý spila­kvöldin sem haldin eru tvisvar til þrisvar í viku. Spilin sem hafa hvað mest lent á borð­inu að und­an­förnu eru Pandemic Legacy, Arkam Horror Card Game, T.I.M.E Stories og Star Wars Destiny. Upp­á­halds­spilið mitt er hins vegar Lords of Waterdeep en það er spilið sem kveikti áhuga minn á þessu áhuga­máli og ég er búinn að kenna það tugum ein­stak­linga,“ segir Magnús.

Jon Snow úr Game of Thrones.

Hann safnar Overwatch pop-fígúr­unum en það er sá tölvu­leikur sem hann spilar hvað mest í dag. „Per­són­urnar í leiknum eru fjöl­breyttar og leik­ur­inn er hraður og skemmti­legur. Ég er ekki mik­ill safn­ari í mér en finnst þessar fígúrur flottar og á þær allar nema eina sem er orðin ófá­an­leg, Soldier 76. Þetta geta orðið verð­mætar safn­vörur þegar fram líða stundir. Minn upp­á­halds heitir Zenyatta, vél­menna­munk­ur­inn sem gætur bæði læknað sam­herja og deilt út skaða á and­stæð­inga.“
Fylgist þú með heims­meist­ara­keppn­inni í tölvu­leiknum Overwatch? „Já, ég fylgist bæði með Overwatch World Cup og Overwatch Legue þar sem ég held með lið­inu Houston Outlaws. Þetta eru spenn­andi keppnir og ég fylgist með í beinni útsend­ingu gegnum Netið á síðu sem heitir Twitch,“ segir Magnús.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð