Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Dularfull veikindi herja áfram á flugfreyjur

Dularfull veikindi herja áfram á flugfreyjur

„Við höfum allar verið með svaka­legan þrýst­ing í höfði, eins og það sé að springa,“ segir flug­freyja hjá Icelandair sem telur eit­ur­gufur í far­ang­urs­rými orsök alvar­legra veik­inda hennar. Fleiri úr sömu áhöfn veikt­ust. Sam­bæri­leg mál komu upp fyrir tveimur árum en rann­sókn á þeim málum er enn ólokið. Einn af fleiri þáttum sem kann­aðir hafa verið er hvort eit­ur­gufur hafi borist inn í far­þega­rými með inn­töku­lofti en það er tekið inn í gegnum hreyfla flug­vél­anna.

Óvinnufær í tvö ár

Mannlíf hefur heim­ildir fyrir því að einn þeirra flug­liða sem veikt­ist árið 2016 sé enn óvinnu­fær og að minnsta kosti þrjú alvar­leg til­felli hafi komið upp nú í sumar. Flug­freyja hjá Icelandair sem er búin að vera í veik­inda­leyfi síðan í sumar eftir að hafa veikst í flugi féllst á að segja sögu sína nafn­laust. Hún segir lækna ganga út frá því að eit­ur­gufur í inn­töku­lofti valdi veik­ind­unum, enda séu fleiri ein­stak­lingar úr sömu áhöfn óvinnu­færir. Slík flug­at­vik séu þekkt í flug­heim­inum. Eftir því sem Mannlíf kemst næst er þetta vanda­mál bundið við tvær af eldri flug­vélum flug­fé­lags­ins. Þá hefur Mannlíf ekki fengið veður af kvört­unum far­þega vegna sam­bæri­legra mála.

Atvik flug­freyj­unnar átti sér stað í hefð­bundnu morg­un­flugi frá Banda­ríkj­unum, hún seg­ist hafa verið úthvíld og flugið verið rólegt og þægi­legt. Hún minn­ist þess að hafa orðið vör við dofa í tám en ekki hugsað frekar út í það. Síðan sofn­aði hún en tekur það skýrt fram að slíkt hafi aldrei áður komið fyrir sig í vinn­unni. Hún hafi fundið fyrir mik­illi þreytu og annað stafs­fólk haft orð á því að hún virt­ist „detta út“ og að höfuð hennar hafi hangið fram á bring­una.

Sofnaði undir stýri

Við kom­una til Kefla­víkur hafi hún farið upp í rútu og sofið alla leið til Hafn­ar­fjarðar. Þegar þarna er komið sögu gerði flug­freyjan sér ekki grein fyrir því að eitt­hvað væri að. Hún sett­ist upp í bíl og ók af stað heim en ekki vildi betur til en svo að hún sofn­aði undir stýri og keyrði út af. Eig­in­maður hennar sótti hana og keyrði á sjúkra­hús til skoð­unar þar sem hún virt­ist ekki vera með sjálfri sér. Teknar voru blóðprufur og að lok­inni skoðun var hún send heim.

Daginn eftir sáu aðstand­endur kon­unnar að eitt­hvað mikið var að. Hún gat ekki haldið uppi sam­ræðum, tal­aði hægt og fann fyrir miklum svima og sljó­leika. Henni var í kjöl­farið ekið á bráða­deild. Þetta ástand kom og fór næstu daga og vikur. Flug­freyjan hefur verið óvinnu­fær síðan í ágúst og sömu sögu er að segja af tveimur öðrum flug­liðum úr sömu flug­á­höfn.

„Við höfum allar verið með svaka­legan þrýst­ing í höfði, eins og það sé að springa. Ég á mjög erfitt með að höndla áreiti úr umhverf­inu og get ekki farið á fjöl­farna staði s.s. mat­vöru­versl­anir. Tauga­lækn­ir­inn minn segir að mið­tauga­kerfið sé í lama­sessi og ég má í raun ekk­ert gera. Mér er ráð­lagt að vera heima í slökun svo að ein­kennin verði ekki krónísk,“ segir flug­freyjan og bætir við að Flug­freyju­fé­lag Íslands sé að vinna í mál­inu fyrir sína skjól­stæð­inga. Berglind Haf­steins­dóttir, for­maður félags­ins, vildi ekki tjá sig um málið þegar blaða­maður leit­aði eftir því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ