Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Vill skipakirkjugarð á Vestfirði

Tillaga um að koma á fót skipa­kirkju­garði á Vest­fjörðum var rædd í bæj­ar­ráði Ísa­fjarðar í vik­unni. Mark­miðið er ann­ars vegar að varð­veita gömul skip sem ann­ars myndu grotna niður og hins vegar að skapa vett­vang fyrir sport­köfun.

Vill skipakirkjugarð á Vestfirði
Sigurður J. Hreins­son.||Mynd/Hákon Davíð Björns­son||23. tbl. 2019

Tillagan sem er hug­ar­fóstur bæj­ar­full­trú­ans Sigurðar J. Hreins­sonar felur í sér að bæj­ar­stjóra verði falið að óska eftir sam­starfi við Súða­vík­ur­hrepp um stofnun vinnu­hóps sem hafi það hlut­verk að gera stað­ar­vals- og fýsi­leika­könnun á að koma upp skipa­kirkju­garði í ein­hverjum inn­fjarða Ísa­fjarð­ar­djúps. Sér Sigurður fyrir sér að skipa­kirkju­garð­ur­inn sam­an­standi af 5 til 10 tré­skipum á hafs­botni. Samhliða væri hægt að byggja upp aðstöðu fyrir sport­köfun sem nýtur vax­andi vin­sælda í heim­inum og bendir Sigurður á að á dög­unum var Airbus 330-far­þega­þotu sökkt undan ströndum Tyrk­lands í þeim til­gangi. Aðspurður hvort hann hafi ein­hverja sér­staka stað­setn­ingu í huga, svarar Sigurður: „Firð­irnir fyrir innan okkur eru skjól­sælli og til­tölu­lega straum­léttir, það er ef við horfum á þetta út frá hags­munum kaf­ara. Það er til dæm­ist flak í Álfta­firði sem er mjög vin­sælt. Sá fjörður er líka nálægt byggð og annarri þjón­ustu en það er viss­ara að gefa Súð­vík­ingum tæki­færi til að tjá sig um það. En þetta snýst líka um hvað svæðið þolir, það þarf að huga að mengun og að ganga ekki of langt á umhverfið.“

En málið snýst ekki síður um að bjarga menn­ing­ar­verð­mætum, segir Sigurður. Á síð­ustu árum og ára­tugum hafi miklum fjölda tré­skipa verið fargað á eldi eða nið­ur­broti og svo mun áfram verða þar sem fjár­magn til varð­veislu þess­ara minja sé af skornum skammti. Mjög kostn­að­ar­samt sé að halda svona skipum við og bendir Sigurður á reynslu Skaga­manna af kútter Sig­ur­fara, en honum verður lík­lega fargað þar sem ljóst er að end­ur­bætur eru of kostn­að­ar­samar. Í til­lög­unni er bent á að dæmi séu um að sokkin timb­ur­skip hafi varð­veist mjög vel og þess vegna megi sækja þau af hafs­botni síðar og end­ur­gera.

Tré­skipið María Júlía hefur legið við bryggju í Ísa­fjarð­ar­höfn í rúman ára­tug þar sem það grotnar niður.

Sigurður segir að Vest­firð­ingar standi frammi fyrir álíka vanda­máli og Skaga­menn því tré­skipið María Júlía hafi legið við bryggju í Ísa­fjarð­ar­höfn í rúman ára­tug þar sem hún grotnar niður. Hann sér því fyrir sér að hægt verði að varð­veita það skip í skipa­kirkju­garð­inum. „Það stóð alltaf til að end­ur­gera skipið en það er orðið svo risa­vaxið verk­efni sem ég sé ekki annað en að menn muni ýta á undan sér næstu árin. Það blasir við að á næstu fimm árum komi hún til með að sökkva upp við bryggju og þá mun kosta millj­ónir að ná henni upp og maður spyr sig hvort það sé ekki bara betra að sökkva skip­inu.“

Ríkið stendur í skuld við Vest­firð­inga
María Júlía er í eigu Byggða­safns Vest­fjarða og Minja­safns Egils Ólafs­sonar á Hnjóti en það fyrr­nefnda hefur séð um að fóstra skipið og greiða af því hafn­ar­gjöld. Skipið á sér um margt merka sögu því þetta var fyrsta björg­un­ar­skip Vest­firð­inga og voru það kven­fé­lög á svæð­inu sem sáu um að fjár­magna kaupin. Helga Þórs­dóttir, for­stöðu­maður Byggða­safns Vest­fjarða, segir það afleita hug­mynd að sökkva skip­inu. „Mér finnst það ekki koma til greina, en það kemur heldur ekki til greina að láta það liggja í höfn­inni,“ segir Helga við Mannlíf.

„… maður spyr sig hvort það sé ekki bara betra að sökkva skip­inu.“

End­ur­gerð Maríu Júlíu hefur setið á hak­anum um ára­bil sökum fjár­magns­skorts. Helga segir að ríkið hafi á sínum tíma gert heið­urs­manna­sam­komu­lag um að veita opin­berum fjár­munum til að end­ur­gera skipið en aðeins brot af þeim 148 millj­ónum sem var lofað hafi skilað sér. Verði skip­inu hins vegar sökkt þurfi að skila þeim fjár­munum sem þó hafa skilað sér. „Ef það á að afskrá Maríu Júlíu þá þarf bær­inn eða safnið að borga 20 millj­ónir til baka. Safnið á ekki slíka fjár­muni. Stað­reyndin er sú að ríkið stendur í skuld við okkur og það ætti að sjá sóma sinn í að standa við það sam­komu­lag sem var gert. Mér finnst ekki hægt að leyfa þeirri sögu að sökkva og það væri óvirð­ing við vinnu allra þess­ara kvenna á Vest­fjörðum sem lögðu í þessa ótrú­lega söfnun.“

Á fundi bæj­ar­ráðs var óskað eftir því að til­lagan yrði rædd í sveit­ar­stjórn Súða­vík­ur­hrepps.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ