Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hlauparar jákvætt fólk

„Dásamleg nátt­úra í „bak­garð­inum“ sem ég vissi ekk­ert um.“

Hlauparar jákvætt fólk
|

Anna Sigríður Arn­ar­dóttir hafði aldrei hlaupið á ævinni þegar hún fór á nýliða­nám­skeið hjá Hlaupa­hópi FH en hún hafði tekið matar­æðið í gegn nokkrum árum áður og var að leita að hent­ugri hreyf­ingu. Þrátt fyrir að kom­ast vart milli ljósastaura til að byrja með féll hún fyrir hlaup­unum og hefur með elju­semi og vinnu náð gríð­ar­legum fram­förum. Hún hefur nú meðal ann­ars hlaupið tvö mara­þon og Lauga­veg­inn.

Anna Sigríður Arn­ar­dóttir féll fyrir nátt­úru­hlaupum.

„Haustið 2011 var nýliða­nám­skeið í Hlaupa­hópi FH og vin­kona mín spurði mig hvort ég kæmi ekki með henni á nám­skeiðið. Ég þurfti að hugsa mig mjög vel um, var spennt fyrir þessu en þorði ekki, enda hafði ég aldrei hlaupið á ævinni, ekki einu sinni þegar við áttum að hlaupa í íþróttum í grunn­skól­anum. Þegar nám­skeiðið var hálfnað fékk ég loks­ins kjark til að mæta á æfingu. Þann 20. nóv­em­ber 2011 mætti ég í kulda og snjó á mína fyrstu æfingu í þykkri úlpu og pass­aði því alls ekki inn í hóp­inn. Úlpan var fljót að fjúka þegar ég fór af stað en ég hafði enga þekk­ingu á því hvernig ætti að klæða mig á hlaupum,“ segir Anna Sigríður sem er við­skipta­fræð­ingur hjá Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­iss­ins og nem­andi í Ferða­mála­skól­anum í Kópavogi. Nokkrum árum áður hafði hún lést um 30 kíló eftir að hún breytti matar­æði sínu. „Á þeim tíma hreyfði ég mig ekk­ert og borð­aði bara það sem mér fannst gott og eitt­hvað sem ein­falt var að elda. Við mað­ur­inn minn áttum djúp­steik­ing­ar­pott og við not­uðum hann mjög reglu­lega. Við átum sæl­gæti í miklu óhófi og drukkum gos­drykki í öll mál. Ég var búin að reyna marga mat­ar­kúra sem féllu alltaf um sjálfa sig eftir nokkrar vikur.“

Hlaupin hjálpa mér til að halda góðri and­legri heilsu
Það sem Önnu finnst svo heill­andi við hlaupin er úti­veran og félags­skap­ur­inn. Hún segir að mik­il­vægt sé að gera styrkta­ræf­ingar líka til að koma í veg fyrir meiðsli og hefur hún meðal ann­ars stundað stöðva­þjálfun í Hress til að styrkja sig. Nátt­úru­hlaupin hafa svo verið að koma sterk inn að und­an­förnu. „Áhuginn á að hlaupa í nátt­úr­inni byrj­aði vorið 2014 þegar ég fór á nám­skeið hjá Nátt­úru­hlaupa­hópnum sem bygg­ist á að haupa á ýmsum stöðum í nátt­úr­unni í kringum höf­uð­borg­ar­svæðið. Ég féll alveg fyrir þessum hlaupa­stíl; þarna upp­lifði ég allt í senn, hlaupin, úti­ver­una, félags­skap­inn og síð­ast en ekki síst, þessa ynd­is­legu nátt­úru sem við erum með í „bak­garð­inum“ okkar og ég vissi ekki af. Ég bara elska að hlaupa á stígum, innan um trén, blómin, fjöllin og jafn­vel fram hjá lækjum og fossum. Þetta var ég búin að fara á mis við öll þessi ár. Það er eitt­hvað ólýs­an­legt við hlaupin, bæði vellíð­anin eftir æfingar, end­or­fínið á fullu og allt fólkið sem ég er búin að kynn­ast. Ég hef bara ekki enn þá hitt leið­in­legan hlaupara, það eru allir svo jákvæðir og með gott við­horf til lífs­ins. Stundum hef ég verið að glíma við erf­iðar aðstæður í líf­inu, bæði álag heima og í starfi. Þá hafa hlaupin hjálpað mér til að halda góðri and­legri heilsu, enda segi ég að hreyf­ing sé allra meina bót,“ segir Anna Sigríður.

Texti / Ragn­hildur Aðal­steindóttir
Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ