Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Betri heilsa og almenn vellíðan

Betri heilsa og almenn vellíðan
Mynd/Pixabay|||||||

Íslenskt Astax­ant­hin heitir nýjasta vara KeyNatura sem er að koma á markað þessa dag­ana. Hún er ætluð fyrir þá sem vilja taka inn öfl­uga andox­un­ar­efnið Astax­ant­hin í dag­lega nær­ingu sína sem hefur afar jákvæð áhrif á lík­amann.

Líf­tækni­fyr­ir­tækið KeyNatura setti nýlega á markað nýja vöru sem ber heitið Íslenskt Astax­ant­hin en hún er fyrir þá sem vilja taka inn öfl­uga andox­un­ar­efnið Astax­ant­hin í dag­lega nær­ingu sína. „Við köllum hana grunn­vöru því um er að ræða hreint gæða Astax­ant­hin sem er blandað með E-vítamíni. Við teljum að Astax­ant­hin sé að kom­ast á þann stall að verða eitt af þeim efnum sem allir munu hafa sem hluta af dag­legri nær­ingu sinni, líkt og Omega-3 og D-vítamín,“ segir Páll Arnar Hauksson, vöru­hönn­uður og vís­inda­maður hjá KeyNatura.

Einstaklega virkt

Astax­ant­hin er eitt af öfl­ug­ustu andox­un­ar­efnum nátt­úr­unnar og er til að mynda 6.000 sinnum sterkara en C-vítamín segir Páll Arnar. „Astax­ant­hin vinnur að því að græða og vernda alla frumuna í heild sinni sem gerir það nokkuð frá­brugðið öðrum andox­un­ar­efnum. Fyrir vikið hefur það fjöl­mörg öflug áhrif á lík­amann og starf­semi hans.“

Hann segir lík­ama okkar treysta á andox­un­ar­efni til að létta oxandi streitu og hjálpa að lækna skemmda frumu­vefi. „Til að útskýra þetta betur má segja að andox­un­ar­efni á borð við Astax­ant­hin berj­ist gegn ferli oxunar og sind­ur­efna sem herja á frumur lík­am­ans með tím­anum. Húð, vöðvar, lið­bönd, sinar, augu, innri líf­færi, hjarta- og æða­kerfi ásamt tauga­kerfi eru öll mót­tæki­leg fyrir Astax­ant­hin, sem gerir það ein­stak­lega virkt meðal andox­un­ar­efna.“

 Mjög jákvæð áhrif

Andox­un­ar­efnið Astax­ant­hin hefur verið rann­sakað klínískt margoft og hafa nið­ur­stöð­urnar verið mjög jákvæðar segir Haf­steinn Eyland, sölu- og mark­aðs­stjóri. „Nið­ur­stöð­urnar hafa m.a. sýnt að efnið verndar húð­ina fyrir sól­ar­geislum og dregur þar með úr ótíma­bærri öldrun húð­ar­innar þar sem hún heldur betur í raka og er teygj­an­legri. Húðin þornar því síður og hrukk­ast eins og ger­ist hjá flestum þegar ald­ur­inn fær­ist yfir.“

Astax­ant­hin hefur einnig sýnt fram á jákvæð áhrif á úthald og orku þar sem efnið eykur þrek og vöðva­myndun við æfingar auk þess sem það veitir betri end­ur­heimt vöðva eftir átök, bætir Haf­steinn við. „Astax­ant­hin hefur ýmis jákvæð áhrif á hjarta- og æða­kerfi en það getur dregið úr myndun á vonda kól­ester­ól­inu og aukið við það „góða“, auk þess sem það hefur jákvæð áhrif á blóð­flæði og minnkar bólgur.“

Einnig hefur verið sýnt fram á að með inn­töku Astax­ant­hin getur stirð­leiki og verkir í liðum minnkað umtals­vert. „Auk þess hefur Astax­ant­hin jákvæð áhrif á augn­heilsu því efnið verndar augn­botn­ana og getur því hjálpað til við augn­þreytu, þurrk og minnkað eða hægt á augn­hrörnun sem svo margir upp­lifa með hækk­andi aldri.“

Þetta er sjötta varan sem fyr­ir­tækið setur á markað en fyrir eru AstaSkin, AstaLýsi, AstaCardio, AstaFuel og Asta­Energy.

Páll Arnar Hauksson er vöru­hönn­uður og vís­inda­maður hjá KeyNatura.

Úr íslenskri náttúru

Lykil­efnið í fæðu­bót­ar­vörum fyr­ir­tæk­is­ins er sótt í íslenska nátt­úru þar sem smá­þör­ungar og íslenskt vatn skipa stærstan sess segir Haf­steinn. „Lyk­il­hrá­efnið okkar, Astax­ant­hin, sækjum við frá smá­þör­ung­unum okkar sem við ræktum í n.k. vatns-gróð­ur­húsi í Hafn­ar­firði. Þör­ung­arnir eru eðli­lega fagur grænir en þegar þeir hafa náð ákveð­inni þykkt og massa eru þeir settir í mjög sterkt ljós þar sem þeir fara í ákveðið varn­ar­við­mót. Á því stigi byrja þeir að fram­leiða Astax­ant­hinið til þess að vernda sjálfa sig en efnið er dökkrautt á lit.“

Auk smá­þör­ung­anna er not­ast við hreina og góða íslenska vatnið, led-ljós, koltví­sýr­ing og íslenska orku í fram­leiðslu­ferl­inu. „Það er gaman að segja frá því að úrgangs­efni fram­leiðsl­unnar er í raun bara súr­efni og nán­ast hreinna vatn en það sem notað var upp­haf­lega.“

Erlendis fer skyld fram­leiðsla fram með ýmsum hætti, t.d. í opnum tjörnum. Þá fer eðli­lega margt úr umhverf­inu og and­rúms­loft­inu í vör­una segir Páll Arnar. „Það er vel hægt að ímynda sér alla meng­un­ina og ýmis­legt annað sem fer þar ofan í. Hrein­leiki og gæði Astax­ant­hin hald­ast í hendur við fram­leiðslu­að­ferðir okkar. Því var lyk­il­at­riði að koma upp fram­leiðslu­tækni sem tryggði 100% hrein­leika, 100% gæði og skildi eftir sig sem minnsta kolefn­is­fót­spor. Þessu höfum við náð með góðum árangri sem m.a. hefur skilað sér í nýj­ustu vör­unni okkar, Íslensku Astax­ant­hin, sem hentar þeim sem vilja huga að heils­unni, ná árangri og upp­lifa almenna vellíðan.“

Nánari upp­lýs­ingar á www.keynatura.com.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur