Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hvernig er hægt að gera leigumarkaðinn öruggari?

Hvernig er hægt að gera leigumarkaðinn öruggari?

Leigu­mark­að­ur­inn á Íslandi er óstöð­ugur og hefur hækkað hratt á und­an­förnum árum. Hvaða ástæður liggja að baki því og hvernig getum við bætt hann að mati sér­fræð­inga?

Konráð S. Guð­jóns­son.

Stefna íslenskra stjórn­valda um að betra sé að eiga en að leigja íbúð virð­ist hafa leitt til óör­yggis og sveiflna á leigu­mark­aði. Þrír hag­fræð­ingar hafa lagt fram til­lögur sínar til að sporna við þessum sveiflum, en allar eru þær eru ólíkar í eðli sínu. Gætu þessar breyt­ingar raun­veru­lega leitt til stærri og örugg­ari leigu­mark­aðar á Íslandi?

Lág­tekju­fólk greiddi á Íslandi að jafn­aði helm­ing ráð­stöf­un­ar­tekna sinna í leigu árið 2016, meira en á öllum hinum Norð­ur­lönd­unum sam­kvæmt nýlegri skýrslu Íbúða­lána­sjóðs. Hlutfall íbúa á leigu­mark­aði var einnig nokkuð lágt miðað við sömu löndin þrátt fyrir aukn­ingu síð­ari ára, en árið 2016 var það ein­ungis lægra í Noregi. Íslend­ingar virð­ast því leigja minna og búa við verri kost á leigu­mark­aði sam­an­borið við aðrar Norð­ur­landa­þjóðir.

Ólafur Mar­geirs­son.

Þessi staða hefur ekki gerst að sjálfu sér, að mati Konráðs S. Guð­jóns­sonar, hag­fræð­ings Við­skipta­ráðs. Samkvæmt honum hefur sér­eign­ar­stefnan sem rekin hefur verið af stjórn­völdum skapað hvata til þess að eiga frekar en að leigja hús­næði. Líkt og Konráð segir Ólafur Mar­geirs­son hag­fræð­ingur þá hugsun að Íslend­ingar „eigi að eiga“ hús­næði hafa leitt til meiri skuld­setn­ingar, hærra fast­eigna­verðs og óstöð­ug­leika á hús­næð­is­mark­aði. Í erindi sem hann hélt á fundi á vegum stétt­ar­fé­lags­ins Eflingar á mánu­dag sagði hann að ein lausn á þessu vanda­máli gæti verið sú að auka aðkomu lang­tíma­fjár­festa að leigu­mark­aðnum á Íslandi, þá einna helst með leigu­fé­lögum sem líf­eyr­is­sjóð­irnir gætu átt og rekið.

Una Jóns­dóttir.

Una Jóns­dóttir hag­fræð­ingur hjá Íbúða­lána­sjóði tekur undir áhyggjur Konráðs og Ólafs um afleið­ingar sér­eign­ar­stefn­unnar. Una veltir því upp hvaða leigu­verð gæti talist sann­gjarnt og eðli­legt. Þar sem hús­næði sé nauð­synja­vara og öruggt aðgengi að þeim séu skil­greind sem mann­rétt­indi sam­kvæmt Sam­ein­uðu þjóð­unum væru rík­is­af­skipti óum­flýj­an­leg.

Ítarleg frétta­skýr­ing um leigu­mark­að­inn á Íslandi er að finna í nýjasta tölu­blaði Mannlífs. Nánar má lesa um málið á vef Kjarnans.

Texti / Jónas Atla Gunn­ars­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð