Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sumarbaksturinn – góð ráð

Nokkur bakst­urs­ráð sem ættu að koma að góðum notum.

Sumarbaksturinn – góð ráð

Það er gott að vita að deig flokk­ast í meg­in­dráttum í þrjá flokka.
Hrært deig þar sem byrjað er á því að hræra mjúkt smjör og sykur saman.
Þeytt deig en þá eru egg og sykur þeytt þar til það verður ljóst og létt.
Hnoðað deig þar sem hveiti og smjör er mulið saman og vökvi hnoð­aður saman við það.
—
Þegar þið lagið þeytt deig, þ.e. deig þar sem byrjað er á því að þeyta egg og sykur vel saman, er gott að nota egg sem eru við stofu­hita. Froðan verður miklu loft­meiri og kakan létt­ari. Ef þið eruð í tíma­hraki er ráð að leggja þau í heitt vatn úr kran­anum í skál í 5 mín­útur.
—-

Gaman er að nota lif­andi blóm til skreyt­inga. Mynd/Hákon Davíð Björns­son, Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir

Góðir bak­arar nota gjarnan fleiri en eitt ráð þegar kemur að því að athuga hvort kakan er bökuð eða ekki. – Hvernig kakan lítur út, hvernig hún lyktar og hvernig hún er við­komu.
Ofnar eru til dæmis mis­jafnir. Byrjið á að athuga hvernig bakst­ur­inn á kök­unni gengur 7-8 mín­útum áður en bakst­urs­tím­anum ætti að vera lokið. Kakan ætti að vera til­búin þegar deig fest­ist ekki á prjóni sem stungið er í miðj­una á kök­unni. Annað gott ráð er að „hlusta“ á kök­una. Þegar kemur að lokum bök­un­ar­tíma hættir hviss-hljóðið að heyr­ast í kök­unni. Flestar kökur losna líka aðeins frá börm­unum þegar þær eru til­búnar.
—-
Stundum á maður ekki stærð­ina á form­inu sem gefin er upp í upp­skrift­inni. Þá þarf að hafa í huga að ef stærð­inni er breytt, breyt­ist bök­un­ar­tím­inn á kök­unni. Stærra form getur þýtt skemmri bök­un­ar­tími og minna form lengri tíma.
—-
Passið vel að skálin sem á að þeyta eggja­hvít­urnar í sé alveg tand­ur­hrein. Smáarða af fitu í skál­inni getur orðið til þess að hvít­urnar stífna ekki. Eggja­hvítur verða að vera alveg aðskildar frá rauð­unum, smá­vegis af rauðu getur eyði­lagt allt. Best er að aðskilja egg sem eru köld úr ísskáp, þá er rauðan afmark­aðri frá hvít­unni og betra að aðskilja þau.
—-
Upp­skriftin kallar á mjúkt smjör og smjörið er gler­hart í ísskápnum. Gott ráð er að raspa það á rifjárni eða sneiða með osta­skera það magn af smjöri sem þarf í upp­skrift­ina.
—-
Það er mik­il­vægt að lesa alla upp­skrift­ina yfir áður en byrjað er að baka. Síðan skuluð þið taka allt til sem á að fara í upp­skrift­ina. Sumum finnst gott að raða hrá­efn­inu upp í þeirri röð sem á að nota það. Farið síðan yfir tím­ann sem gef­inn er í bakst­ur­inn. Það er ekki gaman að lenda í tíma­þröng og kakan ekki til­búin í ofn­inum.
—-

Það er mjög gott að ná kökum úr smellu­formum, sér­stak­lega ef þið setjið bök­un­ar­pappír á botn­inn. Hér er sýnt hvernig sniðug­ast er að setja papp­ír­inn í slíkt form. Mynd/Myriam Marti

—-
Fyrir þá sem vilja ná sem bestum árangri í bakstr­inum er ekki alveg sama hvernig hveiti er notað í kökur. Það er um að gera að kynna sér hinar mis­mun­andi teg­undir. Létt hveiti sem inni­heldur lyfti­efni er til dæmis það sem er best að nota í bakstur á fínni kökum.
—-
Margir eru óör­uggir með hvaða rim kakan á að vera í ofn­inum (þ.e.a.s. þegar ekki er not­ast við blást­ur­sofn). Reglan er sú að allar kökur t.d. form­kökur sem bak­ast við vægan hita 175°C eða minna, bak­ast á neðstu rim. Bökur eru líka bak­aðar á neðstu rim svo botn­inn bak­ist vel og allar kökur sem eru með sykraðan yfir­flöt. Brauð sem eru lengi í ofn­inum eru oft­ast bökuð neð­ar­lega í ofn­inum en brauð­bollur á miðrim. Aðrar kökur sem eru bak­aðar við hærri hita og eru 30 mín­útur eða skemur í ofni er best að baka í miðjum ofni. Ef þið eruð óör­ugg er ráð að fylgj­ast vel með kök­unni og breiða álp­appír yfir hana, ef hún er að dökkna of mikið.

Betri er krókur en kelda
Oft er þægi­legt að stytta sér leið í elda­mennsku eða við bakstur en stundum borgar það sig þó alls ekki. Eitt af því sem fólk ætti alls ekki að sleppa er að fóðra form með bök­un­ar­pappír. Best er að smyrja formið vel t.d. með smjöri eða bragð­lít­illi olíu og setja síðan bök­un­ar­papp­ír­inn ofan á. Þetta er ekki eins flókið og það hljómar. Hér eru tvær skot­heldar leiðir til að klæða bæði aflöng form og smellu­form.

Aflöng form: Klippið 2 lengjur af pappír og leggið aðra langsum og hina þversum yfir formið eins og á mynd. Mynd/Myriam Marti
Smellu­form: Takið bút af smjör­pappír, leggið ofan á lausan botn­inn og festið smellu­hring­inn ofan á. Klippið aukapappír frá. Mynd/Myriam Marti
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni