Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Leikur þjóðhetju í Chernobyl

Þætt­irnir Chernobyl, sem hófu nýverið göngu sína, hafa farið sig­ur­göngu um heim allan en líkt og heitið gefur til kynna snú­ast þætt­irnir um kjarn­orku­slysið fræga í Chernobyl í Úkraínu 1986 þegar kjarna­ofn sprakk með þeim afleið­ingum að geisla­virk efni sluppu út í and­rúms­loftið og fjöldi manns lét lífið. Auk þess er fjallað um aðdrag­and­ann að slys­inu og eft­ir­mála. Leik­ar­inn Baltasar Breki Samper fer með hlut­verk í Chernobyl og segir að það hafi verið lær­dóms­ríkt að taka þátt í þessu stóra verk­efni.

Leikur þjóðhetju í Chernobyl
Baltasar Breki í hlut­verki Alexei Ananenko.|Hlut­verk­inu í Chernobyl land­aði Baltasar Breki í gegnum erlendan umboðs­að­ila sem hafði komið auga á hann í Ófærð. Hann segir að fram­leiðslan í kringum þætt­ina sé sú stærsta sem hann hafi komið nálægt til þessa.

„Ég get nú samt ekki beint sagt að þetta hafi verið beint ánægju­leg upp­lifun, leik­lega séð, að vera öllum stundum inni í stúd­íói í þessum kaf­aragalla ofan í ein­hverri sund­laug, upp­fullri af pípum og drasli,“ játar hann og hlær.

„En á móti kemur að þá var auð­vitað alveg geggjað að fá tæki­færi til að leika á móti stjörnum eins og Jared Harris og Stellan Skars­gård, þótt ég sé sjálfur ekki í stóru hlut­verki, og sjá hvernig svona umfangs­mikil fram­leiðsla gengur fyrir sig. Svo ég tali nú ekki um hvað það er gaman að vera hluti af seríu sem er að fá svona góð við­brögð, með hæstu ein­kunn í sögu kvik­mynda­vefs­ins IMDB eða 9,7.“

Í þátt­unum fer Baltasar Breki með hlut­verk Alexei nokk­urs Ananenko, eins þriggja verk­fræð­inga sem eru í kjöl­far slyss­ins sendir af stað til að hleypa vatni undan kjarna­ofn­inum og fyr­ir­byggja þannig enn stærri spreng­ingu og frek­ari eyði­legg­ingu. Spurður hvort það hafi ekki verið viss pressa að leika mann sem litið er á sem þjóð­hetju í heima­land sínu, svarar Baltasar Breki að hann hafi nú ekki verið mjög upp­tek­inn af því. Vissu­lega hafi hann kynnt sér sögu Ananen­kos en und­ir­bún­ing­ur­inn fyrir hlut­verkið hafi hins vegar snú­ist að mestu um að lesa sér betur til um slysið sjálft og skelfi­legar afleið­ingar þess.

„Ég hafði auð­vitað, eins og margir jafn­aldrar mínir, heyrt ýmis­legt um það en vissi ekki að það hefði verið svona hræði­legt eins og ég komst að raun um þegar ég fór að gúggla það og sá myndir af fórn­ar­lömbunum. Að sama skapi vissi ég ekki hversu illa þessir sov­ésku kerfiskar­lar, í sínum myrkv­uðu bak­her­bergjum, höndl­uðu slysið. Það var bara óhugs­andi að þeirra mati að svona ofn gæti sprungið. Þeir voru svo upp­teknir af sinni stöðu í flokknum, af því að líta vel út, að eng­inn horfð­ist í raun og veru í augu við stöð­una. Hefði ein­hver gert það hefði kannski mátt fyr­ir­byggja sumt af því sem gerð­ist en í stað­inn klúðr­uðu þeir alveg mál­unum.“

„Að sama skapi vissi ég ekki hversu illa þessir sov­ésku kerfiskar­lar, í sínum myrkv­uðu bak­her­bergjum, höndl­uðu slysið.“

Hann segir að ekki hafi verið síður merki­legt að lesa hvaða sögu­legu áhrif slysið hafði. „Mér skilst að það hafi til dæmis verið einn af síð­ustu nögl­unum í lík­kistu ríkja­banda­lags Sov­ét­ríkj­anna, sem er merki­legt, og líka ein ástæðan fyrir leið­toga­fund­inum í Höfða,“ segir hann og vísar þar til sögu­frægs fundar Ronalds Reagan, for­seta Banda­ríkj­anna, og Mikhaíls Gor­batsjev, leið­toga Sov­ét­ríkj­anna, í októ­ber árið 1986 en sá fundur er meðal ann­ars tal­inn hafa markað upp­hafið að lokum kalda stríðs­ins.

Hlut­verk­inu í Chernobyl land­aði Baltasar Breki í gegnum erlendan umboðs­að­ila sem hafði komið auga á hann í Ófærð. Hann segir að fram­leiðslan í kringum þætt­ina sé sú stærsta sem hann hafi komið nálægt til þessa.

Orðinn pínulíðið „paranoid“ eftir þetta

Fyrir utan það segir Baltasar Breki að það hafi haft mikil áhrif á sig per­sónu­lega að lesa um áhrif geisla­virkni. „Til dæmis hef ég öðru hverju verið að kaupa í sak­leysi mínu gamlar sov­éskar linsur á Netinu sem ég nota í hinu starf­inu mínu sem töku­maður og komst svo bara núna nýlega að því að þær inni­halda efnið thorium, sem er geisla­virkt. Ég snar­hætti því. Maður er orð­inn pínu­lítið „para­noid“ eftir að hafa leikið í þessum þáttum.“

Talandi um það, hef­urðu fengið ein­hver við­brögð við leik þínum í Chernobyl? „Tja, eins og ég segi þá reynir nú kannski ekki mikið á mig leik­lega séð. Maður er nátt­úr­lega bara í ein­hverjum kaf­aragalla allan tím­ann, sem gefur ekki svig­rúm fyrir mikil leik­ræn til­þrif. En fólk er ánægt með þætt­ina sem er gaman og auð­vitað ástæða til því þetta er þrus­u­góð fram­leiðsla í alla staði þótt ég segi sjálfur frá.“

Spurður hvort hann telji að þætt­irnir komi til með að opna honum nýjar dyr í brans­anum, hvort það séu ein­hver spenn­andi verk­efni á döf­inni, seg­ist Baltasar Breki búinn að vera að vinna að eigin verk­efnum und­an­farið. Þess á milli hafi hann verið að taka að sér hlut­verk og sé einmitt í augna­blik­inu að skoða svo­lítið. „En því miður get ég ekki rætt það við þig,“ segir hann leynd­ar­dóms­fullur. „Að minnsta kosti ekki í bili.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ