Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Minni útvarpstónlist og meiri útrás

Rapp­ar­inn Gaukur Grétuson eða GKR sendi frá sér nýtt efni fyrr í mán­uð­inum, plöt­una Útrás sem hefur að geyma sjö ný lög.

Minni útvarpstónlist og meiri útrás

Beðinn um að lýsa nýjasta efn­inu sínu segir rapp­ar­inn GKR: „Þetta er aðeins minni útvarps­tón­list heldur en ég hef gert áður. Þetta er algjört rapp, það er meiri útrás í þessu. Ég var að fók­usera á að gera rapp“. Hann tekur svo fram að hann kalli nýja efnið ekki plötu, frekar mixtape. „Ég lít ekki beint á þetta sem plötu vegna þess að ég myndi vilja eyða meiri vinnu í plötu, bæði í tón­list­ina og allt „conceptið“ í kringum hana,“ útskýrir GKR sem varði um tveimur mán­uðum að vinna lögin á Útrás.

Spurður út í hvort hann sé aðeins að skipta um stíl með þessu nýja efni segir hann: „Já, kannski aðeins. Eldri tón­listin mín er aðeins lit­rík­ari á meðan þetta nýja er aðeins dekkra, meiri læti og meira rapp. Maður er nátt­úru­lega alltaf að þró­ast, þroskast og læra.“

„Eldri tón­listin mín er aðeins lit­rík­ari á meðan þetta nýja er aðeins dekkra.“

GKR hefur fengið góð við­brögð við nýja efn­inu að eigin sögn. „Við­brögðin hafa verið mjög góð, það kom smá á óvart. Sú tón­list sem er almennt vin­sæl í dag er meira svona poppað rapp en þetta nýja efni mitt er ekki þannig. Þess vegna hélt ég að Útrás myndi bara virka fyrir fólk sem hlustar mikið á rapp, að flestir ættu erfitt með að skilja „vibe-ið“ í þessu. En fólk er að peppa þetta og virð­ist fíla þetta vel. Alls konar fólk. Það er skemmti­legt!“

Þegar GKR er spurður út í hvort hann spái mikið í hlust­un­ar­tölum, hvað nái vin­sældum meðal almenn­ings og hvað ekki, segir hann: „Alveg eitt­hvað, en bara til að vita hvað fólk er að fíla. Ég vil ekki festa mig í þessu því ef ég myndi gera það þá myndi ég ekki þora að gefa út tón­list. Ég skoða alveg hvað fólk er að fíla og hlusta mest á en ég vil ekki ein­blína of mikið á það.“

Erfitt að velja uppáhald

Aðspurður hvort hann eigi sér upp­á­halds­lag af Útrás á GKR erfitt með að svara. „Það er erfitt að segja. Lagið Áttaviti er óvin­sælasta lagið hjá hlust­endum en í miklu upp­á­haldi hjá mér. Það er svo­lítið öðru­vísi og svo gaman að rappa það live. Það er öðru­vísi hljómur í því. En svo eru það lögin Útrás og Hellaður, það þykja mér vera skemmti­leg­ustu lögin.“

GKR tekur líka fram lagið Úff sem rapp­ar­inn Birnir er í. „Ég var búinn að gera lagið sjálft en ég hélt ekk­ert endi­lega að það væri neitt spes. Svo kemur Birnir og heyrir þetta lag í stúd­íó­inu og var mjög hrif­inn. Hann vildi rappa inn á það og stemmn­ingin var rosa skemmti­leg í stúd­íó­inu…mér finnst það skila sér. Það er svo gaman að gera tón­list með fólki sem maður fílar.“

„Svo eru það lögin Útrás og Hellaður, það þykja mér vera skemmti­leg­ustu lögin.“

Að lokum segir GKR nýja efnið fjalla að vissu leyti um sleppa fram af sér beisl­inu. „Maður verður að leyfa sér að gera hluti og læra af þeim. Að þora að missa sig smá og prófa nýja hluti, innan vissra marka auð­vitað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ