Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ekki sjálfstætt markmið að lifa af

Ekkert bendir til þess að draga muni úr átök­unum á milli þeirra afla sem takast nú á um sál Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ef ekki tekst að slíðra sverðin fyrir næsta lands­fund, sem er áætl­aður í byrjun næsta árs, verður óum­flýj­an­legt að þar komi til upp­gjörs. Átökin birt­ast meðal ann­ars í skrifum flokks­for­yst­unnar og þeirra sem gagrýna flokk­inn opin­ber­lega.

Ekki sjálfstætt markmið að lifa af

Síðustu árin hefur flokks­for­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins legið undir stans­lausri gagn­rýni ann­ars vegar frá þeim sem telja flokk­inn of íhalds­saman og hins vegar frá þeim sem telja hann ekki nægi­lega íhalds­saman. Davíð Oddson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, sem hefur sögu­lega ætíð gengið í takt með Sjálf­stæð­is­flokknum, hefur til að mynda gagn­rýnt for­ystu­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins í rit­stjórn­ar­skrifum og síð­ustu ár virð­ist stjórn­mála­leg sam­leið hans vera fyrst og fremst með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni og þeim flokkum sem hann stýrir hverju sinni. Inntak þeirrar hug­mynda­fræði er tor­tryggni gagn­vart alþjóða­sam­starfi grund­völluð á full­veld­is­rökum, þjóð­ern­is­kennd, gagn­rýni á kerf­i­s­væð­ingu stjórn­mála og krafa um að völd verði í auknum mæli færð aftur til kjör­inna stjórn­mála­manna og and­staða við aukið frjáls­lyndi í lögum lands­ins sem hefur það mark­mið að auka rétt­indi afmark­aðra hópa. Davíð er ekki einn um að hafa þessa skoðun. Hann er þvert á móti birt­ing­ar­mynd hóps manna innan flokks­ins sem telur hann hafa villst veru­lega af leið í sinni póli­tík.

Grein Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra á 90 ára afmæli Sjálf­stæð­is­flokks­ins í maí, sem birt­ist í Frétta­blað­inu, fjall­aði meðal ann­ars um hvert flokk­ur­inn stefnir. „Til fram­tíðar er það í okkar höndum hvernig fylgið þró­ast. Við getum náð fyrri styrk en við megum ekki gefa okkur í eina mín­útu að við eigum ein­hvern til­tek­inn stuðn­ing vís­an.“

Bjarni fjall­aði bæði um meinta íhalds­semi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og svar­aði gagn­rýni á skort hans á alþjóða­hyggju í grein sinni. Þar kom skýrt fram að Bjarni sjálfur telur flokk­inn ekki aft­ur­halds- eða kyrr­stöðu­flokk eins og sumir gagn­rýnendur hans sem gengu til liðs við Viðreisn telja hann vera. „Stjórn­mála­flokkur sem er á flótta undan sam­tíð­inni, hræð­ist breyt­ingar, forð­ast nýja hugsun og hleypur undan áskor­unum fram­tíð­ar­innar, mun visna upp. Slíkur stjórn­mála­flokkur hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn aldrei verið. Þvert á móti. […] Afstaða okkar sjálf­stæð­is­manna til alþjóð­legrar sam­vinnu hefur alltaf verið skýr og ein­örð. Við höfum staðið vörð um full­veldið og nýtt þá mögu­leika sem sjálf­stæðið gefur okkur í alþjóð­legu sam­starfi.“

Í því umróti breyt­inga sem stjórn­mála­lands­lagið hefur upp­lifað und­an­far­inn ára­tug skipti miklu máli að „þeir flokkar sem eiga djúpar rætur í sögu þjóðar og breiðan hóp fylg­is­manna standi í fæt­urna, en feyk­ist ekki undan í örvænt­ing­ar­fullri leit að vin­sældum.“

Ljóst er þó að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur frammi fyrir áskorun við að ná til yngri kjós­enda. Samkvæmt gögnum frá MMR eru ein­ungis 19,9 pró­sent þeirra sem segj­ast ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn undir þrí­tugu. Eini flokk­ur­inn sem er með lægra hlut­fall kjós­enda í þeim ald­urs­flokki er Mið­flokk­ur­inn, en 18,5 pró­sent kjós­enda hans eru 18-29 ára.

Hægt er að lesa um málið í frétta­skýr­ingu Kjarnans á kjarn­inn.is og í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ