Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Aktívistar gegn nauðgunarmenningu senda yfirlýsingu á þingmenn

Þing­mönnum barst bréf í dag frá sam­tök­unum Aktí­vistar gegn nauðg­un­ar­menn­ingu. Þrír þing­menn hafa svarað bréf­inu.

Aktívistar gegn nauðgunarmenningu senda yfirlýsingu á þingmenn
|

Samtökin Aktí­vistar gegn nauðg­un­ar­menn­ingu sendu í dag frá sér yfir­lýs­ingu gegn frum­varpi Brynjars Níels­sonar. Samtökin sendu yfir­lýs­ing­una til þing­manna í dag ásamt 156 und­ir­skriftum.

Elísabet vill fá við­brögð frá þing­mönnum.

„Yfir­lýs­ingin er gerð til að vekja öll sem sitja í ákvörð­un­ar­stól á þingi til umhugs­unar um hvers­konar afleið­ingar svona refsi­lög myndu hafa og til að benda á hvernig kerfið er enn þá að brjóta niður þau sem þurfa að flýja ofbeldi. Kerfið tekur ekk­ert til­lit til þeirra sem eru að reyna að fá frelsi undan ofbeld­is­mönnum og bein­línis hundsar gögn og frá­sagnir sem sýna fram á ofbeldi. Að koma aftur með þetta frum­varp nán­ast óbreytt er eins og ein­hver stór­kost­leg veru­leikafirr­ing, sér­stak­lega eftir alla þá umfjöllun sem þessi mál hafa fengið und­an­farið,“ segir Elísabet Ýr Atla­dóttir um yfir­lýs­ing­una.

„Við viljum sjá öll á þingi rísa upp gegn þessu frum­varpi, eða að minnsta kosti gera afstöðu sína til þess skýra. Það þarf að koma skýrt fram að svona árás á konur sem eiga sér enga vörn og eru að flýja ofbeldi er óásætt­an­legt. Við krefj­umst þess að það sé tekið afstöðu með þolendum,“ útskýrir Elísabet og bætir við að Andrés Ingi Jónsson, Björn Leví Gunn­ars­son og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir eru nú þegar búin að svara bréfi sam­tak­anna.

Yfir­lýs­ing­una má lesa hér fyrir neðan.

Höfnun á frum­varpi 126/149 – Yfir­lýs­ing Aktí­vista gegn nauðg­un­ar­menn­ingu

Vegna fram­lagn­ingar á​ frum­varpi 126/149​ – um breyt­ingar á barna­vernd­ar­lögum sem þau Brynjar Níelsson, Ásmundur Frið­riks­son, Bryndís Har­alds­dóttir, Jón Gunn­ars­son, Njáll Trausti Frið­berts­son, Óli Björn Kárason og Páll Magn­ús­son hafa öll lagt nafn sitt við.

Við, Aktí­vistar gegn nauðg­un­ar­menn­ingu, finnum okkur knúnar til að leggja fram eft­ir­far­andi yfir­lýs­ingu og gerum þá kröfu til allra sem á Alþingi sitja að þau taki skýra afstöðu á móti ofbeldi gegn konum og börnum ellegar geri skýra grein fyrir afstöðu sinni.

Hvenær þykir ykkur nóg komið? Hafa frá­sagnir þolenda af ofbeldi í nánum sam­böndum og fjöl­skyldum ekki farið nógu hátt til að ná athygli ykkar? Hversu hávær og sker­andi þurfa sárs­auka­ópin að vera til að þau komi ykkur við? Hversu mörg líf þarf að leggja í rúst og hversu marga þarf að brjóta niður og kúga til að þið opnið augun? Hið opin­bera tekur nú þegar þátt í kerf­is­lægu nið­ur­broti og ofbeldi með ákvarð­ana­töku sinni og fremur mann­rétt­inda­brot í skjóli valds. Hversu oft þarf þetta frum­varp, sem vinnur aug­ljós­lega gegn hag allra barna og vinnur beint gegn þolendum ofbeldis, að vera lagt fram áður en þið áttið ykkur á alvar­leika máls­ins?

„Þegar ég les á net­inu að móðir sé að beita föður ofbeldi með því að tálma umgengni án þess að vita hvað er í gangi, eða hvað býr að baki tálm­un­inni, þá verður maður svo­lítið reiður og á það til að missa trúna á fólki yfir höfuð,“ – ​Auður Emilía í við­tali við Frétta­blaðið.

Við segjum að nóg sé komið. Við teljum það lág­marks­kröfu að þau sem sitja á ákvörð­un­ar­stól þings­ins horf­ist í augu við afleið­ing­arnar sem frum­varp sem þetta myndi hafa næði það fram að ganga.

Við teljum mik­il­vægt að þið gerið ykkur grein fyrir hvað lög­fest­ing á skömmun for­eldris (móður) raun­veru­lega þýðir fyrir börn og að þið áttið ykkur á því hversu skað­leg við­horf frum­varpið end­ur­speglar. Börn sem af ein­hverjum ástæðum njóta ekki umgengni við annað for­eldri sitt eru ber­sýni­lega ekki betur sett með því að hinu for­eldr­inu sé varpað í fang­elsi. Þá er ríkið sjálft að svipta barnið rétt­inum á umgengni við það for­eldri sem afplánar refsi­vist og jafn­vel svipta barnið eina for­eldr­inu sem verndar það. Þessi hugsun er ekki bara órök­rétt heldur er hún í hreinni mót­sögn við alla hugsun að baki barna­lögum, barna­vernd­ar­lögum og Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Kerfið í dag verkar sem vog­ar­afl fyrir ofbeld­is­mann sem reiðir til höggs. Kerfið sem seg­ist ætla vernda fyrir ofbeldi bregst þolendum ofbeldis hvað eftir annað. Frá­sagnir þeirra sem hafa flúið heim­il­is­of­beldi og þurfa að reiða sig á rétt­ar­á­kvörðun kerf­is­ins vegna barna sinna eru skýr vitn­is­burður um það.

Þögn ykkar er vopn í höndum ofbeld­is­manna. Skiln­ings­leysi og hundsun á hættu­legum aðstæðum þolenda ofbeldis er ofin inn í við­horf kerf­is­ins og mæður og börn sem eru þolendur heim­il­is­of­beldis verða því fyrir ofbeldi úr öllum áttum. Þau verða fyrir ofbeldi heima hjá sér og einnig ofbeldi af hálfu rík­is­valds­ins. Van­mátt­ur­inn verður alger þegar það er yfir­valdið, rík­is­valdið, sem starfar í skjóli laga sem tekur afstöðu með ger­and­anum, stað­festir hans mál­stað og ljáir honum lög­mæti og tekur þannig beinan þátt í ofbeld­inu. Þolendur ofbeldis eru algjör­lega ber­skjald­aðir.

Frumvarp um refsi­lög­gjöf í umgengn­is­málum er ekki lausn á vel skil­greindum vanda. Frum­varpið er enn eitt kúg­un­ar­tækið í þágu ofbeld­is­manna og gefur þeim ger­ræð­is­legt vald í lífi barna og kvenna. Þið kallið þetta frum­varp til breyt­inga á barna­vernd­ar­lögum. Við köllum þetta frum­varp til laga gegn vernd barna.

„Börn sem eru þolendur heim­il­is­of­beldis og kyn­ferð­is­of­beldis föður eru þvinguð í sam­skipti við ofbeld­is­mann. Þegar ekki er tekið á ger­anda ofbeldis með við­eig­andi hætti dregur það stór­lega úr líkum á því að við­kom­andi láti af ofbeld­inu. Þetta stuðlar hvorki að vel­ferð né þjónar hags­munum barna. Þetta er í raun aðför að vel­ferð og rétt­indum barns.“ – Sigrún Sif Jóels­dóttir í opnu bréfi til dóms­mála­ráð­herra

Það ætti að vera aug­ljóst að það er ekki börnum fyrir bestu að for­eldri þess sé refsað með fang­els­is­vist fyrir að upp­fylla for­sjár­skyldu sína;fyrir að vernda þau fyrir ofbeldi og van­virð­andi hátt­semi. Sýslu­maður sem virð­ist enn taka geð­þótta­á­kvarð­anir í umgengn­is­málum þvert á skýrslur og gögn sem stað­festa ofbeldi telur frá­sagnir af ofbeldi og meint nei­kvætt við­horf móður vegna þess, skaða börn meira en stað­fest ofbeldi sam­kvæmt Barna­húsi, lög­reglu­skýrslum, greina­gerðum með­ferð­ar­að­ila, fag­fólks, barna­vernd­ar­málum, áverka­vott­orðum og svo fram­vegis. Þolendur ofbeldis fá þau skila­boð að það skipti engu máli þó brotið sé gegn þeim. Órétt­látt við­horf gagn­vart þolendum í umgengn­is­málum gerir þeim ókleift að vernda börn sín fyrir ofbeldi vegna þess að „réttur barns­ins til að umgang­ast báða for­eldra“ er lát­inn trompa rétt barns­ins til öryggis.

„Ef nið­ur­staða fag­að­ila, áhyggjur for­sjár­for­eldris, afger­andi nið­ur­staða Barna­húss og sjón­ar­mið barn­anna hafa ekk­ert vægi í mati sýslu­manns og dóms­mála­ráðu­neytis á ofbeldi á barni, hvaða gögn gera það þá?“ – Nafn­laust​ bréf móður til dóms­mála­ráð­herra

Inngrip stjórn­valds í umgengni barna við for­eldra sína þarf fyrst að vera rétt­mætt áður en gripið er til aðgerða til að refsa eða þvinga þá sem brjóta umgengn­is­rétt. Þegar stjórn­völd líta ekki til gagna frá Barna­húsi um kyn­ferð­is­of­beldi á barni, til opinna barna­vernd­ar­mála, mats fag­að­ila og vilja barn­anna sjálfra í rétt­ar­á­kvörðun sinni eru þau ein­fald­lega ekki að við­ur­kenna ofbeldi á barni. Vinnu­regla barna­verndar er sú að kanna ekki aðstæður á heim­ili umgengn­is­for­eldris sér­stak­lega. Ekki er talin þörf á inn­gripi eða könnun barna­verndar ef talið er að for­sjárað­ili (móðir) verndi barnið frá ofbeldi eða van­virð­andi hátt­semi umgengn­is­for­eldris. Þegar rétt­ar­á­kvörðun vísar upp­lýs­ingum um ofbeldi á barni eða fjöl­skyldu frá með þeim hætti sem hún gerir, barna­vernd kannar ekki aðstæður barns á heim­ili umgengn­is­for­eldris og for­sjár­for­eldri er síðan dæmt í fang­elsi fyrir að hafna umgengn­is­rétti til verndar barn­inu. Þá hafa stjórn­völd brugð­ist barn­inu full­kom­lega í nafni jafns réttar umgengn­is­for­eldris (föður).

Réttur barns er end­ur­skil­greindur sem réttur föður og glæpur móður.

Ef það er raun­veru­legur vilji stjórn­valda að upp­ræta heim­il­is­of­beldi og standa vörð um hags­muni barna þá er það algjört frum­skil­yrði að ofbeld­inu sé ekki afneitað, afsakað, rétt­lætt eða end­ur­skil­greint á kostnað þolenda þegar það á sér stað. Á meðan kerfið kemur ekki til móts við þolendur og tekur ekki á því ofbeldi sem er til staðar þá hefur frum­varp um refs­ingar á for­sjár­for­eldrum engan til­gang annan en að ýta undir kúgun og ofbeldi.

Refsi­vist vegna brots á umgengn­is­samn­ingi sem skil­greint er með for­dóma­fullri ákvörð­una­töku út frá mýt­unni um vondu mömm­una sem ásakar pabbann rang­lega fjallar ekki um rétt­læti, heldur hefnd og vald­beit­ingu. Aðeins morð á for­eldri í aðstæðum sem þessum er nær full­komnun á ofbeld­inu en fang­elsun.

„Þetta var auð­vitað mjög stór stund í lífi okkar, eitt­hvað sem við höfðum beðið lengi eftir en á sama tíma voru þetta ljúfsár tíð­indi þar sem sömu mis­tökin eru gerð trekk í trekk og af sama fólki. Það hefur ekk­ert breyst í barna­vernd­ar­málum, börn eru neydd í umgengni við ofbeld­is­fulla feður, Danir og fleiri lönd í Evrópu halda áfram að dæma mæður eins og mig í fang­elsi fyrir að verja börn sín fyrir ofbeldi,“ Hjördís Svan Aðal­heið­ar­dóttir​ í við­tali við Mannlíf

Tími afstöðu-og ábyrgð­ar­leysis gagn­vart ofbeldi er lið­inn og við getum ekki lengur forð­ast það að horfast í augu við raun­veru­leik­ann. Nú er tæki­færið til að taka afdrátt­ar­lausa afstöðu með þolendum og fyrsta skrefið er að mót­mæla þessu frum­varpi gegn vernd barna kröft­ug­lega. Þess vegna krefj­umst við svara frá öllum á þingi. Ofbeldi í fjöl­skyldum er ekki einka­mál. Þið sem sitjið á valda­stóli, þið hafið ákvörð­un­ar­valdið. Standið með þolendum ofbeldis.
Við bíðum svara frá ykkur öllum.

Und­ir­skriftir Aktí­vista gegn nauðg­un­ar­menn­ingu:

1. Sigrún Sif Jóels­dóttir
2. Helga Vala Garð­ars­dóttir
3. Guðrún Línberg Guð­jóns­dóttir
4. Elísabet Ýr Atla­dóttir
5. Þór­hildur Sif Þór­munds­dóttir
6. Herdís Ósk Svein­björns­dóttir
7. Rut Ein­ars­dóttir
8. Kristín Inga Jesp­er­sen
9. Sara Mansour
10. Anna Jóna Heim­is­dóttir
11.Hildur Rós Guð­bjarg­ar­dóttir
12.Hrafndís Katla Elí­as­dóttir
13.Svava Björg Mörk
14.Elfa Kristín Jóns­dóttir
15.Nína Vig­dís­ar­dóttir Björns­dóttir
16.Anna Sigrún Bene­dikts­dóttir
17.Eva Lilja Rún­ars­dóttir
18.Andrea Eyland
19.Hjördís Svan Aðal­heið­ar­dóttir
20.Candice Michelle Goddard
21.Helga Gests­dóttir
22.Sólborg Birg­is­dóttir
23.Inga María Vil­hjálms­dóttir
24.Helga Ólöf Þór­dís­ar­dóttir
25.Ásta Knúts­dóttir
26.Fríða Braga­dóttir
27.Halldóra Jón­as­dóttir
28.Berglind K.Þór­steins­dóttir
29.Erna Dýrfjörð Stef­áns­dóttir
30.Erla Guðrún Gísla­dóttir
31.Sigrún Fanney Sig­mars­dóttir
32.Hugrún Jóns­dóttir
33.Sunna Ýr Ein­ars­dóttir
34.Ingi­björg Sig­urð­ar­dóttir
35.Ingi­björg Lilja Þór­munds­dótti
36.Jóhanna Mar­grét­ar­dóttir
37.Margrét Birna Henn­ingsd. Jakob
38.Olga Björk Ólafs­dóttir
39.Sunna Björg Sím­on­ar­dóttir
40.Ásta Þór­is­dóttir
41.Ninna Karla Katrín­ar­dóttir
42.Hildur Sig­urð­ar­dóttir
43.Helga Hrönn Nordfj. Þórð­ar­dóttir
44.Heiðrún Arna Frið­riks­dóttir
45.Sigríður Ásta Árna­dóttir
46.Ástrós Hreins­dóttir
47.Harpa Hjart­ar­dóttir
48.Kristín Vil­hjálms­dóttir
49.Harpa Odd­björns­dóttir
50.Hildur Björk Hörpu­dóttir
51.Fanný Rósa Bjarna­dóttir
52.Aþena Mjöll Pét­urs­dóttir
53.Guðný Elísa Guð­geirs­dóttir
54.Áslaug Hauks­dóttir
55.Guðrún Hulda Guð­munds­dóttir
56.Hafdís Arn­ar­dóttir
57.Freydís Dögg Stein­dórs­dóttir
58.Steinunn Ýr Ein­ars­dóttir
59.Tinna Björk Páls­dóttir
60.Tanja M. Ísfjörð Magn­ús­dóttir
61.Elín Jóhanna Bjarna­dóttir
62.Kristín Th. Haf­steins­dóttir
63.Vibeke Svala Haf­steins­dóttir
64.Eva Dagbjört Óla­dóttir
65.Nótt Ara­dóttir
66.Margrét Bald­urs­dóttir
67.Sædís Hrönn Sam­ú­els­dóttir
68.Hildur Sig­urð­ar­dóttir
69.Bjarndís Helga Tóm­as­dóttir
70.Kristín Erla Bene­dikts­dóttir
71.Frigg Thorlacius
72.Katrín Sigríður Júlíu Stein­gríms­dóttir
73.Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir
74.Ragna Björk Ragn­ars­dóttir
75.Signý Rut Krist­jáns­dóttir
76.Halldóra Haf­steins­dóttir
77.Sigrún Sól Ólafs­dóttir
78.Freyja Vals Sess­elju­dóttir
79.Sigríður Stur­laugs­dóttir
80.Krist­jana Mjöll Jóns­dóttir Hjörvar
81.Hildigunnur Rún­ars­dóttir
82.Elva Dögg Blu­men­stein
83.Hulda Hákon­ar­dóttir
84.Arna Björk Pét­urs­dóttir
85.Sólrún Ein­ars­dóttir
86.Guðrún Ágústa Kjart­ans­dóttir
87.Bene­dikta Bergmann Ket­ils­dóttir
88.Kiana Sif Limehouse
89.Sunna Krist­ins­dóttir
90.Sig­ur­björg Magn­ús­dóttir
91.Bryn­hildur Björns­dóttir
92.Margrét Heiður Jóhanns­dóttir
93.Erla Ein­ars­dóttir
94.Birgitta Sig­urð­ar­dóttir
95.Gunn­hildur Vala Vals­dóttir
96.Vega Rós Guð­munds­dóttir
97.Steinunn Ólöf Hjart­ar­dóttir
98.Emma Ásu Árna­dóttir
99.Emma Kamilla Finn­boga­dóttir
100. María Lind Odds­dóttir
101. Stella Beekman
102. Anna Þórey Arn­ar­dóttir
103. Sigríður Björns­dóttir
104. Margrét S Bene­dikts­dóttir
105. Elsa Björk Harð­ar­dóttir
106. Særún Magnea Sam­ú­els­dóttir
107. Eva Hulda Ívars­dottir
108. Kristín Margrét Ingi­bjarg­ar­dóttir
109. Eyrún Eva Gunn­ars­dóttir
110. Hulda Dögg Georgs­dóttir
111. Hildur Helga Sig­urð­ar­dóttir
112. Tinna Eik Rakel­ar­dóttir
113. Birna Sæunn Jóns­dóttir
114. Fanney Gunn­ars­dóttir
115. Harpa Lind Björns­dóttir
116. Anna Íris Pét­urs­dóttir
117. Þorbjörg Signý Ágústs­son
118. Þuríður Ósk Gunn­ars­dóttir
119. Klara Þór­halls­dóttir
120. Steinunn Anna Radha Más­dóttir
121. Helga Dís Árna­dóttir
122. Þór­hildur Sæmunds­dóttir
123. Margrét Pét­urs­dóttir
124. Steinunn S. Ólafar­dóttir
125. Guðlaug Marín Páls­dóttir
126. Sunna Rut Stef­áns­dóttir
127. Sigríður Nanna Gunn­ars­dóttir
128. Steinunn Helga Sig­urð­ar­dóttir
129. Karen Linda Eiríks­dóttir
130. Karen Dögg Bryn­dís­ar­dóttir Karls­dóttir
131. Ragna Björg Björns­dottir
132. Guðrún Krist­jáns­dóttir
133. Heiða Sig­urð­ar­dóttir
134. Erna Sigrún Hall­gríms­dóttir
135. Erla Kr Bergmann
136. Sigrún Ósk Arn­ar­dóttir
137. Hafdís Erla Árna­dóttir
138. Drífa Pálín Geirs
139. Berglind Ósk Pét­urs­dóttir
140. Þórey Guð­munds­dóttir
141. Erla Elí­as­dóttir Völu­dóttir
142. Lilja Dröfn Dag­bjarts­dóttir
143. Magnea Jón­as­dóttir
144. Edith Soffía Bech
145. Lúcía Sigrún Ólafs­dóttir
146. Berglind Rós Gunn­ars­dóttir
147. Björg Torfa­dóttir
148. Jenný Heiða Zalewski
149. Linda Björk Ein­ars­dóttir
150. Aðal­heiður Jóhanns­dóttir
151. Hera Hansen
152. Anna Lind Vign­is­dóttir
153. Halldóra M. Bald­urs­dóttir
154. Eva Björk Sig­urð­ar­dóttir
155. Anna Lotta Michaelsdóttir
156. Halla Björg Rand­vers­dóttir

Mynd / Af vef Alþingis

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð