Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Selur sérsaumaðan brúðarkjól eftir Hönnu Rún

Selur sérsaumaðan brúðarkjól eftir Hönnu Rún
|Brúð­gum­inn dansar við Hönnu Rún.|Og brúð­urin við Nikita.||||

„Það er alveg pínu erfitt að selja kjól­inn en ég er samt ekki til­búin að hafa svona dýran kjól inní skáp. Ég vil frekar nota pen­ing­inn í ein­hverja aðra upp­lifun,“ segir Valdís Sylvía Sig­ur­þórs­dóttir. Valdís gekk að eiga Friðþjóf Arnar Frið­þjófs­son í Háteigs­kirkju þann 11.11.2017, en Valdís gifti sig í sér­saum­uðum kjól eftir dans­drottn­ing­una Hönnu Rún Bazev Óla­dóttur.

Nýgift hjónin.

Þorði ekki að versla af netinu

„Ég var búin að leita að brúð­ar­kjól úti um allt. Ég þorði samt ekki að versla mér á net­inu, of margar fyndnar sögur af því. En ég var búin að finna mér sirka kjól sem ég vildi en var alls ekki til­búin að greiða fyrir hann það sem hann kost­aði. Ég tal­aði svo við klæð­skera hér heima en ég var ekki sann­færð um að hún myndi skilja hvað það var sem mig lang­aði í. Svo kom Hanna upp í huga mér því ég þarfn­að­ist mann­eskju sem væri með þetta í sér. Mann­eskju sem ég taldi að gæti gert þetta verk,“ segir Valdís. Fyrst þegar hún hafði sam­band við Hönnu Rún og bað hana um að sér­sauma brúð­ar­kjól­inn sagði hún nei, en Valdís missti ekki trúna.

„Hún reyndar neit­aði mér fyrst til að byrja með en ég bað um að fá að hringja í hana dag­inn eftir. Hanna hefur lifað og hrærst í þessum danskjóla­heimi og já, ég valdi rétt. Ég var róleg allan tím­ann því ég hef fylgst með henni í gegnum vin­konu mína, hana Unni systur hennar,“ segir Valdís, en fyrr­nefnd Unnur hefur náð góðum árangri í fit­ness-heim­inum.

Fallegt að ganga í það heilaga þegar jörðin er snævi­þakin.

„Hanna hefur séð um Unni í fit­ness og ég hef aldrei séð neitt annað en: Vá. Það var aðal­á­stæðan fyrir því að mér datt hún í hug. Ég treysti henni á undan henni sjálfri.“

Orðlaus þegar hún sá kjólinn

Það tók Hönnu Rún þrjú hund­ruð klukku­tíma að sauma kjól­inn og límdi hún þrjá­tíu þús­und steina á hann. Og við­brögð Valdísar létu ekki á sér standa þegar hún sá kjól­inn í fyrsta sinn.

„Ég held að það hafi ekki komið nein orð. Ég var meira orð­laus og svo kom gæsa­húðin.“

Valdís hefur nú sett kjól­inn á sölu með verð­miða uppá 750 þús­und krónur. Það þykir lík­leg­ast vel sloppið þar sem Hanna Rún verð­leggur kjól sem þennan á eina og hálfa milljón.

Brúðarvalsinn var danskeppni

Hanna Rún sá ekki aðeins um að hanna og sauma brúð­ar­kjól­inn heldur tók hún einnig virkan þátt í brúð­kaups­veisl­unni ásamt eig­in­manni sínum og dans­fé­laga, Nikita Bazev.

Brúð­gum­inn dansar við Hönnu Rún.

„Hugsunin var allan tím­ann að hafa brúð­kaupið stórt partý, enda erum við bæði orðin full­orðin, ég er 45 ára og mað­ur­inn minn fimm­tugur. Þannig að við tjöld­uðum öllu til í skemmti­at­riðum. Veislu­stjór­inn var Rikki G og til okkar komu Sigga Kling, Pétur Jóhann, Ingó veð­urguð og svo var brúð­ar­vals­inn okkar í anda Dancing with the Stars þar sem ég keppti við eig­in­mann­inn. Ég dans­aði við Nikita og hann dans­aði við Hönnu Rún,“ segir Valdís og brosir er hún rifjar upp keppn­ina. En hver ætli hafi unnið það kvöldið?

„Ég vann, en við höfum hvor­ugt farið í dans­tíma. Við erum meira „action“ fólk, en snjó­sleða­sportið á hug okkar beggja og vorum við því með snjó­sleð­ana okkar í mynda­horn­inu í veisl­unni.“

Hér bregða Valdís og Hanna Rún á leik í mynda­horn­inu í veisl­unni.

Mælir með að hafa góðan veislustjóra

Valdís kann vel við hjóna­lífið.

„Það er eitt­hvað sem ger­ist í hjart­anu við að gift­ast. Eitthvað sem ég get ekki útskýrt en ein­hvers konar sam­ein­ing,“ segir Valdís og á nokkur góð ráð til verð­andi brúð­hjóna uppí erminni.

„Ég mæli með að hafa góðan veislu­stjóra. Við réðum Rikka G og það sem ger­ist við að fá sér fag­mann er að maður sleppir bara tökum og nær 100% að njóta. Síðan var fólk alltaf að segja: Þetta er ykkar dagur og þið ráðið þessu sjálf. Þið ráðið öllu. Mér fannst þetta alltaf voða­lega skrítið hvernig fólk orð­aði þetta en í dag skil ég þetta. Ég mæli með því að hugsa þetta. Ég er orð­laus yfir okkar degi og hvað hann er rosa­lega merki­legur dagur.“

Sam­ein­ing.

Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ