Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Enginn tími til að hanga á barnum“

Kári Guð­laugs­son er ýmsu vanur þegar kemur að fjalla­sporti þrátt fyrir að vera aðeins fimm ára gam­all. Í sumar hjólaði hann til dæmis niður alvöru­fjalla­brekkur í fríi með for­eldrum sínum í frönsku Ölpunum.

„Enginn tími til að hanga á barnum“
|||
Fjöl­skyldan naut sín vel í Ölpunum í sumar. Hér er Kári ásamt móður sinni og systur.

For­eldrar Kára, sem verður sex ára í nóv­em­ber, eru Manuela Magn­ús­dóttir, tölv­un­ar­fræði­nemi við Háskóla Íslands, og Guð­laugur Ingi Guð­laugs­son, tölv­un­ar­fræð­ingur hjá K3, og eiga auk hans dótt­ur­ina Sóleyju sem er tveggja ára. Þau hafa alla tíð haft áhuga á úti­vist og fjalla­brölti og þegar þau voru í Hjálp­ar­sveit skáta í Reykja­vík kynnt­ust þau meðal ann­ars klifri. „Árið 2012 þegar við áttum von á Kára vorum við ákveðin í að gefa þennan lífs­stíl ekki upp á bát­inn þó að við yrðum for­eldrar. Kári fædd­ist í nóv­em­ber og í maí vorum við lögð af stað í tveggja mán­aða klif­ur­frí til Korsíku. Svo segja má að Kári hafi verið í kringum úti­vist og úti­vi­star­fólk nán­ast frá fæð­ingu. Sömu sögu er að segja um Sóleyju þar sem hún var dregin með í klif­ur­ferð til Sardiníu fimm mán­aða gömul og hafði gaman af,“ segir Manuela og bætir við að þau reyni að velja klif­ur­staði þar sem börn geti athafnað sig. „Flestum börnum finnst gaman að festa sig í línu og klifra smá­vegis, það gefur þeim sjálfs­traust og þau takast á við smá­vegis loft­hræðslu í öruggu umhverfi. En ef þau vilja það ekki er vin­sælt að fá að spranga í klett­inum, köllum það að fara í klif­ur­rólu.“

Kári hafði engan tíma til að „hanga á barnum“ í sum­ar­frí­inu en hér er hann þó í ísstoppi með pabba sínum.

Hjólaði í Ölpunum
Á sumrin ferð­ast fjöl­skyldan mikið inn­an­lands og tekur í flestum til­fellum hjólin með. „Við elskum að fara í frí þar sem allir fá smáút­rás og njóta sín, sumir hafa spurt hvort við kunnum ekki að slappa af en þetta okkar leið til að gera það. Síðasta sumar fórum við í Alpa­fjöllin, til Pra-Loup, en þar er alvöru­hjóla­garður með downhill-braut sem hentar fyrir börn,“ segir Manuela. „Við leigðum fyrir Kára full­de­mpað hjól og allan þann hlífð­ar­búnað sem þarf til þess. Hann byrj­aði á æfinga­svæð­inu en fékk svo grænt ljós á að fara í lyft­urnar þegar hann var búinn með allar æfinga­braut­irnar. Hann var pínu­lítið smeykur þegar hann fór fyrstu ferð­ina úr um það bil 2000 metra hæð niður í 1600 metra hæð en eftir hana vildi hann ekki gera annað. Lengsta dag­inn hans hjólaði hann 16,5 kíló­metra og um það bil 2000 metra niður sem er alveg rosa­lega mikið fyrir svona lít­inn kropp. Við náðum að brjóta þetta aðeins upp með ís af og til, en Kári hafði engan tíma til að „hanga á barnum“. Það var svo ótrú­lega gaman að elta hann niður fjallið og sjá hvernig sjálfs­traustið óx og hvernig hann varð betri með hverri bunu.“

Klifrið hefur fylgt Kára nán­ast frá fæð­ingu.

Ætlar að hjóla niður Skála­fellið
Kári var tveggja ára þegar hann eign­að­ist sitt fyrsta hjól og aðeins hálfu ári seinna var hann far­inn að renna sér niður brattar hjóla­bretta­brekkur. Áhugi hans á hjól­reiðum byrj­aði svo fyrir alvöru tveimur árum seinna þegar hann eign­að­ist pedala­hjól sem hann lærði strax á. „Það sama ár próf­aði hann að fara í hjóla­garð í Frakk­landi þar sem voru pumptrack-, beygju- og stökkæf­inga­svæði, þar var ótrú­legt að fylgj­ast með honum. Honum fannst þetta svo skemmti­legt og gerði allt rétt, hann skildi hvernig átti að hreyfa sig á hjóli án þess að fá nokkra kennslu,“ segir Manuela.
Í vor bauð Hjól­reiða­fé­lag Reykja­víkur upp á æfingar fyrir 4-6 ára, þar fór Kári í fyrsta sinn í alvöru­kennslu hjá nafna sínum, Kára Hall­dórs­syni. „Við mælum hik­laust með slíkum nám­skeiðum,“ segir Manuela. Kári blandar sér nú í sam­talið. „Mér finnst skemmti­leg­ara að hjóla en að klifra og skemmti­leg­ast er að hjóla í Ölpunum. Hérna á Íslandi finnst mér mjög gaman að æfa mig að hjóla niður tröppur og svo fer ég stundum í Öskju­hlíð­ina með pabba eða mömmu. Mér finnst allt skemmti­leg­ast á hjóli nema fara upp,“ útskýrir hann. „Að hjóla er góð íþrótt því maður fær stór læri,“ bætir hann svo við og móðir hans brosir í kamp­inn. „Í fram­tíð­inni langar mig til að fara bara í frí með fjalla­hjólið mitt í Alpana og með vinum mínum. Og líka hjóla niður Skála­fellið,“ segir hann en for­eldrar hans hafa sagt að það þurfi að bíða til næsta árs.
For­eldrar Kára ráð­leggja fólki ein­dregið að taka börnin með í svona sport. „Við finnum hvað börnin slappa vel af utandyra og tala nú ekki um ef þau eru að gera eitt­hvað sem að þeim finnst virki­lega spenn­andi. Það færir okkur öll nær hvert öðru að eiga svona sam­eig­in­legan flöt,“ segir Manuela að lokum en næst á dag­skrá er hjóla­ferð til vina­fólks í Bergen og hjóla- eða skíða­ferð um næstu jól. Í vetur von­ast þau til að vera dug­leg á skíðum og kenna Sóleyju á skíði.

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð