Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Skapstór með sterka réttlætiskennd

Salka Sól Eyfeld verður í aðal­hlut­verki á laug­ar­dag­inn þegar Þjóð­leik­húsið frum­sýnir hið geysi­vin­sæla leik­rit Ronju ræn­ingja­dóttur, sem byggt er á bók Astrid Lindgren. Hún segir Ronju mik­il­væga fyr­ir­mynd fyrir ungar stelpur, en sjálfa hafi hana skort slíkar fyr­ir­myndir í æsku.

Skapstór með sterka réttlætiskennd
Hún segir Ronju mik­il­væga fyr­ir­mynd fyrir ungar stelpur

Ekki nóg með það að Ronja sé fyrsta aðal­hlut­verkið sem Salka Sól leikur, þetta er í fyrsta sinn sem hún er í hlut­verki leik­ara í atvinnu­leik­húsi. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég tekst á við það,“ segir Salka Sól og hlær. „En ein­hvern tím­ann er allt fyrst. Þetta leggst rosa­vel í mig, er með skemmti­legri verk­efnum sem ég hef tekið að mér og það eru algjör for­rétt­indi að fá að hlakka til að mæta í vinn­una alla daga.“

Þegar til­kynnt var um val Sölku Sólar í hlut­verk Ronju lét hún hafa eftir sér að þetta væri drauma­hlut­verkið sitt, hvað meinti hún með því?
„Ég horfði mjög oft á sænsku mynd­ina um Ronju þegar ég var lítil og ég man að ég sagði eitt sinn við mömmu að ef ég fengi ein­hvern tím­ann að leika aðal­hlut­verk í leik­riti vildi ég leika Ronju eða Línu Langsokk, þá yrði ég sko sátt. Ronja var stór hluti af æsku minni og mér þykir mjög vænt um að fá að túlka hana og kynna hana fyrir yngra fólk­inu. Ég held líka að þetta hlut­verk henti mér vel því það er mjög stutt í barnið í mér. Ég myndi segja að það væri hæfi­leiki að leyfa sér að fara í það hlut­verk og rækta barnið í sér.“

Í hlut­verki Ronju í nýrri upp­setn­ingu Þjóð­leik­húss­ins á hinu klass­íska barna­leik­riti.
„Ég held það sé ótrú­lega mik­il­vægt fyrir ungar stelpur að það sé ein­hver kvenkarakter sjá­an­legur í þjóð­fé­lag­inu. Það veit ég af eigin reynslu.“

Hatur er eitt­hvað sem okkur er kennt
Spurð hvort hún og Ronja séu líkar er Salka Sól snögg til svars.
„Já, við erum mjög líkar. Það er dálítið stórt skap í okkur báðum, en mikil rétt­læt­is­kennd og það sem er fal­leg­ast við Ronju er að hún er svo ótrú­lega óhrædd við að taka sjálf­stæðar ákvarð­anir, hún eltir ekki það sem henni hefur verið kennt. Ég kann­ast við það hjá sjálfri mér. Ég hef aldrei verið hrædd við að taka eigin ákvarð­anir og þora að vera bara nákvæm­lega eins og ég er.“

Salka Sól segir að boð­skapur sög­unnar um Ronju skipti hana miklu máli og henni finn­ist þurfa að kynna hana fyrir öllum börnum.
„Þótt Ronju sé kennt að hata óvin­inn, og geri það kannski í fyrstu, þá ákveður hún að láta það ekki stjórna sér heldur kynn­ast óvin­inum. Við fæð­umst nefni­lega alveg ómenguð og ef það er hatur í fólki er það eitt­hvað sem því hefur verið kennt. Við verðum að þora að fara út fyrir þann ramma og skoða heim­inn með okkar eigin augum.“

Mik­il­vægt að hafa sterkar fyr­ir­myndir
Fyrir utan að leika Ronju er Salka Sól þátt­tak­andi í tón­list­ar­hópnum Girl PWR, er Ronja ekki últra fyr­ir­mynd þegar kemur að vald­efl­ingu stelpna?
„Júhú,“ segir Salka Sól með sann­fær­ingu. „Hún er það sko. Bæði hún og Lína Langsokkur. Kvenkarakt­er­arnir sem Astrid Lindgren skrifar eru alveg magn­aðir og stór­kost­legt að hafa svona karakt­era í aðal­hlut­verki í barna­bókum.“

En um hvað snýst verk­efnið Girl PWR?
„Ennþá er það bara hljóm­sveit en von­andi verður það hreyf­ing í fram­hald­inu. Þetta er vald­efl­andi batt­erí fyrir allar konur og akkúrat núna vill svo til að það eru Spice Girls sem eru í kast­ljós­inu hjá okkur.“

Talið berst að fyr­ir­myndum stelpna og hvað þarf til að þær treysti sér til að standa með sjálfum sér og fylgja draumum sínum eftir. Er það eitt af mark­miðum Sölku Sólar að verða slík fyr­ir­mynd fyrir ungar stelpur?
„Já, ég held það,“ segir hún. „Ég vona það alla­vega. Ég held það sé ótrú­lega mik­il­vægt fyrir ungar stelpur að það sé ein­hver kvenkarakter sjá­an­legur í þjóð­fé­lag­inu. Það veit ég af eigin reynslu. Ég held til dæmis að ég hefði farið miklu fyrr að rappa ef ég hefði haft fleiri kven­fyr­ir­myndir í rapp­inu. Ég hefði örugg­lega byrjað á því tíu ára eins og flestir strák­arnir sem eru að rappa í dag, en ekki tutt­ugu og fimm ára eins og ég gerði.“

Hverjar voru þínar fyr­ir­myndir þegar þú varst að alast upp?
„Ég leit rosa­lega mikið upp til tón­list­ar­kvenna, eins og Emiliönu Torrini til dæmis. Hún var í miklu upp­á­haldi hjá mér. Svo fór ég mjög mikið í leik­hús og fannst alltaf Margrét Vil­hjálms og Ólafía Hrönn ógeðs­lega skemmti­legar leikkonur og dáð­ist að þeim. Ég held að á okkar tímum sé það mik­il­væg­ara en nokkurn tíma áður að hafa þessar fyr­ir­myndir. Ég er auð­vitað þekkt­ust fyrir það sem ég er að gera í tón­list­ar­heim­inum, en ég er líka þekkt fyrir aktí­visma og að benda á það sem betur mætti fara. Ég styð femíníska bar­áttu og held að það skipti miklu máli að hún sé líka sjá­an­leg í sam­fé­lag­inu.“

Hún segir Ronju mik­il­væga fyr­ir­mynd fyrir ungar stelpur, en sjálfa hafi hana skort slíkar fyr­ir­myndir í æsku. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Ætlaði að rjúka upp á svið
Faðir Sölku Sólar er leik­ar­inn Hjálmar Hjálm­ars­son, ólst hún að ein­hverju leyti upp í leik­hús­inu?
„Já, já, já, já,“ segir hún og hlær. „Ég var allar helgar uppi á svölum að horfa á Kar­dimommu­bæ­inn eða Dýrin í Hálsa­skógi eða eitt­hvað. Ég meira að segja fór á Ronju 1992, þegar Sigrún Edda lék hana, og það er til fræg saga af mér þar sem ég ætl­aði að hlaupa upp á svið þegar það var partí í sýn­ing­unni. Ræn­ingj­arnir ákveða að slá upp veislu og ég varð svo spennt, fjög­urra ára gömul, að ég ætl­aði bara að hlaupa upp á sviðið og pabbi rétt náði að grípa í kjól­inn minn og stoppa mig áður en ég var bara mætt upp á svið til að taka þátt í gleð­inni. Núna, tutt­ugu og sex árum síðar, var mér svo bara boðið í partíið.

Viðtalið fer fram fáeinum dögum fyrir frum­sýn­ingu, hvernig ætlar Salka Sól að nota þá til að und­ir­búa sig fyrir stóru stund­ina?
„Ég bara reyni að sofa vel og passa upp á rödd­ina, nýta mér allar þær æfingar og tækni sem ég hef lært. Ég held að aðal­at­riðið sé að hvíl­ast nóg og setja sigg inn í þennan heim sem við erum að skapa á svið­inu. Heim Ronju ræn­ingja­dóttur.“

Þannig að þessa vik­una verður þú bara Ronja utan sviðs og innan?
„Já. Ég sagði við mann­inn minn að hann skyldi ekki láta sér begða þótt ég svar­aði honum und­ar­lega og segði eitt­hvað skrýtið. Það væri ekki ég, heldur Ronja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ