Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Í Hvallátrum eru engar reglur“

Nokkrir aðilar eiga og nytja eyja­kla­s­ann Hval­látur á Breiða­firði og koma saman á hverju vori ásamt fjöl­skyldum sínum, njóta nátt­úru­dýrðar svæð­is­ins og fara í dún­leitir. Við slóg­umst í för með dún­bændum í sumar.

„Í Hvallátrum eru engar reglur“
||||||||||||||||||||||||||||
Farið er með gúmmí­bátum á milli eyja. Á fjöru er mik­il­vægt að hafa löng bönd í bát­unum til að ekki flæði yfir land­fest­ina meðan leitað er.

Þarna sam­ein­ast kyn­slóð­irnar í leik og starfi í faðmi nátt­úr­unnar og fyrir marga er þetta besti tími árs­ins. Börnin kynn­ast nátt­úr­unni á eigin for­sendum, læra að bera ábyrgð og njóta þess að þarna gilda ekki strangar reglur. Dún­tekj­urnar nýt­ast til að reka hús­næði, vélar og báta­kost sem not­aður er í eyj­unum.
Í Hval­látrum eru dún­leitir jafnan fyrri­part­inn í júní, leitað er í 200 eyjum, hólmum og skerjum sem til­heyra svæð­inu og sam­tals eru hreiðrin milli þrjú og fjögur þús­und tals­ins. Í fyrri leitum kemur megnið af dún­inum í hús en í seinni leitum er tek­inn dúnn úr hreiðrum sem leit­ar­fólki kann að hafa yfir­sést og hjá kollum sem verpa seint. Þegar dúnn­inn er tek­inn er sett hey í stað­inn sem er ekki síðra fyrir útung­un­ina en dúnn­inn, sér­stak­lega í rign­ing­ar­tíð.
Á Heima­eynni er stórt íbúð­ar­hús og aðstöðu­hús fyrir dún­þurrkun, unga í fóstri, geymslur og fleira. Niðri við höfn­ina er einnig gömul skipa­smíða­stöð sem starf­rækt var í Hval­látrum um ára­bil. Þar inni er bát­ur­inn Egill sem smíð­aður var í Hval­látrum árið 1904 af Ólafi Berg­sveins­syni, bónda og skipa­smið í Hval­látrum. Son­ar­sonur hans, Aðal­steinn Eyjólfur Aðal­steins­son, gerði bát­inn upp í lok síð­ustu aldar.

Frændsystk­inin Anna Vigdís Magn­ús­dóttir og Brynjar Árnason hrista dún og dreifa honum á grindur.

Frí frá stressi og streitu
Veðrið þarf að vera gott til að hægt sé að halda í dún­leitir. Vindur má ekki vera mik­ill til að fært sé til sjós á gúmmí­bátum og rign­ing er óæski­leg. Eftir dag í leitum er komið með dún­inn í Heima­eynna. Ef vel viðrar er blautum dúni gjarnan dreift á túnið til þurrk­unar fyrir framan dún­húsið áður en hann er hristur og settur á grind­urnar. Eftir að dúnn­inn hefur verið þurrk­aður á grind­unum er hann hit­aður í þar til gerðum potti en hit­inn gerir gras og annað í dún­inum stökkt. Dúnninn er svo settur í krafsarann þar sem þetta stökka er mulið úr. Þá er dúnn­inn sendur í hreinsi­stöð í Stykk­is­hólmi.
Fólkið sem stendur að dún­nytj­unum er ekki að því í hagn­að­ar­skyni heldur til að eiga sér griða­stað í þessu ein­staka umhverfi. Það er jafnan glatt á hjalla þegar hóp­ur­inn hitt­ist eftir vet­ur­inn, til­bú­inn til að hverfa um stund frá streit­unni sem gjarnan fylgir hvers­deg­inum.

Texti og myndir / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Gerða Frið­riks­dóttir, Skær Sindra­son, Jón Örn Frið­riks­son, Bryndís María Jóns­dóttir og Elísa Frið­riks­dóttir á leið í dún­leitir.
Guð­mundur og sonur hans, Arnar, að koma að hreiðri.
Þor­valdur tekur dún úr hreiðri.
Dæmigert æðar­hreiður með dún.
Þor­valdur að skyggna egg til að sjá hversu langt er síðan kollan verpti. Leit­ar­fólk er ávallt með tvo poka á sér, annan fyrir dún og hinn með heyi.
Hér er búið að setja hey í hreiðrið í stað­inn fyrir dún. Ungarnir eru að byrja að klekj­ast út og sjá má í gogg­ana á þeim. Hvíti punkt­ur­inn fremst á gogg­unum heitir egg­tönn sem ung­inn notar til að brjóta eggið en svo dettur hún af eftir nokkra daga.
Þrjár kyn­slóðir saman í dún­leitum.
Gott og orku­ríkt nesti er mik­il­vægt í leitum; kók, prins og kókó­mjólk.
Verið að und­ir­búa brott­för eftir kaffi­pásu.
Reynt er að halda mávi og öðrum varg­fugli í skefjum til að vernda varpið.
Guð­mundur með svart­baksunga.
Djúpey.
Svo verður líka að taka svo­lítið í nefið og snýta sér hressi­lega á eftir.
Guð­mundur heilsar upp á gamlan vin.
Þor­valdur hefur um ára­bil haldið tölu yfir fjölda varp­fugla á svæð­inu. Vitað er um 39 teg­undir sem orpið hafa í eyj­unum. Teista er einn þess­ara fugla og rauði góm­ur­inn eitt af sér­kennum hans.
Æðar­ungar að skríða úr eggjum.
„Ertu á sokk­unum niðri á bryggju að taka á móti okkur,“ spurði ég Friðrik Bjarna Jónsson þegar við komum að landi. „Já,“ svar­aði hann, „það eru nefni­lega engar reglur í Hval­látrum.“
Bryggju­kollan svokölluð hefur verpt á bryggj­unni á Heima­eynni í Hval­látrum um ára­bil. Hún lætur ekk­ert trufla sig.
Ef vel viðrar er blautum dúni gjarnan dreift á túnið til þurrk­unar fyrir framan dún­húsið áður en honum er dreift á grindur inni í hús­inu.
Dúnninn sóttur af grind­unum til að setja í pott­inn.
Eftir að dúnn­inn hefur verið þurrk­aður á grind­unum er hann hit­aður í þar til gerðum potti. Hitinn gerir gras og annað í dún­inum stökkt.
Friðrik Jónsson setur dún í í krafs­ara þar sem þetta stökka er mulið úr.
Bræð­urnir Guð­mundur og Þor­valdur Björns­synir, eða Bubbi og Doddi, eru ávallt hressir. Þeir þekkja nátt­úr­una vel og eru fullir af fróð­leik um allt henni tengdri.
Ungar sem tapað hafa mæðrum sínum eru teknir í fóstur í unga­húsið á Heima­eyj­unni þar sem þeim er gefið fóður og kennt að finna sér mar­flær og annað fæði í fjör­unni. Krakk­arnir sjá um að mestu leyti um unga­upp­eldið af miklum áhuga og ástríðu. Hér er Hlynur Örn Hjálm­ars­son að spjalla við ung­ana.
Fjara. Á Breiða­firði er mesti munur flóðs og fjöru á land­inu og getur farið upp í fimm metra þegar mest er.
Stór­straums­flóð.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ