Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sextíu kílóum léttari: Lagður í einelti og glímdi við sjálfsvígshugsanir

Sextíu kílóum léttari: Lagður í einelti og glímdi við sjálfsvígshugsanir
||

„Ég hef verið of þungur frá því ég man eftir mér en lík­lega byrja ég að þyngj­ast fyrir alvöru í byrjun grunn­skól­ans,“ segir Mikael Þor­steins­son, 32ja ára gam­all yfir­kokkur á veit­inga­stað í Reykja­vík. Fyrir tveimur árum ákvað hann að breyta um lífs­stíl og hefur náð frá­bærum árangri á stuttum tíma.

Mikael er upp­al­inn hjá móður sinni á Húsavík og var lagður í ein­elti í grunn­skóla.

Mikael glímdi við þung­lyndi.

„Ég varð strax auð­velt skot­mark fyrir aðra krakka í skól­anum og var lagður í ein­elti alla grunn­skóla­göng­una sem hefur áhrif á mig enn þá í dag. Ég var upp­nefndur dag­lega og var eltur heim oft á tíðum með orðum sem særðu mikið. Ég var aldrei góður í íþróttum og kveið ég mikið fyrir að fara í íþrótta­tíma innan skól­ans. Bæði vegna þess að ég þurfti að klæða mig í íþrótta­fötin fyrir framan aðra stráka sem gerðu þá óspart grín að manni og jafn­vel íþrótta­kenn­arar sögðu við mig að ég yrði að standa mig betur og gera þetta eins og hinir krakk­arnir. Sér­stak­lega kveið ég fyrir því að fara í sturtu eftir tím­ana, þar sem kom fyrir að maður var sleg­inn með blautum hand­klæðum. Andlega ofbeldið var samt mikið algeng­ara. Ég átti samt alltaf ákveð­inn vina­hóp sem hjálp­aði til við að gera lífið bæri­legt lík­lega,“ segir Mikael.
Hann þró­aði með sér þung­lyndi á ung­lings­ár­unum og eftir tví­tugt var and­lega heilsan orðin mjög slæm. Þá reyndi hann að deyfa sárs­auk­ann.

Kom fram við sig eins og ruslatunnu

„Líklega reyndi ég að deyfa ákveð­inn and­legan sárs­auka með áfengi. Það voru ekki margar helg­arnar sem ég tók án þess að hafa áfengi við hönd­ina í vina­hópi,“ segir Mikael og heldur áfram.

„Í kringum þrí­tugs­af­mælið mitt var ég kom­inn eins langt niður og hægt var. Vakti heilu næt­urnar og svaf á dag­inn og borð­aði ógrynni af óhollu fæði og kom fram við mig eins og rusla­tunnu. Á þeim tíma var ég orð­inn 147 kíló. Á ákveðnum stundum var ég far­inn að íhuga að lík­lega væri betra fyrir alla að ég væri ekki til og það hræddi mig virki­lega að hafa þær hugs­anir. Þá ákvað ég að ég þyrfti að gera eitt­hvað í mínum málum til að end­ur­heimta ein­hverja lífs­ham­ingju.“

Tæp sextíu kíló farin á tveimur árum

Mikael hefur búið í Reykja­vík síð­ustu níu árin en það var í byrjun árið 2016 sem hann fékk sér lík­ams­rækt­ar­kort í Reebok Fitness, stað­ráð­inn í að breyta um lífs­stíl.

„Áður fyrr fannst mér alltaf leið­in­legt að fara í rækt­ina. Ég þoli ekki hlaupa­bretti og lyft­inga­tæki þannig ég tók þá ákvörðun að fara í hóp­tíma. Ég skráði mig í Body Pump hjá Magnúsi, þjálf­ara hjá Reebok, sem eru lyft­inga­tímar með stangir og lóð þar sem unnið er með nokkuð létt lóð en margar end­ur­tekn­ingar. Ég fann mig strax í þessum tímum þótt að úthaldið hafi verið skelfi­legt til að byrja með. Þegar úthaldið fór að aukast og ég fór að sjá árangur fór ég að fikra mig áfram í aðra krefj­andi hóp­tíma. Hreyfing er orðin algjör fíkn og erfitt að velja úr tímum til að fara í þar sem þeir eru allir frá­bærir. Matar­æðið fylgdi einig með. Ég fór að minnka sykur og hveiti í fæð­inu og gos­drykkir fóru á bann­lista,“ segir Mikael. Hann fagn­aði 32ja ára afmæli sínu fyrir stuttu og fékk ómet­an­lega gjöf.

„Á 32ja ára afmæl­inu skellti ég mér á vigt­ina og las 89 kíló, sem eru þá rétt tæp 60 kíló sem eru farin á þessum tveimur árum.“

Aukinn áhugi frá kvenfólki

Í dag brosir lífið við kokk­inum.

Mikael seg­ist finna mik­inn mun á sér í dag, bæði and­lega og lík­am­lega.

„Munurinn er slá­andi og þá sér­stak­lega and­lega. Ég er létt­ari á lík­ama og sál. Ég hef fundið ánægju yfir hlutum aftur og hreyf­ing er mín sál­fræði­að­stoð. Að sjálf­sögðu sé ég ótrú­legan mun á mér lík­am­lega og á úthaldi, styrk og þoli. Svefninn er mikið betri og ég er yfir höfuð mjög ánægður með mitt líf í dag,“ segir Mikael og bætir við að þessi breyt­ing hafi ekki gengið áfalla­laust fyrir sig.

„Ég hef fallið í nam­mið og gosið svo um munar og dottið niður and­lega hér og þar. En erf­ið­leik­arnir eru mestir í upp­hafi. Það að koma sér af stað og taka ákvörð­un­ina um að taka sjálfan sig í gegn. Þetta hefur kostað blóð, svita og tár en hefur verið algjör­lega þess virði og ég myndi ekki vilja breyta neinu á minni leið til betri heilsu. Líf mitt hefur breyst tölu­vert. Ég er far­inn að halda í við íþrótta­fólk í rækt­inni, hljóp 10 kíló­metra hlaup á gaml­árs­dag, far­inn að íhuga að ganga á fjöll og hef hugsað með mér að fara jafn­vel í einka­þjálf­ar­ann. Þetta eru betri hugs­anir en að vera milli svefns og vöku allan dag­inn vegna and­legra og lík­am­legra erf­ið­leika. Einnig hef ég tekið eftir auknum áhuga kven­fólks á mér. Sem er nú bara jákvætt,“ segir Mikael og brosir.

Þú átt alltaf rétt á hamingju í lífinu

Mikael lítur sáttur yfir far­inn veg og hefur þann draum að geta hjálpað fólki að breyta um lífs­stíl.

„Mig langar að hjálpa fólki sem hefur verið að glíma við sömu erf­ið­leika og ég og sýna þeim að þetta er hægt ef vilj­inn er fyrir hendi. Ég veit að það er klisja að segja þetta en hún er 100% sönn. Ef þú leggur til vinn­una munt þú sjá árangur. Það er ekk­ert flókn­ara. Það skiptir engu máli hversu gam­all þú ert, hvað þú hefur gert af þér í líf­inu, hvaða erf­ið­leika þú hefur átt við að stríða. Þú átt alltaf rétt á ham­ingju í líf­inu og að vera sáttur í eigin skinni,“ segir Mikael og vill skila þakk­læti til þeirra sem studdu hann í sinni veg­ferð, sem heldur áfram um ókom­inn tíma.

„Ég vil enda á að þakka fólki sem hefur staðið þétt við bakið á mér. Fjöl­skylda og vinir hafa verið eins og klettur. Svo vil ég skila sér­stöku þakk­læti til Magnúsar, þjálf­ara hjá Reebok og allra þeirra sem æfa með mér í hóp­tímunum. Þetta fólk skiptir miklu máli og hvetur mig áfram. Ég hef séð fólk ná frá­bærum árangri í tímunum með mér. Ef fólk vill koma og prófa hóp­tím­ana, þá taka allir vel á móti þér.“

Texti / Lilja Katrín
[email protected]
Myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð