Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Erfitt að vita hverjir sóðarnir eru

Íslensk fyr­ir­tæki eru skikkuð, sam­kvæmt lögum, til að huga að umhverfi sínu. Heil­brigð­is­eft­ir­litið getur hins vegar ekki tekið saman gögn um hvaða fyr­ir­tæki huga að umhverfi sínu og hver eru umhverf­is­sóðar.

Erfitt að vita hverjir sóðarnir eru
Úrangur – Myndin teng­ist frétt ekki beint
Guðjón Ingi Egg­erts­son, heil­brigð­is­full­trúi í umhverf­is­eft­ir­liti hjá Heil­brigð­is­eft­ir­liti Reykja­víkur.

„Við höfum reglu­lega afskipti af fyr­ir­tækjum vegna umgengni eða úrgangs á lóð,“ segir Guðjón Ingi Egg­erts­son, heil­brigð­is­full­trúi í umhverf­is­eft­ir­liti hjá Heil­brigð­is­eft­ir­liti Reykja­víkur.  „Umgengni við mörg fyr­ir­tæki er til fyr­ir­myndar, ásætt­an­leg við önnur og svo eru alltaf dæmi þar sem umgengni gæti við betri og jafn­vel mun betri en raunin er. Ef í ljós kemur í eft­ir­liti að umgengni er ábóta­vant er ávallt gerð krafa um að bætt sé úr.“

Guðjón segir hins vegar erfitt að segja til um hvort umhverf­is­eft­ir­litið hjá Heil­brigð­is­eft­ir­liti Reykja­víkur hafi oft eða sjaldan afskipti af fyr­ir­tækjum vegna umgengni eða úrgangs á lóð vegna ann­marka á skrán­ing­ar­kerfi eft­ir­lits­ins. „Því miður er skrán­ing­ar­kerfi Heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins þannig gert að mjög tak­markað er hvað hægt er að taka út af upp­lýs­ingum. Meðal ann­ars er ekki hægt með ein­földum hætti að taka sér­stak­lega út kvart­anir vegna lóða eða umgengni við fyr­ir­tæki,“ segir hann og nefnir sem dæmi að ef athuga­semdir eru gerðar í reglu­bundnu eft­ir­liti sé það skráð í eft­ir­lits­skýrslu en ekki skráð sem kvörtun.

„Ég held líka að aug­lýs­ingin hafi hreyft við fólki. Um helg­ina var fullt af fólki sem tíndi mörg tonn af rusli. Þetta var venju­legt fólk að tína um allt land, því blöskrar skít­ur­inn.“

Vegna fyrr­greindra ann­marka á skrán­ing­ar­kerfi eft­ir­lits­ins er um leið óger­legt að sjá hvaða fyr­ir­tæki í borg­inni brjóta, jafn­vel ítrekað, reglu­gerðir eða lög sem skikka fyr­ir­tæki til að huga að umhverfi sínu. En sem dæmi um slíka reglu­gerð má nefna 16. grein reglu­gerðar Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytis, sem gerir umráða­mönnum fyr­ir­tækja­lóða skylt að halda lóð­unum hreinum og snyrti­legum.

Fólki blöskrar skít­ur­inn
Á Facebook hefur plokk­urum verið tíð­rætt um rusl í nágrenni við fyr­ir­tæki í þétt­býli. Þar á meðal Einar Bárð­ar­son sem er einn af þekkt­ustu plokk­urum lands­ins og stofn­andi Plokk á Íslandi. „Við sem sam­fé­lag höfum smit­ast rosa­lega hratt af sorp­blindu,“ segir hann. „Við sjáum ekki skít­inn.“

Á Facebook hefur plokk­urum verið tíð­rætt um rusl í nágrenni við fyr­ir­tæki í þétt­býli. Einar Bárð­ar­son tekur undir umræð­una en segir að nokkur fyr­ir­tæki hafi þó í gegnum tíð­ina haldið hreins­un­ar­dag þar sem tekið er til í nærum­hverfi þeirra. Þau fyr­ir­tæki eigi hrós skilið.

Um síð­ustu helgi hvatti Einar með opnu­aug­lýs­ingu í dag­blöðum eig­endur og stjórn­endur fyr­ir­tækja að ganga í lið með plokk­urum og velja einn dag í vor til að standa að alls­herjar vor­hreinsun í nærum­hverfi fyr­ir­tækj­anna. Í aug­lýs­ing­unni var tekið sem dæmi að fyr­ir­tæki gætu boðið fólki að taka eina auka­vakt til vinnu af þessu til­efni og hreinsa til í kringum fyr­ir­tækið.

„Stjórn­endur fyr­ir­tækja tóku almennt vel í þetta,“ segir hann. „Ég held líka að aug­lýs­ingin hafi hreyft við fólki. Um helg­ina var fullt af fólki sem tíndi mörg tonn af rusli. Þetta var venju­legt fólk að tína um allt land, því blöskrar skít­ur­inn.“

Spurður hvernig hægt sé að bæta ástandið, segir Einar að sveit­ar­fé­lög og fyr­ir­tæki sem sjái um sorp­hirðu geti til dæmis unnið saman að því að bæta rusla­tunnur með teygjum yfir lok eða annað sem hindrar að þær opn­ist við að fjúka á hlið­ina þannig að inni­haldið dreif­ist um allt. Eins geti fólk haft augun opin fyrir rusli þegar það ekur í vinn­una. Við það auk­ist næmni þess fyrir umhverf­inu.

Getur kraf­ist lag­fær­inga og við­gerða
Þess má geta að heil­brigð­is­nefnd getur kraf­ist lag­fær­inga og við­gerða á lóðum, girð­ingum og mann­virkjum, ef nauð­syn­legt þykir til þrifn­aðar eða ef ástand þeirra er til lýta fyrir umhverfið. Nefndin getur jafn­vel látið hreinsa einka­lóðir á kostnað eig­enda telji nefndin þess þörf vegna meng­unar og óholl­ustu.

Að auki er að finna ákvæði í almennum starfs­leyf­is­skil­yrðum Heil­brigð­is­nefndar Reykja­víkur fyrir meng­andi atvinnu­rekstur sem taka á úrgangi og umgengni. Þau skil­yrði fylgja með starfs­leyfi allra fyr­ir­tækja sem fá starfs­leyfi hjá Heil­brigð­is­eft­ir­liti Reykja­víkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð