Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Tískubólur eftirhrunsáranna

Í til­efni þess að 10 ár eru liðin frá falli íslensku bank­anna rifjar Mannlíf upp helstu tísku­strauma eft­ir­hrunsár­anna.

Tískubólur eftirhrunsáranna

Það var ekki bara efna­hagur Íslands sem tók stakka­skiptum við efna­hags­hrunið. Öll sam­fé­lags­gerðin breytt­ist. Það sem áður þótti sjálf­sögð neyslu­hegðun varð skyndi­lega litin horn­auga og nýjar stefnur og straumar tóku yfir. Í til­efni þess að 10 ár eru liðin frá falli íslensku bank­anna rifjar Mannlíf upp helstu tísku­strauma eft­ir­hrunsár­anna.

Prjónaskapur og hannyrðir

Vin­sældir prjóna­skapar og hvers kyns hann­yrða juk­ust gríð­ar­lega eftir hrun. Líkt og áður fyrr voru sauma­klúbbar orðnir vett­vangur handa­vinnu í stað Tupperware- og hjálp­ar­tækja­kynn­inga. Garn og prjóna­tíma­rit seld­ust í bíl­förmum og víðs vegar um land opn­uðu litlar prjóna­búðir. Eitt hita­málið eftir hrun var þegar upp­lýst var að íslenska lopa­peysan, sem naut mik­illa vin­sælda eftir hrun, var í raun og veru prjónuð í Kína en seld sem íslensk hönnun án nokk­urra upp­runa­vott­orða.

Hamstur

Mitt í allri ringul­reið­inni sem fylgdi hruni bank­anna var greint frá mögu­legum vöru­skorti í land­inu ef ske kynni að greiðslu­þrotið yrði algjört. Margir tóku þá til við að hamstra mat úr versl­unum, jafn­vel mat­vörum sem engum hefði dottið í hug að láta inn fyrir sínar varir nokkrum vikum fyrr. Aldrei kom til vöru­skorts og því ekki ólík­legt að ein­hverjir eigi enn lager af nið­ur­soðnum fisk­búð­ingi eða Campbell´s-súpum uppi í skáp hjá sér.

Lopapeysa og Mugison

Við hrunið leit­uðu brodd­borg­arar lands­ins sér að jarð­teng­ingu og fundu hana í lopa­peys­unni sem varð á skömmum tíma ein­kenn­is­klæðn­aður íslensku þjóð­ar­innar og leysti þar með jakka­fötin af hólmi. Allt íslenskt varð meg­in­streymis og skyndi­lega var Mugison orð­inn að ofur­stjörnu sem ítrekað troð­fyllti Hörpu, enda íslensk­ari lista­maður vand­fund­inn. Mugison var hip­ster­inn holdi klæddur og í kjöl­farið mátti sjá karl­menn úr öllum lögum sam­fé­lags­ins skarta þykku og miklu skeggi.

Góði hirðirinn

Góði hirðirinn sem selur not­aða muni varð ein vin­sælasta verslun lands­ins eftir hrun. Biðraðir mynd­uð­ust fyrir utan versl­un­ina skömmu fyrir hádegi þegar nýjar vörur voru teknar inn og var hrein­lega barist um bestu bit­ana. Nú er öldin önnur því end­ur­vinnslu­stöðvar Sorpu eru smekk­fullar og Góði hirðirinn hefur neyðst til að afþakka muni því að þeir selj­ast ekki. Nýverið hefur meira að segja borið á kvört­unum yfir háu verð­lagi í Góða hirð­inum og honum jafn­vel líkt við Epal.

Framboð

Fjöl­margir töldu sig eiga erindi í áhrifa­stöður eftir hrun, en líkt og svo oft áður var fram­boðið langt umfram eft­ir­spurn­ina. Þannig voru 14 stjórn­mála­flokkar og Sturla Jónsson í fram­boði til þings árið 2013. Þá eru ónefndar þær hreyf­ingar sem ætl­uðu í fram­boð en hættu við þegar ljóst var að stemn­ingin var engin. Tvö­faldar kapp­ræður og stórir kjör­seðlar eru orðin venjan fremur en und­an­tekn­ingin. Kosn­ing­arnar til stjórn­laga­þings voru svo sér­kap­ít­uli út af fyrir sig þar sem 522 börð­ust um sætin 25 sem voru í boði. Einn fram­bjóð­andi hlaut eitt atkvæði, vænt­an­lega sitt eigið.

Lukkuriddarar

Lukku­ridd­arn­arnir létu ekki ein­göngu til sín taka á stjórn­mála­svið­inu, heldur einnig í við­skipta­líf­inu. Margar brjál­aðar hug­myndir voru á sveimi fyrir hrun og þótt þeim hafi kannski fækkað eftir hrun, þá voru þær allt eins brjál­aðar og tóku á sig aðra mynd – iðu­lega í til­felli dul­ar­fullra útlendra auð­manna sem ætl­uðu að nota dýr­mætan gjald­eyri til að skapa haug af störfum. Nærtæk dæmi eru hug­myndir um 200 millj­arða fjár­fest­ingu ECA Programs sem ætl­aði að þjálfa her­flug­menn á Kefla­vík­ur­flug­velli en reynd­ist þegar á botn­inn var hvolft skýja­borgir einar. Eða þegar fyr­ir­tæki að nafni Northern Lights Energy reyndi að fá íslenskan rík­is­borg­ara­rétt fyrir tíu kanadíska auð­menn í gegnum Alþingi.

Náttúruhobbí

Íslend­ingar eru miklar hópsálir. Þegar nágrann­inn kaupir sér græju þarf Íslend­ing­ur­inn að eign­ast eins græju, ef til vill eilítið dýr­ari. Þetta á líka við um áhuga­málin. Eftir hrunið þótti ekki fínt að svitna inni í lík­ams­rækt­ar­stöðvum, allra síst þeim sem voru tengdar áber­andi per­sónum í við­skipta­líf­inu. Og áhuga­málin urðu fínni eftir því sem tengslin við nátt­úr­una voru meiri. Allra fín­ast þótti sjó­sundið sem ein­göngu sér­vitr­ingar höfðu stundað fyrir hrun, svo fóru allir að hlaupa og það jafn­gilti nán­ast úrsögn úr sam­fé­lag­inu að birta ekki sjálfu úr Reykja­vík­ur­mara­þoni. Svo þegar efna­hag­ur­inn vænk­að­ist eilítið hopp­aði hjörðin í gult spandex og upp á racer-hjólin.

Einfaldur og þjóðlegur matur

Við hrunið þótti skyndi­lega óvið­eig­andi að sáldra gull­ryki yfir mat­inn sinn eða bjóða upp á prjál eins og prosciutto eða carpaccio. Og að skála í kampa­víni varð algjört tabú. Ein­fald­leik­inn tók yfir og skyndi­lega var ólík­leg­asta fólk farið að taka slátur og borða inn­mat. Bjúgu og hamsatólg varð annað og meira en bara mötu­neytis-/iðn­að­ar­manna­fæða. Þessi bylgja hvarf þó fljótt með túrista­sprengj­unni þegar nýmóð­ins veit­inga­staðir spruttu upp eins og gorkúlur. Sölu­tölur Vín­búð­ar­innar sýna að þjóðin skálar í sjampói eins og árið 2007 og hver ein­asta búlla skreytir sig með orð­inu „mat­höll“. Þegar kjúklinga­stað­ur­inn í Suð­ur­veri fer að kalla sig Suðurver mat­höll, þá er næsta hrun handan við hornið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ