Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Svo óendanlega heppin í lífinu

Heiða Björg Jóhanns­dóttir tón­list­ar­kona hefur mörg járn í eld­inum. Auk þess að semja tón­list, syngja og leika á klar­ínett með hljóm­sveit sinni Heida Björg & The Kaos starfar hún ötul­lega að mann­úð­ar­málum í Marokkó, þar sem hún býr með eig­in­manni og tveimur dætrum, heldur tón­leika og tekur þátt í kvik­mynda­gerð.

Svo óendanlega heppin í lífinu
||
Heiða Björg Jóhanns­dóttir tón­list­ar­kona starfar að mann­úð­ar­málum í Marokkó, þar sem hún býr með eig­in­manni og tveimur dætrum, heldur tón­leika og tekur þátt í kvik­mynda­gerð.

Ástæða þess að hún er á Íslandi að þessu sinni teng­ist einmitt kvik­mynd, mynd­inni Women sem franski ljós­mynd­ar­inn Yann Arthus Bertrand vinnur nú að, og er verk­efni Heiðu Bjargar að finna íslenskar konur til að taka þátt í mynd­inni.

Heiða Björg er í miðju kafi við að taka und­ir­bún­ings­við­töl við íslenskar konur sem hugs­an­lega við­mæl­endur í mynd­inni Women þegar Mannlíf hefur sam­band við hana. Hún segir áhuga íslenskra kvenna á mynd­inni mik­inn og gleði­legan. En um hvað snýst myndin? „Franski ljós­mynd­ar­inn og kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Yann Arthus Bertrand sem gerði mynd­irnar Home sem fjall­aði um nátt­úr­una, og Human þar sem hann tók við­töl við fólk um allan heim til að sýna fram á fjöl­breytn­ina í mann­líf­inu og hvað við erum öll tengd hvert öðru og nátt­úr­unni. Þegar hann var að vinna þá mynd fór hann að hugsa um hvað konur hefðu miklu að miðla og ákvað að gera aðra mynd ein­göngu um konur. Við vinnslu hennar fer hann til 50-60 landa og tekur við­töl við 20-30 konur í hverju landi og þótt myndin sjálf verði ekki nema einn og hálfur tími er við­talið við hverja konu tveir tímar, sem síðan er vinsað úr. Þannig að þetta er risa­stórt verk­efni.“

Barátta við heil­brigð­is­kerfið í Marokkó
Heiða Björg er líka að leita að þýð­anda sem getur þýtt íslensku við­tölin yfir á frönsku og hún kemur aftur seinna í maí til að ganga frá því máli. En hvernig lenti hún inni í þessu verk­efni til að byrja með?
„Það er löng og dálítið flókin saga,“ segir Heiða Björg og hlær. „Ég bý í Marokkó, hef búið þar í þrjú ár eftir að hafa búið í Frakk­landi í tólf ár, og hef þar gengið í gegnum dálítið massað tíma­bil hvað varðar þá fátæku. Ég finn það bara svo rosa­lega sterkt hvað ég er óend­an­lega heppin í líf­inu yfir­höfuð og tala nú ekki um að vera fædd á Íslandi, og þegar ég rekst á fólk í Marokkó sem ég get hjálpað á ein­hvern hátt finnst mér ekki um annað að ræða en að reyna að gera mitt besta til að hjálpa þeim sem ég get.
Þegar við fluttum til Marokkó fylgdi ráðs­kona hús­inu okkar og þótt Íslend­ingum finn­ist það skrítið þá er litið á það þannig að ef þú sem útlend­ingur ert ekki með fólk í vinnu þá ertu ekki að hjálpa lág­launa­stétt­inni. Við erum svo heppin að þessi kona er alveg ynd­is­leg og í dag er hún orðin partur af fjöl­skyld­unni.

„Þegar hann var að vinna þá mynd fór hann að hugsa um hvað konur hefðu miklu að miðla og ákvað að gera aðra mynd ein­göngu um konur.“

Fyrir rúmu ári lenti syst­ur­dóttir hennar í því að þurfa að henda sér út úr bíl á 80 kíló­metra hraða til að kom­ast hjá nauðgun. Hún braut nán­ast hvert bein í lík­am­anum auk alls kyns ann­arra meiðsla en það tók eng­inn spít­ali við henni. Staðan í Marokkó er bara sú að ef þú átt ekki pen­inga þá er ekk­ert gert fyrir þig svo ég tók það að mér að safna pen­ingum og hjálpa henni að fá þá þjón­ustu sem hún þurfti, ann­ars hefði hún bara verið látin deyja heima hjá sér. Það kost­aði þriggja mán­aða átök að fá lækn­ana til að hjálpa henni á þann hátt sem hún þurfti, en ég gafst ekki upp. Á þeim tíma var ég að gefa út disk og und­ir­búa tón­leika í París og fannst ég verða að gera „cover“ af ein­hverju lagi. Í þeirri leit fann ég lag sem heitir „Human“ eftir Rag’n bone man, sem fjall­aði nákvæm­lega um líf mitt á þess­ari átaka­stundu. Laginu var svo vel tekið á tón­leik­unum að ég ákvað að taka það upp. Einni vin­konu minni datt þá í hug að hefja sam­staf með Yann Arthus Bertrand þar sem hann hafi gert mynd með sama nafni og væri að gera núna mynd­ina Women. Mér fannst það alveg súr­r­eal­ísk hug­mynd að hann myndi vilja vinna með mér, svo rosa­lega eft­ir­sóttur sem hann er, en mér tókst að fá síma­við­tal við hann. Ótrúlegt en satt, þá kom hann sjálfur með þá hug­mynd að við héldum tón­leika í hans Good Planet Foundation í París, sem verða 2. júní, og í stað­inn gæfi hann mér aðgang að öllum loft­myndum sem hann hefur tekið við gerð tón­list­ar­mynd­bands­ins við cover-lagið Human. Í lok sím­tals­ins spurði hann mig hvort ég þekkti ekki ein­hverjar íslenskar konur sem gætu hentað sem við­mæl­endur í Women. Auðvitað hóf ég strax leit. Ég er alltaf til í að taka að mér verk­efni sem eru áskorun fyrir mig.“

Eina mark­miðið að geta gifst
Heiða Björg segir mark­mið mynd­ar­innar Women vera að sýna líf kvenna frá öllum heim­inum frá A-Ö, bæði hvað þær búa við ólíkar aðstæður en ekki síður hvað við eigum í raun margt sam­eig­in­legt. Það sé alls ekki lögð áhersla á að ein­blína á hið nei­kvæða, þótt það sé mik­il­vægt að koma því til skila, heldur sé verið að segja alls konar sögur og koma þeim skila­boðum áleiðis að þótt alls konar erf­ið­leikar steðji að megi konur ekki missa móð­inn.

Talandi um erf­ið­leika sem konur lenda í verð ég auð­vitað að spyrja hvernig stúlkan sem Heiða Björg hjálp­aði að fá lækn­is­að­stoð hafi það í dag. „Ég er ánægð að geta sagt frá því að núna, einu ári síðar, eftir að hafa verið rúm­liggj­andi í níu mán­uði, er hún laus við hækj­urnar og orðin ótrú­lega heil­brigð lík­am­lega. Sem er alveg stór­kost­legt. Næsta skref sem ég er byrjuð að vinna í er að hjálpa henni að láta eitt­hvað verða úr sér. Hún er 21 árs og er bara að bíða eftir því að geta gifst, sem fátækar konur í Marokkó sjá sem eina mark­mið sitt í líf­inu. Þær eru algjör­lega heila­þvegnar hvað þetta varðar og það er ekki nema þær fæð­ist með ein­hverja náð­ar­gáfu sem þær sjá ástæðu til þess að leita ein­hverra ann­arra leiða í líf­inu. Það er meira en að segja það að breyta því við­horfi, en ég ætla ekki að gef­ast upp.“

Má ekki gleyma sjálfri sér

Heiða Björg segir mark­mið mynd­ar­innar Women vera að sýna líf kvenna frá öllum heim­inum frá A-Ö, bæði hvað þær búa við ólíkar aðstæður en ekki síður hvað við eigum í raun margt sam­eig­in­legt.

Auk allra þess­ara verk­efna er Heiða Björg að setja á stofn vef­síðu með það að mark­miði að fólk geti styrkt beint fátækar mæður eða fjöl­skyldur í Marokkó til að sjá sér og börnum sínum far­borða, gefa út disk númer tvö, semja disk númer þrjú með hljóm­sveit sinni og sinna dætrum sínum tveimur og fjöl­skyldu, er hún kannski þessi marg­um­tal­aða ofur­kona sem oft er vísað til?

„Já, algjör ofur­kona,“ segir Heiða Björg og skelli­hlær. „Nei, nei, ég held við séum afskap­lega margar svona. Ég á voða­lega bágt með að vera „bara“ heima með börnin, þótt það hljómi rosa­lega illa að segja „bara“ í því sam­hengi og ég sé ósam­mála sjálfri mér um leið og ég segi þetta. Það er alveg óend­an­lega gef­andi hlut­verk. Ég hef meira verið að spila í brúð­kaupum og taka á móti sjúk­lingum í mús­ík­þerapíu und­an­farin ár, semja lög, fara á ráð­stefnur hér og þar, og í leit að bók­ara fyrir hljóm­sveit­ina til þess að hafa meiri tíma með stelp­unum sem eru núna fimm og tveggja ára gamlar.

„Ég held nú að það séu holl skila­boð fyrir dætur mínar að mamma þeirra sé að vinna við það sem skiptir hana raun­veru­legu máli í líf­inu.“

En núna ætla ég að leyfa mér að hugsa aðeins meira um sjálfa mig og minn starfs­feril og lofa mér að túra aðeins meira. Maður má ekki gleyma sjálfum sér. Ég er samt mjög stolt af þeim konum sem sjá það að vera mamma sem helsta hlut­verk sitt í líf­inu og mér finnst það ofboðs­lega fal­legt. Ég átti ynd­is­lega æsku og ólst sjálf þannig upp að móðir mín hætti að vinna til að vera heima og sjá um okkur systk­inin og það er óend­an­lega stór gjöf. Mig langar að gefa börn­unum mínum þá gjöf, en svo finn ég það líka með árunum að mamma gleymdi sjálfri sér svo­lítið og ég hefði viljað að hún hefði hugsað meira um sig. Ég held að börn langi þegar þau verða eldri að finna að móðir þeirra blóm­stri. Maður verður að horfast í augu við það hver maður er og tón­listin hefur verið minn heimur síðan ég man eftir mér.

Þegar ég fór í fram­halds­nám í klar­ínettu­leik í París á sínum tíma ætl­aði ég reyndar í inn­an­húss­arki­tektúr með, en það er svo sterkt í mér að vinna að því að hjálpa mann­eskjum að ég ákvað að fara í mús­ík­þerapíu í stað­inn. Þannig að nú er ég mús­ík­þerapisti, klar­ínettu­leik­ari, söng­kona, tón­smiður og mamma, auk þess að reyna að gera mitt besta til að hjálpa öðru fólki að eign­ast betra líf til að þakka fyrir það í verki hvað ég hef átt ofboðs­lega gott líf. Ég held nú að það séu holl skila­boð fyrir dætur mínar að mamma þeirra sé að vinna við það sem skiptir hana raun­veru­legu máli í líf­inu. Við gerum jú allar, og öll, okkar besta.“

Myndir: Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð