Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Apple Pay er nú aðgengilegt á Íslandi

Kort­hafar Visa geta nú með ein­földum hætti skráð bæði debet- og kredit­kort í Apple Pay en Valitor hefur í sam­vinnu við Arion banka, Lands­bank­ann, Visa og Apple inn­leitt þessa spenn­andi og þægi­legu greiðslu­lausn.

Apple Pay er nú aðgengilegt á Íslandi
Græn bomba.|||

Apple Pay er hrað­virk og örugg lausn sem byggir á sýnd­ar­núm­era­tækni Visa sem Valitor hefur inn­leitt. Sýnd­ar­númer kemur í stað kort­núm­ers og korta­upp­lýs­ingar eru ekki vistaðar í snjall­tækj­unum. Kort­hafar auð­kenna sig í þeim þegar greiðsla er fram­kvæmd. Það kostar ekk­ert að nota Apple Pay, færslu­gjöld eru þau sömu og á því korti sem tengt er við Apple Pay.

Mögulegt er að nota Apple Pay í öllum posum sem bjóða upp á snerti­lausar greiðslur bæði á Íslandi og erlendis og einnig er hægt að nota Apple Pay til að greiða á Netinu og í öppum. Apple Pay er aðgengi­legt fyrir allar gerðir Apple-snjall­tækja með fingrafaraskanna eða and­litsskanna. Apple Pay virkar á allar kyn­slóðir af Apple Watch og á MacBook Pro og -Air með Touch ID.

Aðferðir til að borga

Nokkrar aðferðir eru mögu­legar til að borga með Apple Pay. Til að borga með and­litsskanna, Face ID, tvísmellir þú á hlið­ar­hnapp­inn, horfir á skjá­inn og heldur sím­anum svo upp að pos­anum. Með fingrafaraskanna, Touch ID, heldur þú sím­anum að pos­anum með fingur á fingrafaraskanna. Á Apple Watch tvísmellir þú á hlið­ar­hnapp­inn og leggur úrið að pos­anum. Til að borga í öppum og á net­síðum í Safari-vafra í iPhone eða iPad vel­urðu Apple Pay við kass­ann og stað­festir greiðsl­una með Face ID eða Touch ID. Til að borga á net­síðum í Safari-vafra í Mac-tölvum (2012 eða nýrri) vel­urðu Apple Pay og stað­festir greiðsl­una með iPhone eða Apple Watch. Á MacBook-far­tölvum fram­kvæmir þú greiðslu með því að nota Touch ID á skann­anum.

Auðvelt að tengja kortin

Hægt er að bæta kort­unum við Apple Pay beint úr bæði Lands­banka- og Arion banka-öpp­unum. Áður er gott að ganga úr skugga um að þið hafið nýj­ustu útgáf­una að öpp­unum. Opnið svo appið, veljið kort og ýtið á „bæta korti í Apple Wallet“. Fylgið síðan virkj­un­ar­ferl­inu og sam­þykkið skil­mála. Einnig er hægt að skrá kortin beint í gegnum Apple Wallet. Þá opnið þið Apple Wallet-appið í iPhone, veljið plús­táknið efst í hægra horn­inu og fylgið leið­bein­ing­unum sem birt­ast. Skráið kortið ann­að­hvort hand­virkt eða lesið það inn með mynda­vél­inni. Til að tengja kort við Apple Watch þá er Apple Watch-appið í sím­anum opnað og þar valið „Wallet & Apple Pay“ og síðan „Add Credit or Debet Card“.

Aukið öryggi

Þegar greiðsla er fram­kvæmd notar Apple Pay sér­tækt númer fyrir tækið þitt og ein­kvæmt númer fyrir greiðsl­una. Korta­núm­erið er ekki vistað á tæk­inu eða á net­þjónum Apple og því er aldrei deilt með selj­and­anum. Apple Pay geymir engar upp­lýs­ingar um við­skiptin sem hægt er að rekja til þín, sem tryggir öryggi kaupanna. Ef sím­inn týn­ist er ekki þörf á að loka kort­unum þar sem engar korta­upp­lýs­ingar eru geymdar í sím­tæk­inu en það þarf að loka fyrir staf­rænu kortin í sím­anum sem þú tap­aðir. Hægt er að loka þeim með því að hafa sam­band við þjón­ustu­ver bank­anna eða með því að nota „Find my iPhone“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur