Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Lögreglustjóri segir að verklagsreglum lögreglu hafi verið breytt

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, segir verk­lags­reglum hafa verið breytt nýlega sem leggi skýr­ari línur um hvernig bregð­ast skuli við þegar að lög­reglu­full­trúar fá á sig kæru um alvar­lega glæpi á borð við kyn­ferð­is­brot gagn­vart börnum.

Lögreglustjóri segir að verklagsreglum lögreglu hafi verið breytt
|||
Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Halldóra Bald­urs­dóttir, móðir stúlku sem kærði lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­brot, gagn­rýndi vinnu­brögð lög­regl­unnar í ítar­legu við­tali í Mannlífi í síð­ustu viku. Sak­born­ingnum var t.a.m. ekki vikið úr starfi meðan á rann­sókn stóð og telur Halldóra brotala­mir á allri máls­með­ferð­inni.

Sjá einnig: „Rík­is­lög­reglu­stjóri brást dóttur minni“

Hún skýrði meðal ann­ars frá því í við­tal­inu að þegar aðstæður í sum­ar­bú­staðnum þar sem brotin fóru fram voru loks rann­sak­aðar hafi lög­reglu­mað­ur­inn, sak­born­ing­ur­inn sjálfur, farið á vett­vang með rann­sak­endum. Að sögn núver­andi lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er það ekki venjan. „Lögregla rann­sakar venju­lega brota­vett­vang án þess að sak­born­ingar eða vitni séu við­stödd, en und­an­tekn­ingar kunna að vera á því,“ segir Sigríður Björk.

Þá gagn­rýndi Halldóra að lög­reglu­mað­ur­inn skyldi fá að starfa áfram, og það í sama sveit­ar­fé­lagi og þær mæðgur bjuggu, þrátt fyrir þrjár kærur um kyn­ferð­is­brot gagn­vart ungum stúlkum. „Reglur hvað þetta varðar hafa tekið breyt­ingum á und­an­förnum árum en í dag er þetta mat í höndum lög­reglu­stjóra,“ segir Sigríður. „Hjá LRH er það verk­lag að öll mál af þessu tagi eru skoðuð og farið yfir máls­at­vik og til­tækar upp­lýs­ingar sem Embættið hefur rétt á að fá. Ef kæra berst á hendur lög­reglu­manni þá er það metið í hverju til­viki fyrir sig hvort rétt sé að færa við­kom­andi til í starfi, leysa við­kom­andi tíma­bundið undan starfs­skyldum eða veita við­kom­andi lausn frá emb­ætti um stund­ar­sakir á grund­velli til­tækra gagna. Lausn frá emb­ætti um stund­ar­sakir er end­ur­skoðuð af svo­kall­aðri 27. greinar nefnd, en einnig hefur það gerst að sam­hliða því er slík ákvörðun kærð til fagráðu­neytis. Ef rann­sókn leiðir ekki til ákæru og við­kom­andi metur það svo að á honum hafi verið vikið að ósekju, er unnt að stefna við­kom­andi stofnun fyrir dóm og óska skaða­bóta.“

Fái lög­reglu­maður hins vegar fang­els­is­dóm er skýrt kveðið á um að hann fái ekki að halda starfi sínu.

„Lögregla rann­sakar venju­lega brota­vett­vang án þess að sak­born­ingar eða vitni séu við­stödd.“

Lögreglumanni ber að meta eigið hæfi

Lög­reglu­maður sem kærður hefur verið fyrir kyn­ferð­is­brot geti þó áfram starfað við rann­sóknir á kyn­ferð­is­brota­málum og gæta þurfi var­úðar þegar lög­reglu­menn séu færðir til í starfi. „Sé mál gegn lög­reglu­manni fellt niður eða hann sýkn­aður í dómi þá á hann rétt á að halda sínu starfi enda er hver sá maður sem bor­inn er sökum sak­laus uns sekt er sönnuð. Hingað til hefur sú fram­kvæmd verið við­ur­kennd að for­stöðu­maður geti fært starfs­menn í aðrar deildir eða önnur verk­efni, svo fremi að launa­kjör og stöðu­heiti séu óbreytt. Eitt mál er nú fyrir Hæsta­rétti þar sem mun reyna á þessi ákvæði en fram­kvæmdin var stað­fest fyrir hér­aðs­dómi,“ bendir Sigríður á.

Halldóra lýsti því enn fremur hvernig hún nýlega var sett í óþægi­lega stöðu þegar hún óskaði eftir aðstoð lög­reglu og lög­reglu­mað­ur­inn sem dóttir hennar hafði kært fyrir kyn­ferð­is­brot mætti á vett­vang. Á jafn­litlu landi og Íslandi eru þetta aðstæður sem geta hæg­lega komið upp, en skyldi við­kom­andi lög­reglu­manni ekki bera skylda til að sýna borg­ar­anum þá til­lits­semi að biðj­ast undan því að fara í útkallið? „Með því að víkja lög­reglu­mönnum tíma­bundið frá störfum meðan mál sem geta leitt til fang­els­is­dóms eru til rann­sóknar er komið í veg fyrir að svona staða geti komið upp. Ef mál er fellt niður eða við­kom­andi sýkn­aður á hann rétt að halda starfi sínu eins og áður sagði,“ útskýrir Sigríður. „Ef ekki hafa verið sett sér­stök skil­yrði fyrir því að við­kom­andi ann­ist ekki ákveðin verk­efni, er ekki til­efni til til­tals, hins vegar þarf emb­ætt­is­maður að meta hæfi sitt hverju sinni, með til­liti til frænd­skapar eða ann­arra atriða sem áhrif geta haft á störf hans eða þjón­ustu við­kom­andi yfir­valds.“

Aðskilin mál en leitað eftir líkindum

Dóttir Halldóru sagði lög­reglu­mann­inn hafa brotið á sér í sum­ar­bú­stað­ar­ferð en með í för voru vina­hjón manns­ins og kona hans. Þegar hún kærði lög­reglu­mann­inn hafi verið tekin skýrsla af vina­hjón­unum á skrif­stofu eig­in­manns­ins en sá er hátt­settur emb­ætt­is­maður hjá hinu opin­bera. „Skýrslu­tökur á rann­sókn­ar­stigi fara fram fyrir luktum dyrum og helst á lög­reglu­stöð sé þess kostur eða öðru sér­út­búnu hús­næði,“ segir Sigríður Björk. „Skýrslu­taka fer stundum fram á brota­vett­vangi eða öðrum stöðum, en ávallt skal gæta þess að spyrja án nær­veru ann­arra. Það er sjald­gæft að skýrslu­taka yfir vitnum fari fram á starfs­stöð við­kom­andi.“

Halldóra hefur óskað eftir því við Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu að máls­með­ferðin verði skoðuð. Eitt að því sem hún gagn­rýndi harð­lega var að þrátt fyrir að þrjár stúlkur hefðu kært lög­reglu­mann­inn hefðu málin ekki verið rann­sökuð saman og ekk­ert brugð­ist við full­yrð­ingum lög­reglu­manns­ins um að stúlk­urnar þrjár hefðu uppi sam­særi gegn sér. Spurð hvort til greina kæmi að þrjár sam­bæri­legar kærur um kyn­ferð­is­brot gagn­vart börnum yrðu rann­sak­aðar sem eitt mál segir Sigríður Björk það ekki vera. „Hvert til­vik er rann­sakað sér­stak­lega. Ef brota­þolar eru fleiri en einn og ætluð brot eru aðgreind eru venju­lega stofnuð aðgreind mál. Við rann­sókn­ina er skoðað sér­stak­lega hvort lík­indi séu með ætl­uðum brotum, en litið er til þess við mat á sönnun.“

Sigríður Björk und­ir­strikar að hún geti ekki tjáð sig um þetta ein­staka mál og svari því aðeins almennum spurn­ingum um verk­lags­reglur við sam­bæri­legar aðstæður, miðað við stöðu mála í dag en þær hafi tekið miklum breyt­ingum síð­ustu ár. „Nú er þessum málum und­an­tekn­ing­ar­laust beint til hér­aðs­sak­sókn­ara og Nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu,“ segir Sigríður en sú nefnd tók til starfa á síð­asta ári. „Berist LRH kvörtun eða kæra á hendur lög­reglu­manni er nefndin upp­lýst um það.“ Um hlut­verk nefnd­ar­innar er fjallað í VII. kafla lög­reglu­laga nr. 90/1996.

________________________________________________________

Mál Helgu Elínar og Halldóru

Brotalamir á rannsókninni

Halldóra Bald­urs­dóttir og dóttir hennar Helga Elín. Halldóra gagn­rýnir meðal ann­ars að sak­born­ingi hafi ekki verið vikið úr starfi meðan á rann­sókn stóð. Mynd / Hallur Karlsson

Halldóra Bald­urs­dóttir, móðir stúlkunnar sem kærði lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­brot, telur að brotala­mir séu á allri máls­með­ferð­inni. Hún gagn­rýnir meðal ann­ars að sak­born­ingi hafi ekki verið vikið úr starfi meðan á rann­sókn stóð. Þetta kom fram í ítar­legu við­tali við Halldóru í Mannlífi á föstu­dag í síð­ustu viku.

Sjá einnig: Segist ekki hafa brugð­ist dóttur Halldóru

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra hefur and­mælt þeirri full­yrð­ingu Halldóru að rík­is­lög­reglu­stjóri, Haraldur Johann­es­sen, hafi brugð­ist dóttur Halldóru, eins og fram kemur í fram­an­greindu við­tali. Í tölvu­pósti sem emb­ættið sendi rit­stjórn Mannlífs, og lesa má í fullri lengd á www.man.is, segir meðal ann­ars að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi farið þess á leit við rík­is­sak­sókn­ara í til­efni af umfjöllun um málið í fjöl­miðlum að fá afhent rann­sókn­ar­gögn máls­ins til þess að unnt væri að taka ákvörðun um hvort leysa skyldi lög­reglu­mann­inn frá emb­ætti um stund­ar­sakir eða að fullu. Rík­is­sak­sókn­ari hafn­aði erindi Embættis rík­is­lög­reglu­stjóra með vísan til heim­ild­ar­skorts í lögum og fékk því Embættið ekki rann­sókn­ar­gögn máls­ins. Þar sem beiðni um rann­sókn­ar­gögn var synjað hafi ekki verið grund­völlur til að byggja á að mati Emb­ætt­is­ins hvort leysi ætti lög­reglu­mann­inn frá emb­ætti og var rík­is­sak­sókn­ara gerð grein fyrir því.

Í sama tölvu­pósti bendir Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra á að vegna alvar­leika máls­ins hafi Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra beint því til þáver­andi lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, með bréfi 8. nóv­em­ber 2011, að meta hvort hann leysti lög­reglu­mann­inn undan vinnu­skyldu, „en það er á for­ræði lög­reglu­stjóra að ákveða um til­færslu í starfi og við hvaða verk­efni lög­reglu­maður starfar.“

Mannlíf náði í kjöl­farið tali af Stefáni Eiríks­syni, sem starf­aði sem lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins meðan á rann­sókn máls­ins stóð. Stefán kveðst ekki hafa fylgst með umfjöllun um málið og neitar að tjá sig um það. „Þetta er ekki mál sem ég hef heim­ild til að tjá mig um,“ svar­aði hann blaða­manni Mannlífs.

Sýndi ekki kjark og þor til að standa með barninu

Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri.

Halldóra furðar sig á við­brögðum Embættis rík­is­lög­reglu­stjóra. Hún segir „óskilj­an­legt“ og „sár­ara en orð fá lýst“, að hann firri sig ábyrgð á því að hafa ekki vikið lög­reglu­mann­inum frá störfum, þrátt fyrir ítrek­aðar kærur fyrir kyn­ferð­is­of­beldi. Í tölvu­pósti sem hún sendi rit­stjórn Mannlífs segir hún ekki vafa­mál á því hver beri ábyrgð á að lög­reglu­mað­ur­inn í umræddu kyn­ferð­is­brota­máli starfi enn innan lög­regl­unnar.

Sjá einnig: Á ábyrgð rík­is­lög­reglu­stjóra að veita lög­reglu­manni lausn frá emb­ætti

Í því sam­hengi bendir Halldóra á svar sem hún fékk frá inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, þegar hún kvart­aði undan undan við­brögðum yfir­stjórnar lög­reglu í mál­inu. Í svari sínu bendir ráðu­neytið á að sam­kvæmt 1. mgr. 26. gr. laga n.r 70/1996 um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins skuli það stjórn­vald sem skipar í emb­ætti veita og lausn frá því um stund­ar­sakir

. Með öðrum orðum kemur fram það sé á ábyrgð rík­is­lög­reglu­stjóra að veita lög­reglu­manni lausn frá emb­ætti um stund­ar­sakir eða að fullu.

Enn fremur kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins að ekki sé ómögu­legt fyrir veit­ing­ar­valds­hafa að meta hvort for­sendur séu til þess að veita emb­ætt­is­mönnum lausn um stund­ar­sakir þótt honum sé synjað um afhend­ingu gagna í saka­máli. En eins og áður sagði taldi Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra ómögu­legt að veita umræddum lög­reglu­manni lausn um stund­ar­sakir þar sem emb­ætt­inu hafði verið synjað um upp­lýs­ingar um rann­sókn saka­máls­ins á hendur mann­inum. Svar ráðu­neyt­is­ins má lesa í heild sinni á www.man.is

Halldóra segir um Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra: „Þetta er mín upp­lifun og mitt mat og er mér óskilj­an­legt að rík­is­lög­reglu­stjóri telji sig geta mót­mælt því. Hann sýndi að mínu mati ekki kjark og þor til að standa með barn­inu mínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ