Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fjölskyldulífið hefur setið á hakanum

Smiðjan brugg­hús er glæ­nýr veit­inga­staður í Vík í Mýrdal sem bruggar sinn eigin bjór. Þórey Richardt Úlf­ars­dóttir er stjórn­ar­for­maður og rekst­ar­að­ili stað­ar­ins og einn af fjórum eig­endum.

Fjölskyldulífið hefur setið á hakanum
||
Þórey Richardt Úlf­ars­dóttir sér um dag­legan rekstur veit­inga­stað­ar­ins.

„Við bjóðum þykka og djúsí ham­borg­ara auk með­lætis og fjöl­breytt úrval af bjór á krana, erum með tíu dælur. Stefnan er að hafa hand­verks­bjór frá hinum ýmsu brugg­húsum á Íslandi og svo auð­vitað okkar eigin þegar brugg­húsið sjálft verður klárt eftir tæpan mánuð,“ segir Þórey en auk hennar eru eig­endur Sveinn Sig­urðs­son, sam­býl­is­maður Þóreyjar, Vigfús Þór Hró­bjarts­son og Vigfús Páll Auð­berts­son. Þórey og Sveinn ann­ast dag­legan rekstur, þau eru með átta starfs­menn og þar af sex í fullu starfi.

Segja má að þau hafi ómeð­vitað stefnt að þessum áfanga í mörg ár þar sem draum­ur­inn um eigið brugg­hús hafi blundað í þeim lengi. „Þegar Svenni var í BS í við­skipta­fræði og meist­ara­námi í vöru­merkja­stjórnun og mark­aðs­sam­skiptum þá fjöll­uðu loka­verk­efnin hans um grein­ingu á neyslu- og kaup­hegðun hand­verks­bjóra. Áhuginn á bjór og bjór­menn­ingu jókst stöðugt og eld­húsið og allt geymslu­pláss heima hjá okkur var lagt undir heima­brugg. Þegar Vigfús Þór fékk svo bjór­bók í jóla­gjöf hafði hann sam­band og spurði hvort við ættum ekki bara að opna brugg­hús. Við grín­uð­umst með að Svenni gæti bara þýtt við­skipta­á­ætl­un­ina á íslensku og látið vaða. En Vigfús var ekk­ert að grín­ast og fljót­lega voru komnar teikn­ingar af hót­eli, veit­inga­stað og brugg­húsi. Síðar bætt­ist Vigfús Páll í hóp­inn en fyr­ir­tækið hans, Auðbert og Vigfús Páll á stórt iðn­að­ar­hús­næði á Vík í Mýrdal. Hann hafði hugsað sér að opna veit­inga­stað og brugg­hús í einu og við sam­ein­uð­umst því um að hrinda þessu í fram­kvæmd.“

Sáu að mestu leyti sjálf um vinn­una
Fjór­menn­ing­ana langar að bæta bjór­menn­ing­una á Íslandi, prófa sig áfram með nokkra bjór­stíla og halda sig á amer­ísku lín­unni. „Fyrstu teg­und­irnar okkar verða New England IPA-bjór sem heitir Wet Spot og Porter-bjór sem heitir Dark Side og í fram­hald­inu verða teg­und­inar fleiri. Mikið er lagt í hand­verks­bjóra, magnið af humlum er oft­ast meira sem gerir þá bragð­meiri og ein­göngu er not­ast við úrvals hrá­efni. Einnig er oft notað hrá­efni í hand­verks­bjór sem er almennt ekki notuð í almenna bjór­gerð, allt frá skyri upp í kókos­bollur. En við ætlum að leggja áherslu á að vinna með efni úr heima­byggð eftir bestu getu.“

„Efst í huga er hjálp­semin hjá öllum – heima­menn hafa hjálpað mikið, reddað okkur hinu og þessu og lánað als­konar verk­færi. Svo hafa fjöl­skylda og vinir hjálpað alveg gríða­lega.“

Mikill ferða­manna­straumur er til Víkur í Mýrdal og því hentar stað­setn­ingin vel. Húsið hefur haft mörg hlut­verk í gegnum tíð­ina og þar voru upp­haf­lega gömlu Kaup­fé­lags­verk­smiðj­urnar og þaðan draga þau nafnið. Í hús­inu var einnig bíla­spraut­un­ar­verk­stæði, smíða­stofa grunn­skól­ans og meira að segja var lík­geymsla í hús­inu um tíma. „Það er búið að taka um ár að stand­setja húsið en við höfum nán­ast séð um allt sjálf, bara á kvöldin og um helgar, auð­vitað með hjálp fjöl­skyldu og vina. Við sjáum sjálf um fjár­mögnun á verk­efn­inu og alla hönnun. Vigfús Þór gerði allar teik­ingar og í sam­ein­ingu hönn­uðum við upp­setn­ing­una. Ég sá um inn­an­húss­hönn­un­ina en auð­vitað hjálp­uð­ust allir að í því ferli eins og öllu öðru,“ segir Þórey.

Ferlið hefur verið afar skemmti­legt en auð­vitað erfitt á köflum. Að sjá þetta verða að veru­leika finnst mér alveg magnað. Efst í huga er hjálp­semin hjá öllum – heima­menn hafa hjálpað mikið, reddað okkur hinu og þessu og lánað alls konar verk­færi. Svo hafa fjöl­skylda og vinir hjálpað alveg gríða­lega. Þetta hefði varla verið hægt án allrar þeirra aðstoðar sem við höfum fengið. Erf­iðastar eru lík­lega allar vinnu­stund­irnar sem hafa farið í þetta – öll kvöld og helgar hafa verið und­ir­lögð í brugg­húsið svo að fjöl­skyldu­lífið hefur setið svo­lítið á hak­anum. Við Svenni eign­uð­umst til dæmis okkar annað barn þegar að fram­kvæmdir voru að byrja þannig að stór hluti fæð­ing­ar­or­lofs­ins var varið þarna. Svenni og Vigfús Þór vörðu nán­ast hverju kvöldi í brugg­hús­inu í marga mán­uði meðan ég og hans kona sáum um börnin og heim­ilið. Annars gengur okkur Svenna vel að vinna saman þótt stundum hafi verið spenna á milli okkar þegar mesta álagið var í fram­kvæmdum. En við berum virð­ingu hvort fyrir öðru og erum góð í að nýta kosti hvort ann­ars. Við reynum að skipta þessi á okkur – Svenni sér til dæmis að mestu um brugg­húsið og ég um veit­inga­stað­inn. En svo er Svenni líka mjög góður í því að leyfa mér að halda að ég hafi rétt fyrir mér,“ segir hún hlæj­andi.

Eigendur Smiðj­unnar brugg­húss frá vinstri: Vigfús Páll Auð­berts­son, Þórey Richardt Úlf­ars­dóttir, Sveinn Sig­urðs­son og Vigfús Þór Hró­bjarts­son.

Vinna mat­inn frá grunni
Ein­faldur mat­seð­ill er á veit­inga­staðnum en þau vildu frekar hafa fáa rétti og gera þá vel en að eiga á hættu að bjóða upp á miðl­ungs­mat. „Við völdum að hafa ham­borg­ara því að okkur finn­ast þeir ein­fald­lega góðir – borg­ari og bjór klikkar ekki. Við bjóðum upp á 180 g ham­borg­ara, pulled pork/rifið svína­kjöt og franskar. Við vinnum flest frá grunni eins og sósur, epla­hrásalat og hand­gerða lauk­hringi. Við­tök­urnar hafa verið hreint frá­bærar, bæði hjá heima­fólki og ferða­mönnum.“

Fram undan hjá Smiðj­unni brugg­húsi er að koma allri starf­semi af stað, byrja að brugga og halda áfram í vöru­þróun. „Einng að koma vör­unni okkar á hót­elin og veitnga­stað­ina í kring og auð­vitað í Vín­búð­ina líka. Við höldum svo bara áfram að halda stand­ar­dnum á veit­inga­staðum, okkur langar svo í fram­tíð­inni að hafa reikofn og bjóða upp á okkar eigin rif og meiri mat í BBQ-stíl.“

Texti / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / Eliza Witek

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ