Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Óskarinn 2018: „Frances rústar þessu“

Óskarinn 2018: „Frances rústar þessu“
|Sigríður Pét­urs­dóttir.|Tómas Val­geirs­son.

Stærsta verð­launa­há­tíð heims í kvik­mynda­geir­anum, sjálf Ósk­arsverð­launin, verða afhent með pompi og prakt vestan hafs næst­kom­andi sunnu­dag, þann 4. mars.

Við fengum val­in­kunna sér­fræð­inga, Tómas Val­geirs­son, kvik­mynda­gagn­rýn­anda, og Sigríði Pét­urs­dóttur, kvik­mynda­fræð­ing, til að spá í spilin um hverjir eiga eftir að ganga sáttir frá borði með gull­styttu í hönd á sunnu­dag­inn. Þau eru nokkuð sam­mála um úrslitin.

Sigríður Pét­urs­dóttir.

Nokkuð öruggur sigur

Við byrjum á að biðja álits­gjaf­ana okkar að tippa um hvaða leik­kona hreppir verð­launin fyrir frammi­stöðu sína í auka­hlut­verki. Þar eru þau Sigríður og Tómas sam­mála, en þau velja bæði Allison Janney fyrir frammi­stöðu sína í kvik­mynd­inni I, Tonya, kvik­mynd um skauta­drottn­ing­una Tonyu Harding, en fyrr­nefnd Allison leikur móður Tonyu.

„Sakar ekki að veðja nokkra bauka á þennan sigur. Þetta er nokkuð neglt,“ segir Tómas, viss í sinni sök. Þá eru sér­fræð­ing­arnir okkar einnig sam­mála um að Sam Rockwell hljóti verð­laun sem leik­ari í auka­hlut­verki fyrir frammi­stöðu sína í Three Bill­bo­ards Outside Ebbing, Missouri. Að sama skapi telja þau bæði að Frances McDormand hljóti gullnu stytt­una fyrir frammi­stöðu í aðal­hlut­verki í sömu mynd.

„Þetta er engin spurn­ing, Frances rústar þessu. Hjarta mitt heldur einnig örlítið með Sally en það er ómögu­legt að toppa lág­stemmdu til­þrifin í marglaga leik McDormand. Hún tekur þetta,“ segir Tómas. Þau telja bæði að Gary Oldman hrósi sigri sem leik­ari í aðal­hlut­verki fyrir The Darkest Hour, þar sem hann túlkar Winston Churchill, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Tómas er þó ekki par­hrif­inn af mynd­inni sjálfri.

„Ef við horfum fram­hjá því hvað The Darkest Hour er and­styggi­lega inn­an­tóm, þá er alveg kom­inn tími á Gary Oldman. Hann var flottur í mynd­inni og fær pott­þétt stytt­una fyrir það eitt að reykja tveggja milljón króna virði af vindlum við tökur mynd­ar­innar. Aka­dem­ían auð­vitað elskar fólk sem gefur skít í lík­ama og heilsu.“

Sigur væri ákveðin yfirlýsing

Tómas og Sigríður telja bæði að Three Bill­bo­ards Outside Ebbing, Missouri eftir Martin McDonagh standi uppi sem sig­ur­veg­ari fyrir besta frum­samda hand­rit og að styttu fyrir hand­rit byggt á áður útgefnu efni fari til Call Me By Your Name eftir James Ivory. Þá telja þau bæði að Guill­ermo del Toro hreppi verð­laun fyrir bestu leik­stjórn fyrir The Shape of Water.

Þegar kemur að aðal­verð­launum hátíð­ar­innar, vali á bestu kvik­mynd, eru þau hins vegar afar ósam­mála.

„The Shape of Water. Aka­dem­ían hefur sér­stakt dálæti á öðru­vísi bíó­myndum (ég meina, þetta er nú ást­ar­saga á milli konu og sjáv­ar­veru!) sem fylgja samt ákveðnum for­múlum. Sigur mynd­ar­innar væri ákveðin yfir­lýs­ing, enda krútt­leg, lítil full­orð­ins­fantasía sem styður við lít­il­magn­ana,“ segir Tómas en Sigríður er ekki sam­mála.

„Three Bill­bo­ards Outside Ebbing, Missouri,“ segir Sigríður en und­ir­strikar að hún spái í spilin fyrir Ósk­arsverð­laun­unum út frá líkur, ekki per­sónu­legri skoðun sinni á verk­unum og lista­mönn­unum sem til­nefnd eru.

„Mér finnst lík­leg­ast að þessir hreppi verð­launin, þó það spegli ekki í öllum til­fellum mínar óskir. Á hverju ári er líka eitt­hvað sem kemur á óvart og spurn­ing hvað að verður að þessu sinni. Ef til vill besta mynd. Ég er hrifin af Phantom Thread eftir Paul Thomas Anderson og finnst lík­legt að þessa árs verði seinna minnst sem árs­ins sem sú mynd fékk ekki þau verð­laun sem hún átti skilið“

Hér fyrir neðan má sjá hverjir eru til­nefndir í þeim flokkum sem við fengum sér­fræð­ing­ana til að rýna í:

Besta kvikmynd

Call Me by Your Name
Darkest Hour
Dunkirk
Get Out
Lady Bird
Phantom Thread
The Post
The Shape of Water
Three Bill­bo­ards Outside Ebbing, Missouri

Besta leikkonan í aðalhlutverki

Sally Hawkins, The Shape of Water
Frances McDormand, Three Bill­bo­ards Outside Ebbing, Missouri
Margot Robbie, I, Tonya
Saoirse Ronan, Lady Bird
Meryl Streep, The Post

Besta leikkonan í aukahlutverki

Mary J Blige, Mudbound
Allison Janney, I, Tonya
Lesley Manville, Phantom Thread
Laurie Metcalf, Lady Bird
Octavia Spencer, The Shape of Water

Besti leikari í aðalhlutverki

Timothée Chalamet, Call Me By Your Name
Daniel Day-Lewis, Phantom Thread
Daniel Kaluuya, Get Out
Gary Oldman, Darkest Hour
Denzel Washington, Roman J Israel, Esq

Besti leikari í aukahlutverki

Willem Dafoe, The Florida Project
Woody Harrel­son, Three Bill­bo­ards Outside Ebbing, Missouri
Richard Jenkins, The Shape of Water
Christopher Plummer, All the Money in the World
Sam Rockwell, Three Bill­bo­ards Outside Ebbing, Missouri

Besti leikstjórinn

Paul Thomas Anderson, Phantom Thread
Guill­ermo del Toro, The Shape of Water
Greta Gerwig, Lady Bird
Christopher Nolan, Dunkirk
Jordan Peele, Get Out

Besta handrit byggt á áður útgefnu efni

Call Me by Your Name
The Disaster Artist
Logan
Molly’s Game
Mudbound

Besta frumsamda handrit

The Big Sick
Get Out
Lady Bird
The Shape of Water
Three Bill­bo­ards Outside Ebbing, Missouri

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ