Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Geta ekki útskrifað sjúklinga af Kleppi

Öryggis- og rétt­ar­geð­deildin á Kleppi getur ekki útskrifað fólk sem hefur lokið með­ferð vegna skorts á félags­legu hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Á meðan er ekki hægt að taka við nýjum sjúk­lingum. Algjört ófremd­ar­á­stand segir sál­fræð­ingur á Kleppi.

Geta ekki útskrifað sjúklinga af Kleppi
|
Elsa Bára Trausta­dóttir, sál­fræð­ingur á öryggis- og rétt­ar­geð­deild­inni á Kleppi.

„Við getum ekki tekið við nýjum sjúk­lingum og ekki heldur útskrifað fólk sem hefur lokið með­ferð hjá okkur vegna skorts á félags­legu hús­næði í Reykja­vík og í öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ segir Elsa Bára Trausta­dóttir, sál­fræð­ingur á öryggis- og rétt­ar­geð­deild­inni á Kleppi.

Hún segir þetta skapa ófremd­ar­á­stand fyrir fólk sem er með geð­rask­anir og hefur lokið með­ferð á örygg­is­geð­deild og rétt­ar­geð­deild og þarf á öruggu hús­næði að halda til að fóta sig í sam­fé­lag­inu á nýjan leik.

Á örygg­is­geð­deild­inni á Kleppi geta verið átta sjúk­lingar. Þar eru nú sjö. Af þeim eru fjórir sem hægt er að útskrifa og bíða þeir búsetu­úr­ræða. Á rétt­ar­geð­deild­inni á Kleppi eru fjórir ein­stak­lingar og eru þrír þeirra útskrift­ar­hæfir. Allir eru sjúk­ling­arnir á milli tví­tugs og fer­tugs. Sótt var um hús­næði fyrir einn þre­menn­ing­anna á rétt­ar­geð­deild­inni í vik­unni en hinir tveir hafa beðið eftir hús­næði síðan í nóv­em­ber og byrjun árs. Elsa segir ein­stak­ling­ana þurfa mis­mikla þjón­ustu, sumir þeirra geti séð um sig sjálfir en aðrir þurfi hvatn­ingu við dag­legar athafnir og allt upp í sól­ar­hrings­þjón­ustu.

„Okkar fólk er í við­kvæm­ustu stöð­unni. Það er galið að ekki sé hægt að hjálpa því.“

„Einn þeirra sem bíður eftir hús­næði hjá okkur er nýkom­inn með fulla vinnu. En hann getur ekki flutt út frá okkur og þarf að sofa á rétt­ar­geð­deild­inni hjá okkur eins og aðrir sjúk­lingar. Það er skammar­legt,“ segir Elsa Bára og rifjar upp að fyrir nokkru hafi einn sjúk­lingur þurft að bíða í tvö ár eftir að fá hús­næði. Hún ótt­ast að þeir sem eru útskrift­ar­hæfir á báðum deildum Klepps, sem hún vinnur á, geti líka þurft að bíða í tvö ár eftir hús­næði.

„Fólk hefur beðið í mjög langan tíma eftir hús­næði. Á meðan við getum ekki útskrifað fólk þá getum við ekki tekið við öðrum,“ segir Elsa og bendir á að eitt málið hafi strandað á því í tvö ár að ríki og borg gátu ekki komið sér saman um hvor eigi að borga fyrir búsetu­úr­ræðið.

Elsa hóf störf á Kleppi fyrir fjórum árum. Þá var sama staða uppi og nú. Hún segir þörf­ina eftir þjón­ustu vegna geð­heil­brigð­is­vanda aðeins aukast og séu nú mörg hund­ruð manns á biðlista eftir félags­legum íbúðum. Fjölgun úrræða í félags­lega íbúða­kerf­inu helst hins vegar ekki í hendur við það eft­ir­spurn­ina.

„Okkar fólk er í við­kvæm­ustu stöð­unni. Það er galið að ekki sé hægt að hjálpa því,“ segir Elsa Bára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ