Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sundlaugin á Hrafnistu grotnar niður

Sjó­manna­dags­ráð og þáver­andi borg­ar­stjóri í Reykja­vík vígðu saman end­ur­hæf­ing­ar­sund­laug á Hrafn­istu í Reykja­vík árið 1996. Loft­ræst­ingin virk­aði ekki sem skyldi frá fyrsta degi. Nú er laugin í nið­ur­níðslu.

Sundlaugin á Hrafnistu grotnar niður
||
Þegar plötur voru teknar úr lofti hús­næð­is­ins kom í ljós að við­ur­inn í loft­inu hafði morknað út af rak­anum frá laug­inni.

„Örlög sund­laug­ar­innar á Hrafn­istu eru sorg­leg. Það væru ekki endi­lega margir heim­il­is­menn á Hrafn­istu sem myndu nota sér hana í dag. En aðrir myndu gera það, eldri borg­arar í hverf­inu, þeir sem þurfa á dags­þjálfun að halda, glíma við stoð­kerf­is­vanda og þurfa styrkt­ar­þjálfun, bæði börn og full­orðnir,“ segir Steinunn Leifs­dóttir, íþrótta­fræð­ingur á Hrafn­istu. Hún stýrði lengi vatns­leik­fimi á Hrafn­istu.

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri Reykja­víkur, tók skóflustungu að end­ur­hæf­ing­ar­mið­stöð­inni og sund­laug­inni á Hrafn­istu í júlí árið 1994 og vígði hún bygg­ing­una ásamt Guðmundi Hall­varðs­syni, þá for­manni Sjó­manna­dags­ráðs, við hátíð­lega athöfn í mars þremur árum síðar.

Fram­kvæmdin, þ.e. end­ur­hæf­ing­ar­mið­stöðin og sund­laugin, var fjár­mögnuð með hagn­aði af rekstri Happ­drættis DAS en líka með fram­lagi frá Reykja­vík­ur­borg, Alþjóða flutn­inga­sam­bands­ins og fram­lögum ein­stak­linga. Auk sund­laugar voru heitir pottar, eim­bað og aðstaða til hljóð­bylgju­lækn­inga. Laugin var sér­stak­lega hönnuð með þarfir eldri borg­ara í huga. Hún er rúm­lega sextán metrar að lengd og sjö metrar á breidd. Við laug­ina er lyfta sem auð­veldar þeim sem eiga erfitt um gang að kom­ast í og úr laug­inni.

„Það er fúlt að láta sund­laug­ina grotna niður því hún hafði svo mikið heilsu­fars­legt gildi. En það er eins með hana og aðrar fast­eignir. Það þarf að að hugsa um þær,“

Ingi­björg sagði í ávarpi sínu að borg­ar­ráð hafi sam­þykkt að borgin komi að rekstri stöðv­ar­innar út árið. Guð­mundur vitn­aði til orða eins heim­il­is­manna sem óskaði þess að nýja end­ur­hæf­ing­ar­mið­stöðin verði upp­spretta and­legrar og lík­am­legrar vellíð­unar eldri borg­ara um alla fram­tíð.

„Þetta var góð laug og fólk er enn að tala um hvað hún var heit og góð. En loft­ræst­ingin ann­aði aldrei hit­anum sem var þarna. Og ekki bættu heitu pott­arnir úr skák. Það var ein­fald­lega of heitt þarna,“ segir Steinunn og bendir á að innan við tíu árum eftir opnun sund­laug­ar­innar hafi fólk tekið eftir brúnum klessum sem láku niður eftir veggjum. Þegar plötur voru teknar úr lofti hús­næð­is­ins kom í ljós að við­ur­inn í loft­inu hafði morknað út af rak­anum frá laug­inni. Viðurinn var ónýtur og upp úr því var sund­laug­inni lokað árið 2015.

Steinunn segir fólk hafa orðið sorg­mætt yfir lokun sund­laug­ar­innar. En hún bætir við að áður en sund­laug­inni var lokað hafi mjög fáir á Hrafn­istu notað hana, í dag væru þeir lík­lega ekki nema tíu en það skýrist af vist­un­ar­mati. Öðru máli gegni um eldri borg­ara og fólk með stoð­kerf­is­vanda sem búi í nágrenn­inu. „Þegar sund­laugin virk­aði þá var hún mjög góð og hent­aði mörgum. Laug­ar­dals­laugin er svo miklu kald­ari. Við viljum að borgin taki við rekstri sund­laug­ar­innar. En það yrði dýrt að gera við hana. Ég held að það sé búið að eyði­leggja flís­arnar, tækin eru orðin léleg og þakið ónýtt. Það sama á við um fleira. Það er fúlt að láta sund­laug­ina grotna niður því hún hafði svo mikið heilsu­fars­legt gildi. En það er eins með hana og aðrar fast­eignir. Það þarf að að hugsa um þær,“ segir Steinunn.

Pétur Magn­ús­son, for­stjóri Hrafn­istu, segir að árið 2015 þegar sund­laug­inni var lokað hafi kostn­að­ar­mat gert ráð fyrir end­ur­bótum upp á 50 millj­ónir króna. Hugs­an­lega verði það meira nú. Til við­bótar bæt­ist mögu­lega við 10 millj­óna króna árlegur rekstr­ar­kostn­aður. „Þetta er dýrt og við höfum ekki treyst okkur til að opna sund­laugin aftur. Við höfum leitað til rík­is­ins en það er ekki til­búið að greiða fyrir rekstur sund­lauga hjúkr­un­ar­heim­ila,“ segir hann og bætir við að nýverið hafi verið sent erindi til Reykja­vík­ur­borgar um málið og sé svars beðið frá borg­ar­yf­ir­völdum um fram­haldið.

Á meðan engin starf­semi er í laug­inni hefur aðstaðan verið notuð sem verk­stæði og aðstaða fyrir smiði sem unnu að fram­kvæmdum við aðra hluta Hrafn­istu í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð