Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Aðdáun stelpnanna réði úrslitum

Helgi Björns­son, sjálfur Holy B, er orð­inn sex­tugur og hefur verið í sviðs­ljós­inu, bæði sem söngv­ari og leik­ari, í 45 ár. Hann seg­ist hafa ákveðið það strax í æsku að verða ann­að­hvort popp­stjarna eða atvinnu­maður í fót­bolta og valið hafi verið auð­velt eftir að hann sá hvað stelp­urnar hrifust miklu meira af gít­ar­leik hans og söng heldur en sprikli á fót­bolta­vell­inum.

Aðdáun stelpnanna réði úrslitum
|||
Helgi hóf tón­list­ar­fer­il­inn vestur á Ísafirði á ung­lings­árum og hann segir eig­in­lega aldrei hafa komið til greina að velja annan starfs­vett­vang en tón­list og leik­list.

Þegar ég hringi í Helga og fal­ast eftir að fá að hitta hann á kaffi­húsi og spjalla seg­ist hann helst ekki vilja að við­talið fari fram á kaffi­húsi, þar verði hann fyrir of miklu áreiti. Er erfitt að vera frægur á Íslandi?
„Ég meinti nú ekki áreiti í nei­kvæðum skiln­ingi,“ flýtir Helgi sér að útskýra. „En, jú, jú, það eru alltaf margir sem maður þarf að heilsa og spjalla aðeins við. Reykja­vík er nátt­úr­lega bara lítið þorp þar sem allir þekkj­ast og fólk vill vita hvað er að frétta af mömmu og hvað ég ætli að fara að gera og svo fram­vegis. Maður fær ekk­ert áreiti eins og maður sér hjá heims­frægum stjörnum úti í heimi en það er for­vitni og það er verið að fylgj­ast með manni. Ég er reyndar löngu hættur að pæla í því en þetta er samt alltaf þrýst­ingur. Þótt þú reynir að slökkva á þessu og taka ekki eftir því þá er það til staðar og það hefur áhrif á mann.“

Ferm­ing­ar­drengir miðað við banka­menn
Helgi hóf tón­list­ar­fer­il­inn vestur á Ísafirði á ung­lings­árum og hann segir eig­in­lega aldrei hafa komið til greina að velja annan starfs­vett­vang en tón­list og leik­list.
„Ég man eftir því að þegar ég var sirka tíu ára gam­all var ég alveg ákveð­inn í því að ann­að­hvort ætl­aði ég að verða atvinnu­maður í fót­bolta eða popp­stjarna. Ég spil­aði með yngri flokk­unum á Ísafirði en þegar þeir fóru að hlaupa úti í snjónum alla daga en ég gat setið inni í æfinga­hús­næði með gít­ar­inn og stelp­urnar hóp­uð­ust fyrir utan til að hlusta en litu ekki við þeim, var alveg ljóst hvað ég vildi frekar leggja fyrir mig.“
Var það sem sagt aðdáun stelpn­anna sem leiddi þig út í tón­list­ar­fer­il­inn? „Að sjálf­sögðu!“ segir Helgi og skelli­hlær. „Á þessum aldri, 13 til 16 ára, þá var það engin spurn­ing, það var aðdá­unin sem maður sótt­ist eftir.“
Talandi um það leið­ist talið að því orð­spori um sukklíf­erni sem fer af popp­brans­anum, hefur það tekið sinn toll í lífi Helga? „Nei, það held ég nú ekki,“ segir hann. „Það er glaumur og gleði oft og tíðum, en ég hef sem betur fer borið gæfu til þess að sigla fram hjá stærstu skerj­unum og stranda ekki í þeim ólgu­sjó. Svo er þetta líka orðum aukið. Ég held til dæmis að það sé meiri glaumur og gleði hjá banka­mönnum í dag heldur en nokkurn tím­ann hjá popp­urum. Við erum algjörir ferm­ing­ar­drengir í sam­an­burði við þá.“

Sér ekki eftir neinu
Spurður hvort popp­stjörnu­lífið hafi verið eins skemmti­legt og hann ímynd­aði sér sem ung­lingur þegir Helgi um stund og hugsar málið. „Að hafa fengið tæki­færi til að fást við tón­list er nátt­úr­lega algjör gjöf,“ segir hann svo. „Það er engin spurn­ing. Tón­listin er frum­afl og teng­ist auð­vitað frumöskr­inu og þessi tján­ing í gegnum tóna, rödd­ina og síðan hljóð­færin, gefur þér alltaf eitt­hvað. Ekkert skrýtið að tón­listin sé notuð bæði á sorg­leg­ustu og gleði­leg­ustu stundum lífs­ins. Að hafa fengið tæki­færi bæði til að tjá sig í tón­list og vera í kringum tón­list­ar­menn er bara alveg ynd­is­legt. Þannig að ég þakka fyrir það.“
Og sérð ekki eftir neinu?„Nei, ég get ekki sagt það. Auðvitað vill maður alltaf gera eitt­hvað betur, en það felst þá meira í ein­hverjum smá­at­riðum og ég sé ekki eftir neinu í stóru drátt­unum. Alls ekki.“
Hvað er eft­ir­minni­leg­ast, hverju ertu stolt­astur af?„Ég bara veit það ekki,“ segir Helgi hugsi. „Ég reyni að horfa meira fram á við heldur en að gleyma mér í fyrri verkum. Ég er mjög stoltur af sóló­plöt­unum mínum tveimur, þar sem ég flyt frum­samið efni. Það er nær manni og maður er kannski á ein­læg­ari nótum á þeim.“

Fór út fyrir þæg­ind­ara­mmann
Tón­list­ar­fer­ill Helga er ansi víð­feðmur og spannar alls konar tón­list­ar­greinar, var ekk­ert erfitt fyrir rokk­goðið og kyn­táknið Helga Björns að skella sér í hvítan dinner-jakka og fara að syngja lög Hauks Morthens, til dæmis? „Nei, nei, alls ekki. Maður er nátt­úr­lega líka leik­ari og getur brugðið sér í ýmis hlut­verk. Og þegar maður er far­inn að þykkna aðeins um miðj­una fær­ist aðeins meiri ró og æðru­leysi yfir mann og maður er ekki eins hégóma­gjarn og þegar maður var ungur. Ég hafði sungið frum­samin lög í tíu, tutt­ugu ár þegar ég fór að gera „cover“ af lögum ann­arra og þá fannst mér ástæða til að leyfa söngv­ar­anum að takast á við smáá­skor­anir. Þar fór ég út fyrir minn þæg­ind­ara­mma og fór að gera alls konar hluti sem síðan reynd­ust bara rosa­lega skemmti­legir.“
Skiptir popp­stjörnu­hlut­verkið þá ekki öllu máli þegar upp er staðið? „Sko,“ segir Helgi og dregur djúpt and­ann. „Ef maður er í þessu starfi á annað borð, vill maður auð­vitað að fólk hlusti á mann og hafi áhuga á því sem maður er að gera. En ég gengst ekki upp í því að vera eitt­hvað ædol. Ég er frekar feim­inn og mér finnst það oft óþægi­legt þegar ég verð of mik­ill mið­punktur. Það er alltaf þessi bar­átta. Maður vill fá aðdáun og eft­ir­tekt en svo vill maður ekki of mikið af henni. Ég held að allir lista­menn þekki það.“

„Ég er frekar feim­inn og mér finnst það oft óþægi­legt þegar ég verð of mik­ill mið­punktur. Það er alltaf þessi bar­átta. Maður vill fá aðdáun og eft­ir­tekt en svo vill maður ekki of mikið af henni.“
Helgi Björns hefur engu gleymt.

Áttu ekki að verða eldri en þrí­tugir
Hvort sem Helga líkar það betur eða verr þá er hann ædol í rokk­brans­anum, finnst honum ekk­ert erfitt að eld­ast í brans­anum? „Ég veit ekki hvort ég er eitt­hvert ædol,“ segir Helgi, hálf­p­irr­aður á þess­ari spurn­ingu. „Mér finnst enn gaman að koma fram og gera nýja rokktón­list en auð­vitað er erfitt að eld­ast í þessum bransa. Það er engin spurn­ing. Þessi list­grein verður upp­haf­lega til hjá ungu fólki og á fyrstu árum rokks­ins átti helst eng­inn að verða eldri en þrí­tugur, helst ekki eldri en 27. Þá áttu menn bara að stimpla sig út. Þannig að það er ekk­ert endi­lega gert ráð fyrir að menn eld­ist í þessu. Hins vegar eru Stones og fleiri búnir að gefa okkur alls konar dæmi um það að þetta er alveg hægt. Það sem er skrýtið hér í okkar litla sam­fé­lagi er að fámennið gerir það að verkum að ef ein­hver hefur verið fyrir aug­unum á þér í þrjá­tíu ár ertu eig­in­lega búinn að fá alveg nóg af honum, sem er ósköp eðli­legt. Það er alltaf þessi krafa um að fá nýtt fólk inn, nýjar per­sónur og leik­endur til að fylgj­ast með í fjöl­miðl­unum. Á móti kemur að þegar þú verður eldri öðlastu meiri virð­ingu fyrir lífs­starfið, eða þannig er það erlendis, en hér eru allir bara ein­hvern veg­inn búnir að fá nóg af þér; kemur hann einu sinni enn … Þetta er stundum svo­lítið pirr­andi en maður skilur for­send­urnar á bak við þetta og tekur það ekki nærri sér.“
Það eru greini­lega ekki allir búnir að fá nóg af Helga Björns, eins og miða­sala á tón­leik­ana á laug­ar­dag­inn sýnir best. Datt honum í hug þegar hann var 16 ára með popp­stjörnu­drauma að hann myndi fylla Laug­ar­dals­höll­ina á sex­tugs­af­mæl­inu? „Nei, maður var nú ekk­ert að spá í það,“ segir Helgi og glottir. „Ég var meira að hugsa um Wembley á þeim tíma. Þannig að ég hef kannski ekki alveg náð tak­mark­inu.“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð