Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Loksins litið á brennó sem alvöruíþrótt

Loksins litið á brennó sem alvöruíþrótt
||

Keppt verður í brenni­bolta í fyrsta sinn á lands­móti Ung­menna­fé­lags Íslands á Sauð­ár­króki í sumar. Sólveig Sig­urð­ar­dóttir, tals­kona brennóiðk­enda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir mikla spennu ríkja meðal hóps­ins fyrir mót­inu. Hún vonar að í fram­tíð­inni verði hægt að æfa brenni­bolta skipu­lega undir hand­leiðslu þjálf­ara.

„UMFÍ langar að bjóða upp á hreyf­ingu sem höfðar til sem flestra. Þeir höfðu heyrt af alls­konar hópum um allt land sem voru að spila brenni­bolta og lang­aði að höfða til breiðs hóps. Brenni­bolti er íþrótt sem allir þekkja úr barn­æsku og allir geta rifjað upp, tekið þátt og haft gaman af,“ segir Sólveig Sig­urð­ar­dóttir, tals­kona Brennóbomba, hóps kvenna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem æfir brenni­bolta.

Í fyrsta sinn í ár verður keppt í brenni­bolta á lands­móti UMFÍ, Ung­menna­fé­lags Íslands. Lands­mótið fer fram þann 12. til 15. júlí á Sauð­ár­króki, en Sólveig segir að Brennóbomburnar hafi verið him­in­lif­andi þegar kom í ljós að brenni­bolti yrði meðal keppn­is­greina.

„Ég gjör­sam­lega frík­aði út af spenn­ingi þegar ég fékk þessar fregnir og ég held að hinar bomburnar hafi ekki verið síður spenntar.

Það er líka svo gaman að fólk sé loks­ins farið á líta á brenni­bolta sem íþrótt og upp­götva hvað þetta er ótrú­lega góð og mikil hreyf­ing. Mér finnst líka mjög jákvætt að það sé verið að breikka rammann þegar það kemur að keppn­is­í­þróttum. Ég vona að þessi áhugi haldi áfram og að í fram­tíð­inni verði hægt að æfa brenni­bolta á öllum aldri undir hand­leiðslu þjálf­ara. Það væri frá­bært.“

Karlmenn keppa líka

Sólveig er spennt fyrir sumr­inu.

Virkir brennóhópar, sem hitt­ast reglu­lega, eru stað­settir í Kópavogi, Hafn­ar­firði, Grinda­vík, á Blöndu­ósi og Sauð­ár­króki. Sólveig er ekki viss hve mörg lið hafa skráð sig til leiks á lands­mót­inu, en hún úti­lokar ekki að aðrir en þeir sem eru virkir brennóð­ikendur slái til og keppi í sumar.

„Ég er alveg viss um að það séu ein­hverjir hressir vina­hópar eða æfinga­fé­lagar sem ákveða að slá til og taka smá­tryll­ing í brennó á Lands­móti,“ segir Sólveig.

Sólveig til­heyrir, eins og áður segir, hópnum Brennóbombur sem hitt­ist reglu­lega allt árið um kring á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og spilar brennó. Sá félags­skapur er ein­göngu fyrir konur en á lands­mót­inu mega karl­menn einnig keppa í sport­inu. Hvernig leggst það í Sólveigu?

„Það leggst órú­lega vel í mig og ég er mjög spennt að sjá hvernig þátt­takan verður. Brennóbomburnar æfa tvisvar sinnum í viku í Kórnum í Kópavogi yfir vetr­ar­tím­ann en eru með eina opna æfingu í mán­uði fyrir bæði kynin. Hingað til hefur það vakið mikla lukku. Mér sýn­ist strák­arnir vera alveg jafn­spenntir fyrir íþrótt­inni þegar þeir mæta á völl­inn og eru enn spennt­ari að æfingu lok­inni, þegar þeir eru búnir að upp­götva hvað þetta er ótrrú­lega skemmti­leg og mikil hreyf­ing,“ segir Sólveig.

Keppt er í brenni­bolta laug­ar­dag­inn 14. júlí á lands­mót­inu og fer fjöldi leikja eftir fjölda þátt­tak­enda. Sólveig segir Brennóbomburnar mjög spenntar fyrir því að keppa í íþrótt­inni á stærri vett­vangi, en þær hafa haldið opin­ber Íslands­meist­ara­mót í brennó um ára­skeið. „Stemn­ing­inn er ótrú­lega góð og allar hlakkar til að koma saman á Króknum og hafa ótrú­lega gaman af.“

Ólétt og getur ekki keppt

Sólveig hefur æft brennó um ára­bil og því liggur bein­ast við að spyrja hvort hún ætli ekki sjálf að keppa í sumar. „Úff, ég ætla ekki að segja þér hvað það er erfitt að svara þess­ari spurn­ingu neit­andi en ég get því miður ekki verið með sem kepp­andi í ár. Ég er barns­haf­andi og verð lík­lega með aðeins of stóran bolta framan á mér í sumar,“ segir Sólveig bros­andi.

En þarf maður að vera ein­hverjum sér­stökum hæfi­leikum gæddur til að spila brenni­bolta?
„Nei, alls ekki. Þetta er svo fjöl­breytt íþrótt að það virð­ast allir finna sig í ein­hverju inni á vell­inum, hvort sem það er að hlaupa, kasta, grípa eða að forð­ast bolt­ann. Það sem mestu máli skiptir er að halda í gleð­ina sem fylgir þess­ari íþrótt og hafa húmor fyrir sjálfum sér og öðrum. Svo er voða gaman þegar það fær að skína í smá­vegis keppn­is­skap svona inn á milli,“ segir Sólveig kank­vís og bætir við að það sé lítið mál að slást í hóp­inn með Brennóbombum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Brennó er góð skemmtun.

„Við æfum í íþrótta­hús­inu Kórnum í Kópavogi á mánu­dögum og mið­viku­dögum klukkan 21.00 yfir vetr­ar­tím­ann en á sumrin er æft úti þegar verður leyfir. Allar konur átján ára og eldri eru vel­komnar til okkar. Fyrsti tím­inn er alltaf ókeypis og því er um að gera að taka af skarið, kíkja á okkur og prófa. Ég lofa taum­lausri gleði og brjál­aðri brennslu í sjúk­lega skemmti­legum félag­s­kap. Það er líka hægt að finna okkur á Facebook undir nafn­inu Inni­brennó. Eins eru hinir brennóhóp­arnir á Facebook líka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð