Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Tilnefnd til virtra verðlauna í Noregi

Agnes Árna­dóttir er fram­kvæmda­stjóri og einn af stofn­endum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Green Wave Holding AS. Félagið sem var stofnað í byrjun þessa árs hefur látið hanna nýstár­legt raf­knúið skip sem mun umbylta far­þeg­a­sigl­ingum í fjörðum Noregs.

Tilnefnd til virtra verðlauna í Noregi
|
Skipið verður gert út til skoð­un­ar­ferða og skemmti­sigl­inga um inn­firði Norður-Noregs árið um kring.

Skipið sem þegar hefur fengið nafnið Brim I er í smíðum í Álasundi og verður 25 metra löng tví­bytna með rými fyrir 140 far­þega. Skipið verður gert út til skoð­un­ar­ferða og skemmti­sigl­inga um inn­firði Norður-Noregs árið um kring. Áætlað er að nýsmíðin verði til­búin til afhend­ingar næsta sumar og stefnt er á fyrstu ferð frá Lófóten í ágúst 2019. Heima­höfn verður í Tromsø og þaðan verður boðið upp á ferðir yfir vetr­ar­mán­uð­ina en vetr­ar­ferða­mennska hefur vaxið mikið í Norður-Noregi.

Agnes sem er fædd og upp­alin á Íslandi er reynslu­bolti á sviði ferða­þjón­ustu á sjó en hún starf­aði um ára­bil fyrir íslenska ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Norð­ur­sigl­ingu. Hún stýrði m.a. sam­starfs­verk­efni Norð­ur­sigl­ingar og Hurtigru­ten í Noregi um þróun umhverf­is­vænna sigl­inga, áður en hún söðl­aði um og stofn­aði eigið fyr­ir­tæk  ásamt félaga sínum Espen Larsen-Hakkebo með aðkomu fjár­festa.

„Okkur hefur dreymt um það lengi að byggja og þróa nýtt, nútíma­legt og umhverf­is­vænt skip fyrir ferða­þjón­ustu. Noregur með alla sína strand­lengju, spenn­andi firði og vax­andi túrisma þarf að geta boðið upp á eitt­hvað sem er í takt við fram­tíð­ina,“ segir Agnes en að hennar sögn eru Norðmenn komnir langt á sviði raf­væð­ingar far­ar­tækja, sér­stak­lega hvað bíla­flot­ann varðar og hafa mikla trú á lausn­a­mið­aðri tækni­væð­ingu.

„Við erum að þróa skip sem stenst kröfur fram­tíð­ar­innar og ryðjum þannig braut­ina að umhverf­is­vænni ferða­þjón­ustu um allan heim.“

Agnes bendir á að hávær umræða hafi verið í Noregi und­an­farin ár um umferð stórra skemmti­ferða­skipa í djúpum fjörðum og þá mengun sem þau valda. „Líklega verður þessum stóru skipum bannað að sigla alla leið inn í umrædda firði og hug­myndir eru uppi um að hafa ákveðin svæði  útblást­urs­laus, til að draga úr mengun. „Í ljósi þess fannst okkur skyn­sam­legt að fara í þessa fjár­fest­ingu núna. Við erum að þróa skip sem stenst kröfur fram­tíð­ar­innar og ryðjum þannig braut­ina að umhverf­is­vænni ferða­þjón­ustu um allan heim,“ útskýrir Agnes og tekur fram að aug­ljós­lega sé tak­markið að minnka kolefn­is­fót­spor ferða­þjón­ust­unnar en það sé ekki síður mik­il­vægur kostur að skipið er full­kom­lega hljóð­látt.

Kerf­is­hönnun skips­ins er frekar ein­föld með það í huga að ekki þurfi stóran hrað­hleðslu­búnað sem eykur álag á raf­orku­kerfi í landi. „Við getum í raun hlaðið hvar sem er en erum þá með hæg­hleðslu og  þurfum ekki sér­stakan búnað annan en inns­tungu,“ segir hún en full­hlaðnar raf­hlöður skips­ins gefa 800 kílówattstundir af raf­orku sem end­ist í um 10 klst. á sigl­ingu miðað við 10 hnúta hraða. Agnes segir að verk­efnið hafi fengið mikla og jákvæða athygli fjöl­miðla ytra; sér­stak­lega eftir að það var til­nefnt til virtra umhverf­is­verð­launa sem Orku- og lofts­lags­stofnun Noregs veitir frum­kvöðla­fyr­ir­tækjum innan grænnar tækni árlega. Verð­launin sem ganga undir nafn­inu „Spir“ eru hugsuð sem hvatn­ing til að flýta fyrir því ferli að hætta notkun á jarð­efna­elds­neyti og skipta yfir í sjálf­bæra orku í Noregi. Verð­launin verða veitt við hátíð­lega athöfn í Björgvin 4. sept­em­ber nk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ