Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Alltaf ætlað að sigra heiminn

Alltaf ætlað að sigra heiminn
Aldís Páls­dóttir

Þor­steinn B. Frið­riks­son varð auga­steinn þjóð­ar­innar á nán­ast einni nóttu þegar leik­ur­inn QuizUp, sem fyr­ir­tæki hans Plain Vanilla fram­leiddi, varð vin­sæl­asti tölvu­leikur í heimi. Að sama skapi var fólk krítískt þegar selja þurfti leik­inn úr landi og loka fyr­ir­tæk­inu hér. Þor­steinn segir það hafa gengið nærri sér en hann hafi lært af mis­tök­unum og sé til­bú­inn að gera betur. Nýtt fyr­ir­tæki hans, Teatime, hefur fengið ríf­andi start og hann full­yrðir að hug­myndin að baki þess hafi alla burði til að verða miklu útbreidd­ari en QuizUp var.

Nýtt fyr­ir­tæki Þor­steins og þriggja ann­arra, Teatime Games, hefur tryggt sér fjár­mögnun erlendra fjár­festa upp á tæpan millj­arð íslenskra króna til að þróa nýjan leikja­búnað fyrir snjall­síma. Í stuttu máli seg­ist hann bara vera ótrú­lega þakk­látur fyrir að hafa fengið þessar góðu und­ir­tektir. „Það þýðir þá kannski að það er eitt­hvert vit í því sem maður er að gera og þeim hug­myndum sem maður er með. Þegar erlendir sjóðir þar sem eru sér­fræð­ingar í tækni­fjár­fest­ingum eru til­búnir að veðja svona miklu á þennan hest, án þess að við séum í raun­inni búnir að fram­leiða neitt þá fyllist maður auð­vitað þakk­læti og auð­mýkt.“

Spurður hvort það hafi kostað mikla vinnu að fá þessa stóru fjár­festa að borð­inu við­ur­kennir hann að svo sé. „Já, já, það er vinna,“ segir hann hóg­vær. „En hins vegar finn ég fyrir því að reynslan af Plain Vanilla hefur gert það mun auð­veld­ara núna að fá inn fjár­magn. Kannski vegna þess að teymið sem stendur að þessu fyr­ir­tæki, Teatime Games, stóð að fram­leiðslu QuizUp og hefur sýnt fram á það að við getum fram­leitt eitt­hvað sem virkar. Þannig að ef ég ber saman hvernig það var að fá inn fjár­magn fyrir Plain Vanilla og Teatime þá er þetta allt annað ferli núna.“

Nýtur góðs af fyrri tengslum

Þor­steinn vill þó ekki kann­ast við að vera orð­inn stórt nafn í þessum geira þegar hann er spurður út í það.

„Nei, nei, en hins vegar er þetta ótrú­lega lít­ill heimur, sem oft er kenndur við Sílíkondal­inn, og QuizUp náði þeim hæðum að verða mjög vel þekkt for­rit út um allan heim og sér­stak­lega hjá þeim í Sílíkondalnum sem fylgj­ast grannt með því sem er að ger­ast í tækn­inni og við fundum alveg fyrir því að þegar það gekk sem best með QuizUp þá vildu allir fjár­festa í fyr­ir­tæk­inu. Þannig að það má segja að ég njóti góðs af þeim tengslum sem mynd­uð­ust í gegnum það. Þá kynnt­ist ég þeim helstu í þessum bransa og það er auð­veld­ara að fá áheyrn hjá þeim núna.

Ég man þegar ég flutti til San Francisco og var að fara af stað með Plain Vanilla þá var nán­ast ómögu­legt að fá fundi með þessum stóru sjóðum. En nú er þetta miklu auð­veld­ara þar sem maður þekkir orðið margt af þessu fólki per­sónu­lega. En samt sem áður skal ég alveg við­ur­kenna það að ég átti ekki von á því að það myndi ganga svona hratt og vel að fá fjár­magn inn í Teatime.

Sér­stak­lega þar sem fjár­festar vilja oft helst ekki vera mikið að fjár­festa í fyr­ir­tækjum sem hafa ekki enn gefið út neina vöru. Þeir vilja oft bíða eftir því að það komi eitt­hvað út og ef það verður vin­sælt þá hrúg­ast þeir inn og vilja setja pen­inga í það. Þannig að ég held að auk þess sem tengsl okkar inn í Sílíkondal­inn skiptu auð­vitað máli þá hafi hug­myndin sem Teatime gengur út á alla mögu­leika á að verða miklu stærri heldur en QuizUp var nokkurn tíma.“

„Þetta virð­ist vera það góð hug­mynd að þessir fjár­fest­inga­sjóðir eru til­búnir til að leggja tæpan millj­arð í okkur án þess að við séum búnir setja neitt á markað enn,“ segir Þor­steinn um hug­mynd­ina sem liggur að baki nýju fyr­ir­tæki hans, Teatime Games.

Gæti breytt tölvuleikjaspili til frambúðar

Þor­steinn er tregur til að gefa of mikið upp um það út á hvað hug­myndin gengur en fellst þó á að gefa okkur örlitla inn­sýn í það. „Við viljum ekki gefa það alveg upp út á hvað hún gengur, ein­fald­lega af sam­keppn­is­á­stæðum,“ segir hann. „En sýn Teatime er í stuttu máli sú að leikir yfir­höfuð, það að spila ein­hver spil, sé eitt­hvað sem fólk hafi sótt í í þús­undir ára. Það hefur alltaf verið ein­hver þörf hjá okkur mann­fólk­inu að spila saman spil. Við lítum svo á að verð­mæti þess að spila spil hafi alltaf verið meira fólgin í þessu „sós­íal elem­enti“. Þú spilar ekki olsen olsen við ein­hvern vegna þess að það sé svo vel hannað spil, heldur vegna þess að það er gaman að eiga stund með ein­hverri annarri mann­eskju og spjalla í kringum spilið, vera í sam­skiptum við annað fólk. Tölvu­leikir, eins og Playstation og Nintendo, eru frá­bærir en samt sem áður var skemmti­leg­ast að spila þá með vinum sínum og spjalla saman á meðan. Svo komu snjall­sím­arnir sem til er rosa­lega mikið af leikjum fyrir sem hafa algjör­lega slegið í gegn en þeim fylgir sá ókostur að símar eru tæki sem maður notar bara einn, það að spila leik í snjall­síma er meira ein­angr­andi og þannig missir sá sem spilar af þessum mikli­væga þætti sem eru sam­skiptin við annað fólk.

Það sem við erum að byggja í Teatime er ákveðin tækni til þess að leyfa fólki að spila saman leiki í sím­anum og eiga um leið mjög rík og skemmti­leg sam­skipti hvert við annað. Þetta er leið til að spila við vini eða kynn­ast nýju fólki á hátt sem hefur ekki verið gerður áður. Þetta virð­ist vera það góð hug­mynd að þessir fjár­fest­inga­sjóðir eru til­búnir til að leggja tæpan millj­arð í okkur án þess að við séum búnir setja neitt á markað enn.“

Hitti toppana úr Sílíkondal í Oxford

Spurður hvernig staðið hafi á því að hann lenti inn í tölvu­leikja­geir­anum, segir Þor­steinn að það eigi sér ýmsar skýr­ingar. Hann hafi samt ekki verið neitt sér­stakur tölvu­leikjanörd þegar hann var strákur, þótt hann hafi auð­vitað spilað þá eins og allir krakkar á þeim tíma. Þar að auki sé hann ekki for­rit­ari, en hann hafi alltaf verið tækja­kall með áhuga á biss­ness.

„Ég hef alltaf haft áhuga á tölvun en meiri áhuga á við­skipta­hlið­inni samt,“ útskýrir hann. „Ég fór í við­skipta­fræði í Háskól­anum og lagði áherslu á mark­aðs­málin. Svo ger­ist það þegar iPhon­inn kemur að ég heill­ast alveg af þess­ari nýju tækni og fer að velta fyrir mér mögu­leik­unum sem hún býður upp á. Á sama tíma er ég að flytja út til Englands og hefja MBA-nám í Oxford-háskóla og þar kviknar þessi neisti og ég átta mig á því hvað heim­ur­inn er að verða spenn­andi með til­komu þess­ara nýju tækja. Í háskól­anum í Oxford voru þeir með pró­gramm sem hét Silicon Valley comes to Oxford og fengu alla helstu topp­ana úr Sílíkon­dal, algjöra þunga­vigt­ar­menn í brans­anum, til að koma og vera með vinnu­stofur fyrir okkur nem­end­urna. Ég féll alveg fyrir þessum heimi og þótti sér­stak­lega áhuga­vert að með þessum nýju tækjum var búið að brjóta niður öll landa­mæri þegar kom að dreif­ingu. Þannig að allt í einu opn­að­ist sá mögu­leiki að vera með fyr­ir­tæki á Íslandi sem væri að keppa á alþjóð­legum mark­aði. Það fannst mér mjög spenn­andi.“

En þegar þú fórst upp­haf­lega í við­skipta­fræð­ina hvað hafð­irðu þá hugsað þér að verða þegar þú yrðir stór?

„Ég bara vissi það ekki,“ segir Þor­steinn og hlær. „Ég hafði ætlað mér að verða leik­ari þegar ég var lít­ill og eftir við­skipta­fræð­ina vann ég stutta stund sem frétta­maður, bæði á RÚV og Stöð2, og var að máta mig við alls konar störf. Ég fór eig­in­lega bara í við­skipta­fræð­ina til að skilja aðeins betur hvernig heim­ur­inn virkar. En eftir þessa reynslu í Oxford voru örlög mín ráðin. Ég stofn­aði Plain Vanilla 2010 og fyrsti tölvu­leik­ur­inn sem ég bjó til var barna­leikur sem hét Moogies. Hann gekk mjög illa, væg­ast sagt, en ég hélt ótrauður áfram.“

Nýtt fyrirtæki og ný kærasta á sama tíma

Er þetta ekki brjál­æð­is­leg vinna? Áttu eitt­hvert einka­líf?

„Ég á tvö börn sem eru núna 13 og 9 ára og ég sinni þeim auð­vitað auk þess sem ég er í til­tölu­lega nýju sam­bandi og á tvo ketti. Það er ekki mikið meira sem ég kemst yfir,“ segir Þor­steinn. „Ég og barns­móðir mín skildum fljót­lega eftir að við komum heim frá Oxford og eftir það stofn­aði ég Plain Vanilla. Það var nátt­úr­lega brjál­æð­is­leg vinna að koma því fyr­ir­tæki á kopp­inn og ég við­ur­kenni það alveg að það er ekk­ert sér­stak­lega hent­ugt á þessum fyrstu stigum fyr­ir­tækis að vera í sam­bandi. Það gafst ekki mik­ill tími fyrir það.“

Með upp­gangi Plain Vanilla varð Þor­steinn skyndi­lega þjóð­ar­eign og allir fylgd­ust grannt með öllu sem hann tók sér fyrir hendur, hvernig upp­lifun var það?

„Ég er á svo ótrú­lega góðum stað núna, bæði með Teatime og einka­lífið sem er í góðu jafn­vægi og börnin mín eru mínir helstu stuðn­ings­menn í öllu og maður þarf að muna að njóta stund­ar­innar þegar allt gengur upp,“ svarar Þor­steinn glott­andi, þegar hann er spurður hvernig honum gangi að sinna einka­líf­inu fyrir utan vinn­una.

„Þegar QuizUp sló í gegn, undir lok árs 2013, þá beindust augu allra Íslend­inga að þessu fyr­ir­tæki. QuizUp varð vin­sæl­asti leikur í heim­inum á tíma­bili og ég skil það mjög vel að við sem lítil þjóð eigum það til að verða mjög stolt af því sem Íslend­ingar eru að gera, sér­stak­lega á erlendri grundu. Þannig að við urðum svona pínu­lítið óska­barn þjóð­ar­innar. Við stækk­uðum rosa­lega hratt og vorum mjög mikið í fjöl­miðlum og ég fann auð­vitað líka fyrir því að áhugi á mér sem per­sónu óx. Sem hafði bæði ýmsa kosti og ókosti. Það erf­ið­asta við það var þegar við síðan lendum í því, í lok árs 2016, að sjá fram á það að þurfa að selja QuizUp úr landi og loka Plain Vanilla-skrif­stof­unum á Íslandi. Það var sér­stak­lega erf­iður tími fyrir mig. Eftir að hafa í nokkur ár verið óska­barn þjóð­ar­innar og mikið í umræð­unni var það mikið áfall að þurfa að loka og segja upp næstum hund­rað manns. Þetta gerð­ist í byrjun árs 2017, það er bara eitt og hálft ár síðan.

Í gegnum það sem ég hef verið að gera hafa verið margir stórir sigrar en líka svo stórir ósigrar og ég held að það sé eitt­hvað sem ég þurfi að sætta mig við til að geta haldið áfram með það líf sem ég valdi mér með því að fara út í þetta. Að keppa í tækni­brans­anum á alþjóð­legu mark­aðs­svæði þýðir að þú ferð ýmist hratt upp eða hratt niður. Og ég við­ur­kenni það að eins gaman og það er þegar gengur vel, eins og þegar við slógum í gegn með QuizUp, þá er jafn­erfitt að standa frammi fyrir því að þurfa að loka fyr­ir­tæk­inu og um leið að berj­ast við allar þessar sögu­sagnir um alls konar ástæður fyrir því. Maður fær yfir sig her af fólki sem vill endi­lega segja manni hvað maður hefði átt að gera öðru­vísi, hvort sem það er á opin­berum vett­vangi eða fólk á förnum vegi.

Eftir að QuizUp var lokað ákvað ég að taka mér árs frí til að hreinsa hug­ann, ákveða næstu skref en það gekk ekki betur en svo að tveim eða þrem mán­uðum seinna hóp­uðum við okkur saman fjórir æðstu stjórn­end­urnir hjá QuizUp og ákváðum að gef­ast ekki upp og fá okkur aðra vinnu, það er svo gef­andi og skemmti­legt að skapa eitt­hvað svona. Núna vorum við reynsl­unni rík­ari og vissum betur hvað þarf til og við fórum yfir alls konar hug­myndir sem við urðum spenntir fyrir en reynd­ust kannski ekki sniðugar við nán­ari skoðun. Svo kom pæl­ingin um Teatime upp síð­asta sumar og það er gaman að hugsa til þess hvað hlut­irnir hafa breyst hratt.

Fyrir nákvæm­lega ári síðan var þessi hug­mynd ekki komin upp og ég var dálítið leiður. Ég var ekki í sam­bandi, ekki með vinnu og dapur yfir því hvernig þetta fór með QuizUp. Svo kom þessi Teatime-hug­mynd upp stuttu síðar og þá fór allt af stað. Við fengum strax í sept­em­ber inn 1,6 millj­óna doll­ara fjár­fest­ingu í hug­mynd­ina og mán­uði seinna, í októ­ber, kynn­ist ég konu sem er núna kærastan mín sem er það besta sem hefur hent mig í mörg ár.

Þetta er búinn að vera helj­ar­innar rús­sí­bani. Að fara í gegnum svona áfall sem það var fyrir mig að loka Plain Vanilla og vera svona fljótur að stíga aftur í fæt­urna og vera ári seinna kom­inn með fyr­ir­tæki með trygga fjár­fest­ingu og fimmtán starfs­menn sem eru hver öðrum klár­ari að búa til eitt­hvað sem ég held að muni breyta því hvernig fólk spilar tölvu­leiki næstu ára­tugi. Þannig að ég hef lært að ef maður ein­setur sér að takast á við erf­ið­leika, reyna að læra af þeim og reyna að nýta styrk­leik­ana í því sem vel var gert og reyna að forð­ast að end­ur­taka mis­tök þá er það bara þannig að svona nið­ur­sveiflur eru hluti af þess­ari lær­dóms­ferð sem felst í því að stofna fyr­ir­tæki. Og ég er ótrú­lega þakk­látur öllu fólk­inu sem ég hef kynnst í gegnum þetta.“

Með stóra skuld á bakinu

Spurður hvort honum hafi aldrei dottið í hug að gef­ast bara upp og fara að vinna við eitt­hvað allt annað, við­ur­kennir Þor­steinn að það hafi hvarflað að honum. „Jú, jú, margoft,“ svarar hann glað­beittur.

„Ég skil ekki hvers vegna ég er enn þá í þessu, það er eig­in­lega bara algjört krafta­verk. Eftir Moogies-floppið var ég per­sónu­lega með 20 millj­óna króna skuld á bak­inu og sá ekki hvernig ég ætti nokkurn tíma að geta unnið mig upp úr því. Þú vinnur þig ekk­ert svo auð­veld­lega út úr tug­millj­óna króna skuld sem launa­maður ein­hvers staðar.

Ég hafði líka alveg áhyggjur af mér eftir Plain Vanilla þar sem það hefur verið svo mikið í kast­ljós­inu á Íslandi. Það er auð­vitað allt í lagi, það fylgir þessu bara, en ég er á svo ótrú­lega góðum stað núna, bæði með Teatime og einka­lífið sem er í góðu jafn­vægi og börnin mín eru mínir helstu stuðn­ings­menn í öllu og maður þarf að muna að njóta stund­ar­innar þegar allt gengur upp.“

En hvað með önnur áhuga­mál, tekur vinnan allan þinn tíma? Hvernig nýt­urðu lífs­ins þegar þú ert ekki í vinn­unni?

„Ég hef ekki áhuga á neinu öðru og á engin áhuga­mál,“ svarar Þor­steinn glott­andi. „Ég hef ekki mik­inn tíma til að gera neitt annað en sinna vinn­unni og fjöl­skyld­unni. Ég er með konu, tvö börn og tvo ketti og þarf að ferð­ast alveg gríð­ar­lega mikið út af vinn­unni þannig að það að reyna að smeygja inn golfi eða veiði eða ein­hverju svona sem manni finnst að maður ætti að vera að gera verður því miður bara að bíða þangað til ég er kom­inn á eft­ir­laun. Ég held að ein mesta gæfa sem maður getur lent í sé þegar vinnan manns er líka áhuga­málið og ég er svo sann­ar­lega á þeim stað. Það sem mér finnst kannski skemmti­leg­ast, þar sem ég sjálfur er hvorki for­rit­ari né hönn­uður, er að finna „extra­or­din­ary“ fólk sem er algjörir snill­ingar á sínu sviði og sann­færa það um að ein­hver hug­mynd sé góð. Safna því svo saman og sjá hvað ger­ist þegar þú býrð til fyr­ir­tæki með kláru fólki. Verð­mætin sem hægt er að skapa á stuttum tíma með svona blöndu er það sem mér finnst að Ísland ætti að fók­usera á í stað­inn fyrir að ein­blína á stór­iðju. Þessi mannauður sem við eigum býður upp á svo mikla mögu­leika. Mér finnst það ótrú­lega spenn­andi og pæli mikið í því hvernig fyr­ir­tæki eiga að virka, hvernig kúlt­úr­inn eigi að vera, hvernig hægt sé að gera þetta öðru­vísi en gömlu fyr­ir­tækin og búa til sem mest verð­mæti með fólk­inu sínu. Það er mitt áhuga­mál.“

Ekki alltaf bestur eins og mamma sagði

Sérðu fyrir þér að Teatime verði stærra en QuizUp?
„Það er erfitt að segja. Þessi bransi er svo rosa­lega áhættu­samur. Það gæti gerst á morgun að allt í einu poppi upp ein­hver annar með eitt­hvað svipað sem myndi minnka okkar mögu­leika til að ná árangri. Þannig að vinnan mín felst líka í því að vera stöðugt að fylgj­ast með því hvað er að ger­ast í brans­anum. En ég er hins vegar alveg san­færður um það að ef við fram­kvæmum þetta vel þá hefur þetta mögu­leika á að verða miklu stærra heldur en QuizUp, já. Það er nefni­lega svo skemmti­legt með hug­myndir að það er alveg ótrú­lega oft sem fólk er haldið þeim mis­skiln­ingi að það sé nóg að vera með hug­mynd. Svo geti maður bara hallað sér aftur og látið ein­hvern annan sjá um fram­kvæmd­ina. Það er rangt. Fyrir utan það að ef þú ert með hug­mynd sem er góð þá get ég lofað þér því að það hafa að minnsta kosti þús­und aðrir í heim­inum fengið nákvæm­lega sömu hug­mynd. Það sem skilur á milli er að hafa drif­kraft­inn til að fram­kvæma hug­mynd­irnar vel. Ég held að ein af ástæð­unum fyrir því hvað okkur gekk vel að fá fjár­magn inn í þetta fyr­ir­tæki núna sé að auk þess að vera með góða hug­mynd höfum við sýnt fram á að við erum fær um að fram­kvæma hana.“

„Ég vil bara und­ir­strika það að þótt maður lendi í erf­ið­leikum, hvort sem það er að þurfa að loka fyr­ir­tæki eða eitt­hvað annað, þá getur maður nýtt þá erf­ið­leika sem elds­neyti í eitt­hvað stærra og meira,“ segir Þor­steinn.

Hefurðu alltaf verið svona stór­huga? Hefurðu alltaf ætlað þér að sigra heim­inn?
„Jaaá, ég held það bara,“ segir Þor­steinn hugsi. „Ég var mjög lengi einka­barn og fyrsta barna­barn í báðum ættum, þannig að það getur verið að ég hafi það syndróm í mér að hafa verið hampað of mikið sem barni. Svo upp­götaði ég við mín fyrstu mis­tök að ég var ekki alltaf bestur, eins og mamma hafði sagt mér. En ég held ég hafi alltaf haft mik­inn metnað og það er ástæðan fyrir því að ég ákvað að fara í Oxford og síðan að gera það sem ég hef verið að gera. Það jókst þegar ég fór að hitta fólk utan Íslands sem var alþjóð­lega þenkj­andi og leit á heim­inn sem eitt stórt mark­aðs­svæði. Ég man að þegar ég var að byrja að tala við hugs­an­lega sam­starfs­að­ila, þurfti að ná sam­bandi við ein­hvern hjá Apple eða Google, til dæmis, þá fannst manni það algjör­lega óyf­ir­stíg­an­leg hindrun, hvernig ætti ég að tala við ein­hvern hátt­settan hjá svona stóru banda­rísku fyr­ir­tæki? Maður lagði varla í það en svo fattar maður að bak við öll þessi fyr­ir­tæki er bara venju­legt fólk og ef maður leggur sig fram og talar við þetta fólk þá getur maður gert alls konar skemmti­lega hluti.“

Tíminn er að hlaupa frá okkur, er eitt­hvað sem Þor­steini liggur á hjarta og vill koma á fram­færi við þjóð­ina?
„Ég vil bara und­ir­strika það að þótt maður lendi í erf­ið­leikum, hvort sem það er að þurfa að loka fyr­ir­tæki eða eitt­hvað annað, þá getur maður nýtt þá erf­ið­leika sem elds­neyti í eitt­hvað stærra og meira. Mér finnst þessi saga mín geta verið von­ar­neisti fyrir alla þá sem eru í nið­ur­sveifl­unni í lífs­rús­sí­ban­an­anum núna. Á einu ári fór ég frá því að syrgja lokun fyr­ir­tækis sem ég hafði lagt mig fram um að byggja upp í það að fagna vel­gengni nýs fyr­ir­tæki sem ég er að byggja upp með góðu fólki. Og ég er afskap­lega þakk­látur fyrir að hafa fengið þetta tæki­færi.“

Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ