Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Leggja mikla ást í hverja flögu

Hug­myndin að eigin fram­leiðslu á kart­öflu­flögum úr ann­ars flokks kart­öflum kvikn­aði á gulum ökrum í nágrenni Horna­fjarðar. Ein helsta sér­staða fyr­ir­tæk­is­ins er mikil áhersla á umhverf­is­mál.

Leggja mikla ást í hverja flögu

Þrátt fyrir nafnið eru Ljótu kart­öfl­urnar afar bragð­góðar enda einu kart­öflu­flög­urnar sem fram­leiddar eru úr inn­lendu hrá­efni. Maðurinn á bak­við fyr­ir­tækið er Viðar Reyn­is­son, þriggja barna fjöl­skyldu­faðir og fyrrum banka­starfs­maður, sem ákvað ein­fald­lega að láta draum­inn ræt­ast og hefja fram­leiðslu á kart­öflu­flögum úr íslenskum ann­ars flokks kart­öflum sem er að miklu leyti fargað í dag.

Hann seg­ist í gegnum tíð­ina hafa fengið margar mis­góðar við­skipta­hu­myndir og eig­in­lega alltaf verið að melta og þróa nokkrar þeirra í koll­inum. „Þær hafa þó sjaldan kom­ist af hug­mynda­stig­inu og aldrei áður hef ég þorað að taka stökkið, að láta reyna á hug­mynd­ina og stofna verk­efni í kringum hana. Það sem er svo skemmti­legt við svona nýsköp­un­ar­verk­efni er hvað maður fær útrás fyrir mörg áhuga­mál. Í mínu til­viki hef ég mik­inn áhuga á öllu sem við kemur hönnun, sköpun og mat­ar­gerð.“

„Við leggjum mikið upp úr gæðum og ætlum auð­vitað að gera heims­ins bestu flögur hvað varðar rétta þykkt, stökk­leika og rétt bragð.“

Aðlag­að­ist aðstæðum
Viðar stofn­aði fyr­ir­tækið fyrir tveimur árum eftir að hafa starfað hjá Arion banka í fjórtán ár. Hug­myndin kvikn­aði þó miklu fyrr, eða fjórum árum áður. „Þá var ég staddur í sum­ar­húsi í Horna­firði þar sem við höfðum farið næstum á hverju sumri í ára­tug. Þetta sum­arið voru akrarnir sem voru sam­liggj­andi kart­öflugörð­unum í sveit­inni allt í einu orðnir gulir á lit og í miklum blóma. Þegar ég hitti á bónd­ann í nágrenn­inu kom í ljós að hann var að gera til­raunir með að rækta repju til fram­leiðslu á kald­press­aðri repju­olíu til neyslu. Hug­myndin að kart­öflu­flög­unum kvikn­aði strax, þarna var komið hrá­efnið sem þyrfti til fram­leiðslu á þeim auk þess sem inn­lend fram­leiðsla var hafin á salti og öðru kryddi.“
Upp­haf­lega hug­myndin var því að fram­leiða kart­öflu­flögur sem væru ein­göngu úr inn­lendu hrá­efni og nýta til þess þær kart­öflur sem bændur ættu erfitt með að koma í verð sökum útlits­staðla.

Eftir margar próf­anir á inn­lendri repju­olíu og rann­sókn­ar­vinnu varð þó Viðar að játa sig sigr­aðan. „Nið­ur­staðan varð sú að það gæti aldrei borgað sig að nota hágæða inn­lenda kald­press­aða olíu og vinna öll góðu inn­halds­efnin úr henni til þess að gera hana sam­bæri­lega ódýrri og bragð­lausri inn­fluttri repju­olíu. Sú olía er því eina erlenda hrá­efnið í vör­unum okkar utan þess að við notum líka að hluta inn­flutt krydd.“
Umhverf­is­mál mik­il­væg

Ein helsta sér­staða fyr­ir­tæk­is­ins er sú mikla áhersla sem lögð er á umhverf­is­mál segir Viðar. „Snakk­pokar inni­halda mikið loft og eru pláss­frekri í pökkun. Kolefn­is­spor inn­flutts snakks er því gríð­ar­stórt og hæg­lega hægt að eyða því með því að velja inn­lenda fram­leiðslu. Kart­öflu­snakk verður því miður að pakka í umbúðir sem eru a.m.k. að hluta úr áli eða plasti til þess að tryggja líf­tíma vör­unnar. Af nokkrum slæmum kostum teljum við rétt­ast að nota umbúðir sem eru aðeins úr einu efni og hægt er að end­ur­vinna enda­laust en um er að ræða polypropel­ene-plast.“

Ljótu kart­öfl­urnar verða eina kart­öflu­snakkið sem unnið er úr inn­lendum kart­öflum að sögn Viðars. „Þar að auki er varan sann­ar­lega hand­gerð af mér og Gunnari sam­starfs­fé­laga mínum og við leggjum mikla ást í hverja flögu. Við leggjum mikið upp úr gæðum og ætlum auð­vitað að gera heims­ins bestu flögur hvað varðar rétta þykkt, stökk­leika og rétt bragð. Stefnan er að fara nokkuð óhefð­bundnar leiðir varð­andi þróun á bragð­teg­undum, hafa meira bragð og kikk en fólk er kannski vant og reyna líka að nýta það sem íslensk nátt­úra hefur upp á að bjóða. Hins vegar ætlum við að fara nokkuð hefð­bundnar leiðir með 1-2 fyrstu bragð­teg­und­irnar okkar þar sem fyrsta upp­lifun neyt­enda er mik­il­væg og auð­vitað ekki allir með sama smekk.“

Félaginn sér um Excel
Auk Viðars er Gunnar Jóhann Gunn­ars­son lög­fræð­ingur með honum en þeir hafa verið vinir til 20 ára. „Það hefur ekki mikið reynt á verka­skipt­ing­una hingað til. Frá því Gunnar kom inn hefur mestur tími farið í að stand­setja hús­næði til fram­leiðsl­unnar. En það er a.m.k. á hreinu að Gunnar mun sjá meira um fjár­málin, verð­út­reikn­inga og allt sem unnið er í Excel meðan ég er meira í mark­aðs­málum og tals­maður félags­ins út á við, enda stofn­andi þess.“

Áskor­anir fram undan
Viðar segir þá félaga aldrei hafa staðið í þeim sporum áður að koma nýrri vöru á markað. „Við stöndum því frammi fyrir mjög mörgum fram­andi áskor­unum og því mik­il­vægt að vanda til verka. Helstu vænt­ingar okkar til hrað­als­ins eru að fá t.d. ráð­gjöf varð­andi mótun stefnu í mark­aðs­málum, verð­lagn­ingu og dreif­ing­ar­málum. Ég held að það muni skila okkur gríð­ar­lega dýr­mætum upp­lýs­ingum að hitta alla þá mentora sem við eigum eftir að hitta og þá sér­stak­lega þá aðila sem hafa staðið í okkar sporum og náð árangri. Auk þess er starfs­fólk Icelandic Startups hokið af reynslu og getur komið á tengslum við fólk sem getur reynst okkur dýr­mætt. Stefnan er sett á að vera komin í almenna dreif­ingu innan tveggja ára. Við höfum trú á að stór hluti neyt­enda muni kjósa Ljótu kart­öfl­urnar þó þær verði aðeins dýr­ari en vörur sam­keppn­is­að­il­anna enda er fólk að velja gæði og við höfum mik­inn með­byr með þeirri umhverf­is­vakn­ingu sem á sér nú stað.“

Mynda­texti: Viðar Reyn­is­son og Gunnar Jóhann Gunn­ars­son standa á bak­við Ljótu kart­öfl­urnar.

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við Til sjávar og sveita.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur