Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Öruggur sigur eða ekki?

Mannlíf fékk tvo sér­fræð­inga, Krist­jönu Arn­ars­dóttur, íþrótta­f­rétta­konu á RÚV, og Elvar Geir Magn­ús­son, rit­stjóra Fótbolti.net, til að spá fyrir um úrslit leiks Íslenska kvenna­lands­liðs­ins gegn Þýska­landi á morgun.

Öruggur sigur eða ekki?
||

Dáist að íslensku stelpunum

Krist­jana Arn­ars­dóttir. Mynd / Aldís Páls­dóttir.

„Ég spái því að við vinnum þetta 2-1 og að Sara Björk Gunn­ars­dóttir og Elín Metta Jensen skori mörkin. Ég er bjart­sýn á að stelp­urnar spili vel og ég veit hrein­lega að þær eru alveg ofboðs­lega til­búnar í þetta verk­efni. Það sést á þeim langar leiðir,“segir Krist­jana Arn­ars­dóttir, íþrótta­f­rétta­kona á RÚV.

Krist­jana var ein þeirra sem sá um umfjöllun um HM karla í Rúss­landi í sumar og er nú nýbyrjuð í síð­búnu og lang­þráðu sum­ar­fríi. Hún verður því erlendis og fjarri góðu gamni á morgun þegar flautað verður til leiks­ins mik­il­væga gegn Þjóð­verjum klukkan 15 á Laug­ar­dals­velli.

„Það kemur hins vegar ekk­ert annað til greina en að sjá þennan leik og ég mun finna leiðir til þess, lög­legar eða ólög­legar,“segir hún og skellir upp úr. Hún er ánægð með að mið­arnir á leik­inn hafi rokið út. „Að mínu mati er það sjálf­sögð krafa að við fyllum Laug­ar­dals­völl­inn í fyrsta sinn á kvenna­lands­leik og í raun fárán­legt að þurfa að biðja fólk um að mæta. Það ger­ist varla stærra, að spila á móti stór­liði Þýska­lands í leik sem gæti tryggt okkur inn á HM í Frakk­landi. Það er mikið rætt um karlaknatt­spyrnu ann­ars vegar og kvennaknatt­spyrnu hins vegar og mun­inn á þessu tvennu varð­andi umgjörð og fleira og við verðum bara að sýna það í verki að við styðjum stelp­urnar og mæta á völl­inn.“

Krist­jana sér fyrir sér að það fari mikil orka hjá íslenska lið­inu í stór­leik­inn gegn Þýska­landi og býst fast­lega við breyt­ingum á byrj­un­ar­lið­inu milli hans og viður­eign­ar­innar gegn Tékkum sem fram fer á þriðju­dag­inn. „Ég held að við komum til með að leika var­færn­is­lega gegn Þjóð­verjum og treysta á skynd­i­sóknir og föst leikatriði, enda hafa föstu leikatriðin verið að skila sér í leik liðs­ins síð­ustu miss­eri. Ef þær eru þéttar aft­ast á vell­inum og halda skipu­lagi hef ég trú á því að þetta falli með okkur,“segir hún og bætir við að fjar­vera lyk­il­leik­manna á borð við Hörpu Þor­steins­dóttur og Dagnýju Brynjars­dóttur sé vissu­lega áhyggju­efni en eigi þó lík­lega ekki eftir að ráða úrslitum.

„Þær hafa lagt svo mikið á sig og eiga svo inni­lega skilið að vera komnar í þessa stöðu sem þær eru í núna.“

„Auðvitað er alltaf slæmt að missa leik­menn úr hópnum, hvort sem þeir eru í byrj­un­ar­lið­inu eða ekki, því það hefur áhrif á hóp­inn í heild sinni og getur hróflað við jafn­vægi. Ég fékk bara í mag­ann þegar ég sá að Harpa hafði slitið kross­band, það var svo hræði­legt. En við erum með breiðan og góðan hóp og margar ungar stelpur sem hafa komið inn af miklum krafti svo ég hef litlar áhyggjur af þessu.“Íþrótta­f­rétta­konan lék lengi knatt­spyrnu sjálf, meðal ann­ars í yngri flokkum með nokkrum af núver­andi lands­liðs­hetj­unum. „Ég æfði til dæmis með Söru Björk Gunn­ars­dóttur, Fanndísi Frið­riks­dóttur og Berg­lindi Björgu Þor­valds­dóttur í Breiða­bliki og hef fylgst með þessum gömlu liðs­fé­lögum af aðdáun æ síðan. Ég er rosa­lega stolt af þeim. Þær hafa lagt svo mikið á sig og eiga svo inni­lega skilið að vera komnar í þessa stöðu sem þær eru í núna. Ég dáist að þessum stelpum,“ segir Krist­jana.

Grjótharðir töffarar

Elvar Geir Magn­ús­son, rit­stjóri Fótbolti.net, lengsti til vinstri.

„Það er nú þannig með mig að ég er nán­ast alltaf svart­sýnn þegar liðin mín eru að spila, svo ég segi að Þýska­land vinni þennan leik 0-2. Ég vona hins vegar inni­lega að ég hafi rangt fyrir mér,“ segir Elvar Geir Magn­ús­son, rit­stjóri Fótbolti.net.

Elvar hefur fylgst vel með íslenska kvenna­lands­lið­inu í gegnum árin og fylgdi lið­inu meðal ann­ars eftir á tvö síð­ustu stór­mót þess, EM í Svíþjóð árið 2013 og EM í Hollandi árið 2017, þar sem hann vann að umfjöllun um liðið og var því í nokkru návígi við leik­menn, þjálf­ara og starfs­lið.

„Þegar maður fylgist svona vel með lið­inu með­tekur maður betur móral­inn í hópnum, hvernig leik­menn­irnir eru utan vallar og fleira í þeim dúr,“ segir Elvar Geir og hikar ekki þegar hann er spurður að því hvort eitt­hvert eitt atriði ein­kenni kvenna­lands­liðið öðrum fremur. „Það sem er mest ein­kenn­andi við íslenska kvenna­lands­liðið er hvað þetta eru hrika­lega miklir töffarar. Þetta eru upp til hópa grjót­harðar stelpur sem geisla af sjálfs­ör­yggi og koma hreint fram. Mjög flottar fyr­ir­myndir sem eru ekk­ert að „feika það“. Þær eru ein­fald­lega nátt­úru­legir töffarar,“segir hann og tekur undir það að slíkir eig­in­leikar séu nán­ast lífs­nauð­syn­legir í fari knatt­spyrnu­kvenna þar sem þær hafi heldur betur þurft að hafa fyrir hlut­unum í gegnum tíð­ina. „Það er enn langt í land hvað varðar mun­inn á umgjörð og fleira hjá körlum og konum í knatt­spyrnu, eins og ég hef séð á þessum stór­mótum. Þróunin í kvennaknatt­spyrn­unni hefur verið ör á und­an­förnum árum og gengið hratt, en nú finnst mér eins og aðeins sé farið að hægj­ast á því ferli aftur. En bilið fer þó minnk­andi og þetta stefnir í rétta átt, sem er jákvætt.“

„Þetta eru upp til hópa grjót­harðar stelpur sem geisla af sjálfs­ör­yggi og koma hreint fram. Mjög flottar fyr­ir­myndir sem eru ekk­ert að „feika það“. Þær eru ein­fald­lega nátt­úru­legir töffarar.“

Eins og áður sagði var Elvar Geir staddur á EM í Frakk­landi sum­arið 2017 þar sem flest gekk á aft­ur­fót­unum hjá íslenska lið­inu og því mistókst að ná í stig. Bjóst hann við því þá að liðið yrði í þeirri stöðu að geta tryggt sig inn á HM ein­ungis rúmu ári síðar?„Nei, ég get ekki sagt það, og ég bjóst alls ekki við því að þær myndu vinna Þýska­land á úti­velli í fyrri leiknum í und­ankeppn­inni. En stelp­urnar spila jafnan vel gegn erf­iðum and­stæð­ingum, eins og sýndi sig á EM þar sem besta frammi­staðan kom gegn Frökkum. Sá leikur tap­að­ist í raun á ein­stak­lings­mi­s­tökum en heild­ar­frammi­staðan var góð og upp­leggið gekk full­kom­lega upp.“

Rit­stjór­inn segir ekk­ert laun­ung­ar­mál að íslenska liðið eigi eftir að liggja í skot­gröf­unum í stór­leiknum á morgun. „Freyr þjálf­ari hefur sjálfur talað um að jafn­tefli yrðu góð úrslit. Sókn­ar­leik­ur­inn hefur verið akki­les­ar­hæll liðs­ins að und­an­förnu og ég gæti trúað því að Telma Hjalta­lín Þrast­ar­dóttir úr Stjörn­unni sem er nýliði í íslenska hópnum, gæti orðið óvænt vopn í þessum leik. Ég myndi ekki gapa þótt hún kæmi beint inn í byrj­un­ar­liðið, en ég get líka séð hana í stóru hlut­verki af bekknum. Þær þýsku eru með bakið upp við vegg og þær eru með­vit­aðar um að það yrði stór­slys ef þær kæmust ekki á HM. Vonandi vinnur sú pressa með okkur,“ segir Elvar Geir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ