Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Eldhúsið innréttað – hvernig nýtirðu rýmið best?

Margt ber að hafa í huga þegar eld­hús er inn­réttað, hvort sem það er verið er að gera upp gam­alt eld­hús eða inn­rétta í fyrsta skipti í nýju hús­næði. Við viljum nýta rýmið sem best og um leið hafa það fal­legt fyrir augað og gera það að okkar. Við fórum á stúf­ana og fengum góð ráð hjá Berg­lindi Berndsen inn­an­húss­arki­tekt en hún býr á Sel­tjarn­ar­nesi og rekur sína eigin stofu á Fiski­slóð 31 í Reykja­vík.

Eldhúsið innréttað – hvernig nýtirðu rýmið best?
||||
Berglind Berndsen, inn­an­hús­arki­tekt, gefur góð ráð.

Hvað hefur þú í huga varð­andi nýt­ingu þegar þú inn­réttar eld­hús?
„Eitt af hlut­verkum okkar arki­tekta og inn­an­húss­arki­tekta er að þarfa­greina og aðstoða við­skipta­vini okkar við að byggja upp drauma­heim­ili sitt. Markmið mitt er ávallt að skapa fal­lega umgjörð og að örva upp­lifun fólks á hönnun rým­is­ins og innviðum þess. Það sem mik­il­væg­ast er að hugsa um er sam­band á milli skipu­lags og innra fyr­ir­komu­lags í sjálfu rým­inu. Fólk hugar oft ekki nógu vel að grunn­skipu­lag­inu sjálfu. Það þarf að úthugsa rýmið svo besta nýt­ing náist. Huga þarf að ein­földu og góðu vinnu­fyr­ir­komu­lagi og miklu skápa­plássi. Ef pláss er fyrir hendi reyni ég alltaf að hanna góðar eld­húss­eyjur eða extra djúpar inn­rétt­ingar til að ná þessum eyju­fíl­ing.  Svo eru búr og tækja­skápar eitt best falda leynd­ar­mál eld­húsa. Góð vinnu­lýs­ing skiptir einnig gríð­ar­miklu máli upp á heild­ar­sam­hengið og hefur mikil áhrif á líðan fólk.“

Lumarðu á góðum ráðum fyrir eld­hús, til að gera það aðgengi­legra?
„Mik­il­vægt finnst mér að skapa rúm­gott eld­hús fyrir fólk, með miklu skápa­plássi, góðu vinnu­fyr­ir­komu­lagi og góðu flæði. Ég reyni einnig alltaf eftir fremsta megni að hanna stórar eyjur með góðri vinnu­að­stöðu í eld­hús og mynda þannig eina sam­ræmda heild.“

Skiptir máli að hugsa eld­húsið sem vinnu­rými fyrst og fremst?
„Nei, alls ekki. Þar sem allir fjöl­skyldu­með­limir eru farnir að taka virkan þátt í eld­hús­störfum, finnst mér í góðu lagi að hafa eld­húsið til dæmis sem hluta af borð­stofu og stofu, það ein­fald­lega stækkar rýmið og flæði verður betra á milli rýma. Eldhús og borð­stofa verða því oft­ast hjarta heim­il­is­ins.“

Hvernig hugsar þú efn­is­val í eld­húsi ?
„Ég leit­ast alltaf við að hafa efn­i­sal í eld­húsum í sam­ræmi við heild­ar­hönnun húss­ins. Ég heill­ast mikið af nátt­úru­legum efni­við á móti mjúkum, til dæmis er ég ofboðs­lega hrifin af marm­ara og dökk­bæsuðum inn­rétt­ingum. Ég elti ekki mikið tísku­strauma. Ein­fald­leiki og tíma­leysi er hinn full­komni grunnur fyrir mér sem auð­velt er að vinna með og breyta um liti og stemn­ingu hverju sinni og án mik­illar fyr­ir­hafnar.“

Ertu með ákveð­inn gát­lista sem vert væri að fólk færi yfir, þegar það ákveður að end­ur­nýja eld­húsið eða hannar/skipu­leggur nýtt eld­hús?
„Það sem mér finnst mik­il­væg­ast fyrir fólk að hugsa þegar það ræðst í umfangs­miklar breyt­ingar er að þær stand­ist tím­ans tönn. Svo þarf að huga vel að vinnu­fyr­ir­komu­lagi og nota­gildi rým­iss­ins, góðu skápa­plássi og góðri vinnu­lýs­ingu. Þar sem það ríkir meiri skiln­ingur í dag á arki­tektúr, skipu­lagi og vönd­uðum vinnu­brögðum er ég á því að við arki­tektar getum sparað fólki mik­inn tíma og mikla fjár­muni með betri hönnun og nýt­ingu. Einlægni, traust og gott sam­band við verk­kaupa er mjög mik­il­vægur þáttur upp á jákvæða upp­lifun í lok verks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð