Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þorði ekki að segja frá klikkuninni

Und­ir­staðan í snyrti­vör­unum frá Beauty by Iceland eru gul­rætur og rófur úr blóm­legum sveitum Suð­ur­lands.

Þorði ekki að segja frá klikkuninni

Erna Hödd Pálma­dóttir ólst upp í sveit á Suð­ur­landi þar sem græn­met­is­fram­leiðsla hefur staðið í miklum blóma í ára­tugi og varð fyrir vikið snemma með­vituð um nær­ing­ar­gildi græn­metis. Það vakti athygli hennar á unga aldri hversu mikið af græn­met­is­fram­leiðslu fjöl­skyld­unnar var sent til baka frá versl­unum og um leið hversu mikið af græn­meti fékk aldrei að fara úr vöru­hús­inu vegna útlits­galla.

„Á þessum árum var ég farin að huga meira að heil­brigði húð­ar­innar og sá þá mögu­leik­ann sem var beint fyrir framan mig öll þessi ár, þ.e. að fram­leiða snyrti­vörur úr íslensku og nær­ing­ar­ríku græn­meti sem er útlits­gallað og ekki talið sölu­hæft. Fjöl­skyldan ræktar gul­rætur og rófur sem eru ríkar af vítamínum og ég sá tæki­færi í að fram­leiða snyrti­vörur úr þeim.“

Hún ákvað því að leggja allt undir og setti á fót fyr­ir­tækið Beauty by Iceland sam­hliða námi í við­skipta­fræði við Háskóla Íslands.

Búa yfir mikilli hollustu

Í fyrstu hóf Erna að afla sér heim­ilda erlendis frá þar sem rann­sóknir hafa verið gerðar á hrá­efn­inu og sá þá betur hvernig hún gæti hagað fram­leiðslu sinni. „Ég við­ur­kenni það alveg að ég þorði ekki að segja neinum frá þess­ari klikkun til að byrja með. Mögulega hafði ég ekki trú á sjálfri mér en einnig hafa íslenskir snyrti­vöru­fram­leið­endur ekki not­ast mikið við mat­væli í fram­leiðslu sinni, utan sjáv­ar­fangs, eftir því sem ég best veit.“

Und­ir­staðan í fram­leiðsl­unni eru gul­rætur og rófur sem búa yfir mik­illi holl­ustu að hennar sögn. „Gulrætur eru ríkar af andox­un­ar­efnum en þau vítamín sem við varð­veitum í vör­unum eru A-, C- og E-vítamín auk fos­fórs en þessi efni eru nauð­syn­leg fyrir heilsu húðar, hárs og taugar lík­amanns.“

Rófurnar eru ekki síðri að hennar sögn en þær inni­halda m.a. natrín, kalín, sykrur, A-, C- og D-vítamín, kal­sín, magnesíum og járn. „Þegar C-vítamíni er bætt við dag­lega umhirðu húðar jafnar það húð­lit og ver hana fyrir sýni­legum áhrifum meng­unar auk þess að bæta raka­stig og við­halda ung­legri húð.“

Ótrúlega þakklátar

Í dag starfa tveir starfs­menn hjá fyr­ir­tæk­inu. Utan Ernu, sem gegnir stöðu fram­kvæmda­stjóra, er Bóel Guð­laugs­dóttir fjár­mála­stjóri og saman vinna þær að vöru­þróun. „Við höfum einnig fengið inn fag­að­ila að ólíkum verk­efnum, t.d. efna­fræð­ing, hönnuð og annað fag­fólk á snyrti­vöru­mark­aði.“

Hún segir þær alls ekki hafa búist við því að kom­ast inn í við­skipta­hrað­al­inn þegar þær skil­uðu umsókn­inni. „Því erum við svo ótrú­lega þakk­látar fyrir að fá að taka þátt. Við höfum sett okkur mæl­an­leg mark­mið í þróun á vör­unum en þar sem fram­leiðslan er árs­tíða­bundin nýtum við hrað­al­inn til að byggja upp mark­aðs­setn­ingu og vöru­þróun. Það hefur verið ómet­an­legt að fá inn­sýn í alla þá vit­neskju sem þetta stór­kost­lega fólki býr yfir sem kemur að hraðl­inum og er að aðstoða okkur. Fyrstu vik­urnar hafa sann­ar­lega farið fram úr vænt­ingum okkar.“

Skemmtileg samkeppni

Erna segir grunn­gildi fyr­ir­tæk­is­ins snúa að því að allir eigi rétt á því að líða vel með sjálfan sig og húð sína. „Því erum við fyrst og fremst að horfa til þeirra hópa sem eiga við húð­vanda­mál að stríða. Vörur okkar munu inni­halda þessi vítamín sem ég minnt­ist á áðan en engum óæski­legum aukefnum er bætt við. Flestir vita að græn­meti er hollt og því ættu allir að geta borið það á sig líka, jafn­vel borðað það.“

Mjög mikil sam­keppni ríkir á snyrti­vöru­mark­aði en Erna lítur ekki á hana sem ógn heldur segir hana bara vera skemmti­lega. „Þau fyr­ir­tæki sem eru í snyrti­vöru­fram­leiðslu á Íslandi eru mörg hver að gera stór­kost­lega hluti. Því tel ég að Beauty by Iceland geti einnig lært mikið af þeim í stað þess að líta á þau sem ógn, því neyt­and­inn er að leita að mis­mun­andi vörum sem hægt er að blanda saman.“

Margir tilbúnir að hjálpa

Aðspurð um fram­tíð­ar­horfur segir Erna stefnu fyr­ir­tæk­is­ins vera að fá sem flesta græn­met­is­bændur hér­lendis í lið með sér og þróa bestu snyrti­vörur sem völ er á. „Til þess munum við nota hrá­efni sem aðrir sjá ekki tæki­færi í að nota, þar með talið aðrar teg­undir græn­metis sem hafa frá­bæra kosti fyrir húð­um­hirðu. Alþjóð­legur mark­aður er stór og ef við tökum nágranna­þjóðir okkar þá er sóun mat­væla enn stærra vanda­mál þar. Þetta hrá­efni viljum við nýta í okkar fram­leiðslu á næstu árum.“

Hún segir íslenskt sam­fé­lag vera að vakna til með­vit­undar um hversu mik­ils virði land­bún­aður sé í raun og veru. „Þau fyr­ir­tæki sem hafa farið í gegnum svona við­skipta­hraðal eru að gera frá­bæra hluti og ég tel að frum­kvöðlaum­hverfið sé mjög opið fyrir frá­bærum hug­myndum. Ekki má heldur gleyma að nefna hversu margir eru til­búnir að aðstoða með hug­myndir og vísa manni á réttan stað. Það er sann­ar­lega mik­ils virði og mun leiða til enn frek­ari verð­mæta­sköp­unar fyrir íslenskt sam­fé­lag til fram­tíðar.“

Stúdíó Birt­ingur í sam­starfi við Til Sjávar og Sveita.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur