Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gerendur hafa tvíeflst við #metoo

Eftir alla umræð­una í kjöl­far #metoo-bylt­ing­ar­innar á síð­asta ári kemur mál Áslaugar Thelmu Ein­ars­dóttur gegn ON eins og kjafts­högg. Hefur þá ekk­ert breyst? Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, lög­fræð­ingur BSRB, og Margrét Erla Maack skemmti­kraftur segja málið dæmi­gert. Þess séu jafn­vel dæmi að karlar hafi tví­eflst í áreitn­inni eftir #metoo-bylt­ing­una.

Gerendur hafa tvíeflst við #metoo
||||

„Nei, því miður, það kemur ekk­ert á óvart í þessu máli,“ segir Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, lög­fræð­ingur BSRB, spurð hvort eitt­hvað hafi komið henni á óvart í máli Áslaugar Thelmu Ein­ars­dóttur gegn ON. „Mín reynsla af þessum málum, í gegnum ein­stak­linga sem hafa leitað til okkar hjá BSRB, er að mjög algengt er að ekki sé brugð­ist við kvört­unum um kyn­ferð­is­lega áreitni innan vinnu­staða, eða að það sé brugð­ist við með röngum hætti. Rann­sóknir sýna að það eru margir sem ákveða að stíga ekki fram vegna þess að þeir hafa ekki trú á því að það verði brugð­ist við með við­eig­andi hætti.“
Spurð hversu algengt þetta vanda­mál sé, hvernig mál BSRB fái til dæmis til umfjöll­unar, segir Sonja að þau séu ekk­ert mjög mörg, hvorki hjá BSRB né öðrum sam­tökum á vinnu­mark­aði, og ástæðan sé meðal ann­ars sú að fólk hafi ekki vit­neskju um hvert það geti leitað eftir aðstoð.
„Þannig að áhersla #metoo-sam­starfs­nefndar 16 sam­taka og stofn­ana, sem stofnuð var af BSRB, ASÍ, Kven­rétt­inda­fé­lagi Íslands og FKA, er meðal ann­ars á að gera upp­lýs­ingar aðgengi­legrium hvert sé hægt að sækja sér aðstoð og stuðn­ing. Til dæmis með opnun vef­síðu þar sem allar upp­lýs­ingar um ferlið koma fram.“

Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, lög­fræð­ingur BSRB, segir mjög algengt að ekki sé brugð­ist við kvört­unum um kyn­ferð­is­lega áreitni innan vinnu­staða, eða að það sé brugð­ist við með röngum hætti..

Fjórir ger­endur, engin við­brögð
Beðin um að nefna dæmi um mál sem hafa komið á hennar borð er Sonja skjót til svars. „Það leit­aði til mín kona sem hafði birt frá­sögn sína hjá #metoo-yfir­lýs­ingu kvenna í tækni-, upp­lýs­inga- og hug­bún­að­ar­iðn­aði síð­ast­lið­inn vetur, þar sem hún lýsti kyn­ferð­is­legri áreitni sem hún hafði orðið fyrir á vinnu­stað sínum. Það sem var óvana­legt við þetta mál var að ger­end­urnir voru sam­tals fjórir og yfir­mað­ur­inn brást ekki við kvört­unum hennar. Eftir að hún birti sögu sína fór ferli í gang á vinnu­staðnum þar sem átti að bregð­ast við, að því er hún hélt. Það var sett af stað fræðsla um kyn­ferð­is­lega áreitni og hún fékk þær upp­lýs­ingar að við­kom­andi ger­endur hefðu verið áminntir, en vinnu­að­stæður hennar breytt­ust samt ekki neitt. Það var ekki gripið til neinna aðgerða til þess að auð­velda henni að koma til baka. Eftir að hún leit­aði til okkar tók við margra mán­aða tíma­bil þar sem við reyndum að ná fram ein­hverjum breyt­ingum hjá fyr­ir­tæk­inu, en ekk­ert gerð­ist. Í kjöl­farið samdi fyr­ir­tækið við hana um starfs­lok, sem er því miður meg­in­lína í svona málum. Svona mál enda oftar en ekki með því að þol­and­inn hættir á vinnu­staðnum. Eins og kom mjög skýrt fram í #metoo-frá­sögn­unum eru stað­hæf­ingar um að meintir ger­endur séu svo ómissandi á vinnu­staðnum að það sé ekki hægt að láta þá fara, mjög algeng við­brögð við kvört­unum um kyn­ferð­is­lega áreitni.“
Sonja segir þetta eitt af verstu málum sem hún hafi fengið til umfjöll­unar, einkum vegna fjölda ger­end­anna, en það séu vissu­lega alls konar mál sem komi fram. „Allt frá nauðgun á vinnu­staðstengdum við­burði yfir í kyn­bundnu áreitn­ina sem er þá meira svona karl­remba þar sem karl­menn við­halda valda­stöðu sinni á vinnu­staðnum með því að grafa undan kon­unum.“

Dæmi um að karlar hafi tví­eflst eftir #metoo
Hefur ástandið þá ekk­ert lag­ast eftir #metoo-umræð­una? „Það voru vissu­lega okkar vænt­ingar,“ segir Sonja. „En ég upp­lifi það ekki af þeim málum sem hafa verið að koma til umfjöll­unar und­an­farið. Upp­lifunin er sú að stjórn­endur vita ekki hvernig þeir eiga að bregð­ast við, þekkja ekki regl­urnar nægi­lega vel og svo er þetta að vissu leyti þver­fag­legt ferli. Það þarf líka að skilja sál­fræði­legu og and­legu afleið­ing­arnar á þol­and­ann til að réttum aðferðum sé beitt. Það kemur til dæmis fram í reglu­gerðum sem eiga að gilda um þetta að alltaf eigi að ræða við einn aðila í einu, en það eru fjöl­mörg dæmi um það að atvinnu­rek­endur taki það feil­spor að kalla bæði þol­and­ann og ger­and­ann saman á fund og ætla að fara að ræða málið. Það virkar eðli­lega ekki.“

Sumir hafa haft á orði að ástandið hafi að mörgu leyti versnað eftir #metoo-bylt­ing­una. Nú fóðri menn áreitn­ina með því að það sé fyndið að áreita „kell­ing­arnar“ fyrir þetta „#metoo-kjaftæði“. Sonja segir að dæmi séu um það.„Það er auð­vitað mjög mis­mun­andi menn­ing á vinnu­stöðum,“ segir hún. „En eins og í dæmi Orku­veit­unnar þá erum við að tala um fyr­ir­tæki sem hefur lagt mikla vinnu í jafn­rétt­is­málin og er jafn­vel fyr­ir­mynd ann­arra fyr­ir­tækja í þeim efnum, en það skilar sér greini­lega ekki. Á öðrum vinnu­stöðum eru dæmi um að karl­arnir sem þar vinna hefi tví­eflst og nýtt #metoo-umræð­una til þess að gera meira grín og meira lítið úr kon­unum með niðr­andi athuga­semdum og hegðun til þess að ná aftur sinni valda­stöðu og tryggja hana.“

Beðin um dæmi um slíkan vinnu­stað segir Sonja að þau séu fjöl­mörg, en hún muni sér­stak­lega eftir einu til­viki. „Það sem við þurfum virki­lega að taka inn í þessa vit­und­ar­vakn­ingu er staða kvenna af erlendum upp­runa,“ segir hún. „Eitt dæmi um vinnu­stað þar sem menn hafa tví­eflst er staður þar sem kynja­hlut­föllin eru nokkuð jöfn en flestar kon­urnar eru af erlendum upp­runa. Þar varð áreitnin meiri eftir #metoo-bylt­ing­una og allt gert til að grafa undan kon­unum og brjóta þær mark­visst niður.“

Margrét Erla og Sonja Ýr hafa báðar lent í kyn­ferð­is­legri áreitni á vinnu­stað.

Helm­ingur fyr­ir­tækja hefur ekki jafn­launa­stefnu
Hvað telur Sonja að sé hægt að gera til að raun­veru­leg breyt­ing eigi sér stað?

„Þessar reglur sem ég var að vísa í áðan segja að atvinnu­rek­endur eigi ann­ars vegar að gera áhættu­mat, meta hætt­una á því að fólk verði fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi í vinn­unni, og gera í fram­haldi af því áætlun um for­varnir og við­brögð. Í rann­sókn sem var gerð í vor á hund­rað stærstu vinnu­stöðum lands­ins til að kanna hvort #metoo-umræðan hefði haft áhrif á vinnu­staða­menn­ingu þeirra, sýndu nið­ur­stöð­urnar að rúm­lega fjórð­ungur af þessum stærstu vinnu­stöðum höfðu ekki fram­kvæmt áhættu­mat og tólf pró­sent höfðu ekki unnið áætlun um for­varnir eins og þeim er skylt að gera. Helm­ingur fyr­ir­tækj­anna hafði enga jafn­launa­stefnu og tólf pró­sent ekki jafn­rétt­is­stefnu, sem lög segja fyrir um að verði að vera á öllum vinnu­stöðum þar sem starfa 25 manns eða fleiri. Það eru sem sagt alls ekki allir vinnu­staðir sem hafa tekið umræð­una til sín. Fyrsta skrefið er auð­vitað að taka umræð­una um hvernig hegðun fólk vill hafa á vinnu­staðnum og hvað er ásætt­an­legt og hvað ekki. Það þarf að senda skýr skila­boð um að þetta verði ekki liðið og um leið skila­boð um hvert fólk getur leitað. Það þarf að búa til þannig and­rúms­loft á vinnu­staðnum að fólk treysti sér til þess að stíga fram. Þegar koma upp svona mál eins og hjá Orku­veit­unni og starfs­fólkið upp­lifir það að þol­and­inn er lát­inn fara þýðir það auð­vitað að fólk ótt­ast að segja frá, fólk vill passa upp á sitt eigið starf. Þannig að þessi við­brögð eru í raun þögg­un­ar­tækni.“

Ég spyr Sonju hvort hún hafi sjálf lent í áreitni á vinnu­stað og við­brögðin eru dæmi­gerð. „Nei,“ segir hún strax en bætir svo við eftir stutta umhugsun. „Jú, jú, ég hef lent í kyn­ferð­is­legri áreitni á vinnu­stað, bullið í mér. Það hafa allir lent í þessu en fólk grefur það bara og heldur áfram í stað­inn fyrir að það sé nokkuð gert í því. Á einum vinnu­staðnum sagði ég upp út af þessu, enda hafði ég ekki hug­mynd um að það væri hægt að kom­ast að ein­hverri annarri nið­ur­stöðu í svona málum.“

Spurð hvort hún hafi það á til­finn­ing­unni að afgreiðsla þess­ara mála sé eitt­hvað að þok­ast í rétta átt dregur Sonja við sig svarið.
„Það er meira mín til­finn­ing að núna sé sam­staðan meiri og fólk upp­lifi að það er ekki eitt í þessu. Kraft­ur­inn í þess­ari bylt­ingu hjálpar fólki að hætta að gera lítið úr þeim atvikum sem það lendir í. Og það sem ég er líka að vona, og hef fundið fyrir, er að fólk hjálp­ast meira að. Sam­kenndin í þessum málum hefur auk­ist og það er stuðn­ingur inni á vinnu­staðnum fyrir þá sem hafa lent í ein­hverju og fólk er dug­legra við að benda strax á ef eitt­hvað fer úrskeiðis þótt það verði ekki fyrir áreitn­inni sjálft. Og það á við bæði um karla og konur. Þannig að já, þetta er eitt­hvað að þok­ast. En það er mjög langt í land ennþá og við megum ekki slaka á í vinn­unni gegn því að þetta þrí­fist áfram.“

Margrét Erla Maack hefur starfað sem plötu­snúður og skemmti­kraftur árum saman og hefur ekki farið var­hluta af þeirri kyn­ferð­is­legu áreitni sem við­gengst í þeim bransa.

„Var hótað að ég fengi aldrei aftur að vinna fyrir Icelandair“
Margrét Erla Maack, er sama sinnis og Sonja, hún segir að málið komið ofboðs­lega lítið á óvart, þegar hún er spurð um álit á við­brögðum ON við kvört­unum Áslaugar Thelmu Ein­ars­dóttur um kyn­ferð­is­lega áreitni fram­kvæmda­stjór­ans Bjarna Más Júl­í­us­sonar. „Það er hún sem er vanda­málið. Hún á að halda kjafti. Það er ekk­ert nýtt í þessu,“ segir hún.Margrét Erla við­ur­kennir þó að hafa orðið fyrir von­brigðum með hvernig þetta mál var höndlað.

„Maður heldur alltaf að þetta sé búið,“ and­varpar hún. „Sér­stak­lega í ljósi þeirra bylt­inga sem hafa orðið und­an­farin ár. Maður heldur alltaf þegar svona fréttir koma upp að þetta hljóti að vera síð­asta konan sem lendir í þessu.“

Margrét Erla hefur starfað sem plötu­snúður og skemmti­kraftur árum saman og hefur ekki farið var­hluta af þeirri kyn­ferð­is­legu áreitni sem við­gengst í þeim bransa. „Það sem ég hef upp­lifað í mínu starfi sem skemmti­kraftur og plötu­snúður hefur kennt mér að vera næm fyrir því á hvaða vinnu­stöðum kúlt­úr­inn er eitr­aður. Fyrir sirka tólf árum síðan, í einu af mínum fyrstu giggum sem var á árs­há­tíð hjá Icelandair, skrif­aði ég um upp­lifun mína á bloggið mitt og benti á að þótt það hefði verið gaman væri samt leið­in­legt að það skuli alltaf vera einn dóna­kall sem skemmir fyrir öllum hinum. Ég fékk strax við­brögð frá fyr­ir­tæk­inu sem fór fram á að ég tæki blogg­færsl­una út og hót­aði að borga mér ekki fyrir giggið. Engin afsök­un­ar­beiðni eða neitt.“

Á þessum tíma var Margrét Erla ný í brans­anum, 22ja ára gömul, og seg­ist auð­vitað hafa orðið við þessum til­mælum og tekið blogg­færsl­una út.

„Mig vant­aði þennan pen­ing svo ég bakk­aði, baðst afsök­unar og eyddi færsl­unni. Þá var maður svo blautur á bak við eyrun að maður trúði því að maður væri eina týpan sem lenti í svona. Löngu seinna frétti ég svo að þessi maður væri alræmdur og hefði skemmt partí hjá fyr­ir­tæk­inu í mörg ár og fólk hefði meira að segja hætt hjá fyr­ir­tæk­inu út af honum af því eng­inn hefði gert neitt með kvart­an­irnar. Ég kvart­aði og mér var þá hótað að ég fengi aldrei aftur að vinna fyrir Icelandair og það hefur stað­ist.“

#metoo bara enn ein ástæðan til að vera með kyn­ferð­is­lega áreitni
Margrét Erla segir þessa reynslu fyrir tólf árum langt frá því eins­dæmi, það sé nán­ast und­an­tekn­inga­laust ein­hver dóna­kall á þeim skemmt­unum þar sem hún kemur fram sem líti á það sem sjálf­sagt mál að áreita hana kyn­ferð­is­lega. „Síðasta stóra upp­á­koman sem ég lenti í var á árs­há­tíð hjá stóru opin­beru fyr­ir­tæki í orku­geir­anum þar sem einn maður lét mig bara ekki vera. Ég benti honum á að ég væri að vinna vinn­una mína og hann ætti að láta mig í friði en það þýddi ekk­ert. Hann spurði hvort hann mætti klípa mig í rass­inn og lét sér ekki segj­ast þótt ég neit­aði. Þannig að ég tal­aði við skemmti­nefnd­ina og vin­konu mína sem er hátt­sett innan fyr­ir­tæk­is­ins sem tal­aði við mann­inn og hann kom voða lúpu­legur og baðst afsök­unar, en hélt því fram að þetta væri ekk­ert alvar­legt af því að hann hefði spurt um leyfi og að honum hefði bara fund­ist þetta fyndið út af „þessu #metoo“. Þá gekk hann alveg fram af mér. Honum, og mörgum fleirum, finnst sem sagt #metoo bara enn ein ástæðan til að vera með kyn­ferð­is­lega áreitni og kalla það brand­ara.“

Strax dag­inn eftir hafði Margrét Erla sam­band við mannauðs­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins og fékk stand­ard svar um að þetta færi í ferli og síðan yrði heyrt í henni frekar. Síðan gerð­ist ekk­ert fleira og mán­uði síðar skrif­aði hún pistil um upp­á­kom­una í Kjarnann og þá loks fékk hún við­brögð frá fyr­ir­tæk­inu. Var kölluð í við­tal og fór síðan í gegnum stefnu­mótun með for­svars­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins um að setja skýrar reglur um svona fram­komu. „Það sem fólk kannski gerir sér ekki grein fyrir er að þótt áreitnin fari ekki fram á vinnu­stað á vinnu­tíma þá gilda sömu reglur um fram­komu við sam­starfs­fólk á sam­komum á vegum fyr­ir­tæk­is­ins eins og innan veggja vinnu­stað­ar­ins.“

Margrét segir fyr­ir­tækið sem um ræðir að mörgu leyti sam­bæri­legt við OR og að þar hafi ráðið ríkjum jakka­fata­klæddir menn alveg fram á síð­ustu ár, það sé til­tölu­lega nýskeð að konur kom­ist til áhrifa innan þess­ara fyr­ir­tækja og karl­arnir reyni með öllum ráðum að verja sitt yfir­ráða­svæði.

„Þetta eru litlir kallar sem er ógnað og eru að reyna að púffa sig upp og sýna hvers þeir eru megn­ugir,“ segir hún. „Í starfi mínu sem plötu­snúður finn ég vel fyrir þess­ari áráttu karl­manna sem hafa verið ein­ráðir á sínu sviði allt of lengi til að gera lítið úr konum sem koma inn á sviðið. Þeir byrja alltaf á að benda á að það séu nú ekki margar konur í þess­ari stöðu og halda svo áfram að reyna að draga mann niður svo þeim líði betur.“

Margrét Erla Maack og Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir segja að í kjöl­far #metoo hafi ástandið sums staðar versnað og áreitnin auk­ist. Sonja telur þó að málin séu eitt­hvað að þok­ast í rétta átt. „En það er mjög langt í land ennþá og við megum ekki slaka á í vinn­unni gegn því að þetta þrí­fist áfram.“

„Æ, já, hann er alltaf svona“
Það sem Margréti Erlu finnst einna ógn­væn­leg­ast er að það virð­ist sem allir viti af þess­ari fram­komu ákveð­inna manna, en það sé bara horft fram hjá því.

„Í hvert ein­asta skipti sem ég hef kvartað hef ég fengið svarið: „Æ, já, hann er alltaf svona.“ Samt er þess­ari týpu alltaf boðið í öll sam­kvæmi á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. Ég hef meira að segja verið í veislu hjá hátt­settu fólki í þjóð­fé­lag­inu, þar sem maður var lát­inn skrifa undir trún­að­ar­samn­ing um að segja ekki frá, þar sem eig­in­maður einnar kon­unnar sem vann þarna var þekktur fyrir að vera ógeðs­legur og það voru vaktir hjá kon­unum í veisl­unni við að passa hver aðra fyrir honum. Þannig að í stað­inn fyrir að bjóða honum ekki voru allir á fullu að kóa með þess­ari fram­komu. Það var svaka­leg upp­lifun.“

Margrét Erla segir þessa þöggun og með­virkni vera stærsta hjall­ann sem þurfi að yfir­stíga til að ein­hver breyt­ing verði á með­höndlun slíkra mála.

„Það þarf að vera skýrt verk­lag innan fyr­ir­tækja um það hvernig eigi að taka á slíkum brotum,“ segir hún. „Það er allt of algengt að konur þori ekki að kvarta yfir áreitn­inni af ótta við að missa vinn­una og vera álitnar „sú týpa“. Það þýðir ekk­ert að skrifa í jafn­rétt­is­á­ætlun að kyn­ferð­is­leg áreitni sé ekki liðin ef það fylgir engin útlistun á því hvernig eigi að bregð­ast við þegar hún kemur upp. Hvað þýðir það að ein­hver fram­koma sé ekki liðin? Á bara að skamma fólk og láta svo eins og ekk­ert hafi gerst? Það verða að vera skýrt mark­aðar afleið­ingar af svona brotum. Pabbi minn hefur unnið mikið við með­ferð fíkni­sjúk­linga og hann hefur bent mér á að það sem margir karl­menn byggi sjálfs­virð­ingu sína á sé vinnan. Þótt konan fari frá þeim og börnin hætti að tala við þá gera þeir ekk­ert í sínum málum, en ef þeir missa vinn­una fara þeir að taka á vand­anum. Þannig að ég held að eina leiðin til þess að menn fari að taka þetta alvar­lega sé að það sé í alvör­unni ekki liðið á vinnu­staðnum.“

Spurð hvort henni finn­ist ástandið ekk­ert hafa skánað við #metoo-bylt­ing­una segir Margrét Erla að það séu tvær hliðar á því máli. „#metoo hefur auð­vitað gefið fólki rödd,“ segir hún hugsi. „Núna er fólk til­búið að tala um þetta vanda­mál. En mér finnst við­horfið dálítið vera það að fólki sé hrósað fyrir að stíga fram og segja frá, en svo sé ekki farið neitt lengra með málið. Það sé litið svo á að með því að hvetja fólk til að tala sé mál­inu lokið.“

Skikka þarf ger­endur í sál­fræði­tíma
Í máli Áslaugar Thelmu gagn­vart OR hefur þó kom­ist hreyf­ing á málin og hver fram­kvæmda­stjór­inn af öðrum fallið. Hjálpar það ekk­ert?

„Mig langar að trúa því,“ segir Margrét Erla og and­varpar. „En það ömur­lega er að þegar svona ger­ist þá fer allt ferlið að verða loðn­ara. Það fara að koma fram meiri hót­anir þannig að málin verða umdeild­ari, sem fyllir mann von­leysi. Ég þurfti til dæmis að leita lengi á fjöl­miðl­unum til að finna nafnið á fram­kvæmda­stjór­anum sem áreitti Áslaugu Thelmu. Áherslan í frétta­flutn­ingnum var öll á henni og mann­inum hennar. Við erum ein­hvern veg­inn miklu meira til­búin að nafn­greina þol­and­ann en ger­and­ann. Hún er alltaf bara „þessi týpa“ sem er með vesen, í stað­inn fyrir að áherslan sé á að benda á að ger­and­inn sé ógeð­skall.“

Hvað held­urðu að sé hægt að gera til að við­horfið breyt­ist?

„Ef ég væri dóna­kall gæti ég svarað því,“ segir Margrét Erla og hlær kalt. „Þá gæti ég sagt þér hvað ég væri hrædd við ef það kæm­ist upp um mig í svona máli. En það sem þarf að gera er í fyrsta lagi að við­ur­kenna að þetta er alvöru­vanda­mál, við­ur­kenna að rótin að þess­ari fram­komu er að körlum finnst þeim ógnað og að þeir eru litlir í sér. Þannig að ég segi að fyrsta mál á dag­skrá þegar svona kemur upp sé að skikka ger­and­ann í sál­fræði­tíma eða áfeng­is­með­ferð. Skikka hann til að horfa inn á við. Það er nefni­lega svo algengt við­horf hjá karl­mönnum að það sé skortur á karl­mennsku að leita sér hjálpar. Og ef það dugar ekki til að menn taki sig á séu þeir bara reknir. Það verður að vera algjör­lega krist­als­skýr aðgerða­á­ætlun til að taka á svona málum innan fyr­ir­tækja. Við verðum að hætta þess­ari með­virkni. Núna!”

Myndir / Aldís Páls­dóttir
Video – upp­taka og leik­stjórn / Óskar Páll Sveins­son og Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð