Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Rúmlega 200 prósent aukning í athöfnum hjá Siðmennt

Rúmlega 200 prósent aukning í athöfnum hjá Siðmennt
||||

Aðsókn í athafna­stjóra­nám hjá lífs­skoð­un­ar­fé­lag­inu Siðmennt hefur auk­ist til muna með til­komu auk­ins áhuga á athöfnum á vegum félags­ins. Bjarni Jónsson, fram­kvæmda­stjóri félags­ins, segir það hugn­ast fólki að hafa val á stærstu stund­unum í lífi sínu. Þá sé starf athafna­stjóra vin­sælt meðal lista­manna.

„Fólki sem sýnir áhuga er boðið að vera á lista hinna áhuga­sömu, eins og við köllum hann. Í vetur, þegar um þrjá­tíu manns voru komnir á list­ann, var ákveðið að bjóða upp á nám­skeið í athafna­stjórnun og fimmtán voru loks valdir inn á nám­skeiðið,“ segir Bjarni Jónsson, fram­kvæmda­stjóri Sið­menntar, félag sið­rænna húman­ista á Íslandi. Athafna­stjórar Sið­menntar fram­kvæma athafnir eins og gift­ingar, jarð­ar­farir og nafna­gjafir, en ekki kemst hver sem er í gegnum nál­ar­auga félags­ins.

„Við setjum ákveðnar kríter­íur á fólk til að kom­ast inn í námið. Fólk þarf að deila með okkur lífs­skoðun, geta átt góð sam­skipti við fólk, skrifa góðan texta og, síð­ast en ekki síst, geta flutt texta. Það er tölu­vert af leik­urum og vel þjálf­uðu fólki í fram­komu sem hefur sóst í þetta,“ segir Bjarni.

Gifti fyrrum nemanda sinn

Margrét Gauja.

Meðal starf­andi athafna­stjóra er leið­sögu­mað­ur­inn og stjórn­mála­konan Margrét Gauja Magn­ús­dóttir. „Allar athafn­arnir eru eft­ir­minni­legar, engin er eins og allar jafn­d­á­sam­legar. Auðvitað er mín fyrsta gift­ing­ar­at­höfn sú sem fer efst í minn­inga­bunk­ann. Þau báðu sér­stak­lega um mig og treystu mér alger­lega fyrir þessum stóra degi vit­andi að þetta var mín fyrsta gift­ing­ar­at­höfn. Ég var að fríka út af stressi en und­ir­bún­ing­ur­inn og athöfnin sjálf voru svo dásam­leg að ég sveif um á bleiku skýi í viku á eftir,“ segir Margrét og brosir og rifjar upp aðra ógleym­an­lega stund. „Svo hef ég gift fyrrum nem­anda minn. Það var dásam­legt þar sem athöfnin var leynd­ar­mál og ég faldi mig inni í þvotta­húsi þar sem ég setti slörið í brúð­ina sem ég hafði kennt kyn­fræðslu nokkrum árum fyrr.“

Margrét bjó á Höfn þegar hún tók ákvörðun um að læra að verða athafna­stjóri, þar sem gríð­ar­leg þörf hafði mynd­ast fyrir austan fyrir slíka þjón­ustu. Hún mælir með starf­inu og segir það krefj­andi. „Að fá að kynn­ast fólki og fjöl­skyldum þeirra á svo stórum tíma­mótum er ómet­an­leg reynsla, hvort sem það eru gift­ingar eða nafna­gjafir. Ég fæ að nota peysu­fötin mín reglu­lega sem ég saum­aði þegar ég bjó á Höfn og ég er farin að hafa það sem hefð að biðja móður brúð­ar­innar eða brúð­gumans að aðstoða mig við að setja upp slauf­una. Mér finnst þetta bara hrika­lega gaman en ég tek þessu mjög alvar­lega því passa ég mig á því að taka ekki að mér fleiri en tvær athafnir í mán­uði.“

Metfjöldi athafna í fyrra

Svavar Pétur.

Siðmennt fékk skrán­ingu sem lífs­skoð­un­ar­fé­lag árið 2013 og í kjöl­farið vígslu­rétt­indi. Árið 2014 voru fram­kvæmdar 114 athafnir á vegum félags­ins en í fyrra var þessi tala komin upp í 356. Það er rúm­lega 200% aukn­ing. Nú eru tæp­lega fimm­tíu athafna­stjórar starf­andi um land allt og líður að útskrift þeirra fimmtán sem hófu nám í athafna­stjórnun í vetur. Meðal þeirra er tón­list­ar­mað­ur­inn og bónd­inn Svavar Pétur Eysteins­son.

„Sú saga fór á kreik að ég gæti gefið saman fólk og til þess að verða við kall­inu ákvað ég að ná mér í rétt­indi til þess,“ segir Svavar aðspurður um hans ástæðu fyrir að skella sér í námið. Hann hefur ekki enn fengið tæki­færi til að klára starfs­námið vegna anna en hefur nú þegar fengið bók­anir fram í tím­ann. „Ég vona að ég nái ágætu and­legu jafn­vægi og verði hæfi­lega stress­aður fyrir mína fyrstu athöfn.“

Samræður besta geðlyfið

Björg.

Annar til­von­andi athafna­stjóri er fjöl­miðla­konan og rit­höf­und­ur­inn Björg Magn­ús­dóttir. Hún hafði gengið lengi með þann draum í mag­anum að ger­ast athafna­stjóri og segir námið hafa komið sér á óvart.

„Ég get alveg við­ur­kennt að ég hafði ekki nákvæma hug­mynd um það í hverju ég væri lent þegar ég mætti fyrsta kvöldið eftir langan vinnu­dag. En það, að sitja með góðu fólki og fræð­ast um og pæla í húman­isma og bara líf­inu á breiðum grund­velli, er eitt­hvað sem höfð­aði mjög til mín. Það er svo sem ekk­ert nýtt að góðar sam­ræður um lífs­ins mál­efni séu besta geð­lyfið, en þó eitt­hvað sem er gott að vera minnt á reglu­lega,“ segir Björg og brosir, en fyrsta athöfnin sem hún fram­kvæmir verður í ágúst á þessu ári.

Anna Brynja.

Anna Brynja Bald­urs­dóttir, sam­skipta­stjóri hjá Alfreð og menntuð leik­kona, er einnig með þeim Svavari og Björgu í útskrift­ar­hópi.

„Ég hef aldrei fundið mig innan neinna trú­ar­bragða og þau hef ég skoðað á alla kanta. Þegar ég upp­götv­aði Siðmennt sá ég húmanískt félag sem tekur öllum opnum örmum, óháð lífs­skoð­unum, og leit­ast við að útrýma umburð­ar­leysi með þekk­ingu og efl­ingu á sið­ferð­is­vit­und. Ég vil leggja mitt af mörkum og ákvað að ger­ast athafna­stjóri til að geta aðstoðað þá sem vilja athöfn sem er óháð trú­ar­setn­ingum. Fókusinn verður því á heim­speki­legri nót­unum og á hið sammann­lega.“

Meðal ann­arra þekktra ein­stak­linga sem útskrif­ast von bráðar úr nám­inu er Mörður Árnason, fyrr­ver­andi þing­maður, og leik- og söng­konan Selma Björns­dóttir. Bjarni hlakkar til að útskrifa hóp­inn en telur ólík­legt að nám­skeiðið verði haldið aftur að ári.

„Við köllum þetta jákvætt vanda­mál,“ segir Bjarni hlæj­andi um aðsókn­ina í námið. „Við höfum tekið inn stjóra í skömmtum og ég býst ekki við því að við gerum það á næsta ári. En ég er strax kom­inn með vænan lista yfir þá áhuga­sömu.“

Fjöldi athafna hjá Siðmennt:

2014 – 114 athafnir
2015 – 199 athafnir
2016 – 267 athafnir
2017 – 356 athafnir
Fyrstu fimm mán­uði árs­ins 2018 – 240 athafnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ