Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Trassaskapur en ekki fjárdráttur

Reglu­lega koma upp til­vik þar sem sjálf­stætt starf­andi lög­menn trassa að veita upp­lýs­ingar um stöðu fjár­vörslu­reikn­inga í þeirra umsjá. Slíkt getur kostað lög­menn tíma­bundna nið­ur­fell­ingu mál­flutn­ings­rétt­inda og í alvar­leg­ustu til­fellum svipt­ingu lög­manns­rétt­inda.

Trassaskapur en ekki fjárdráttur
|Ingimar Ingason

Fjár­vörslu­reikng­inum er ætlað að varð­veita fjár­muni skjól­stæð­inga lög­manna og um þá gilda sér­stakar reglur. Inni­stæður á þessum reikn­ingum eru til að mynda ekki aðfar­ar­hæfar, þannig að ef lög­manns­stofa verður gjald­þrota er ekki hægt að ganga að þeim fjár­munum sem þar liggja.

Mark­miðið er að vernda fjár­muni skjól­stæð­inga og tryggja að þeir bland­ist ekki fjár­munum í rekstri lög­manns­stofa. Allur gangur er á því hversu miklir fjár­munir renna í gegnum þessa reikn­inga. Hjá sumum lög­mönnum er um umtals­verðar upp­hæðir að ræða á meðan aðrir nota þá lítið sem ekk­ert. Þessir reikn­ingar eru til dæmis not­aðir þegar skjól­stæð­ingar fá greiddar trygg­inga­bætur, við upp­gjör á dán­ar­búum eða við kaup eða yfir­töku á fyr­ir­tækjum eða fast­eignum.

Strangt eft­ir­lit er með þessum reikn­ingum og er það í höndum Lög­manna­fé­lags Íslands. Sjálf­stætt starf­andi lög­mönnum er skylt að senda félag­inu fjár­vörslu­yf­ir­lýs­ingu fyrir 1. októ­ber hvers árs auk þess sem Lög­manna­fé­lagið getur falið trún­að­ar­end­ur­skoð­anda félags­ins að kalla eftir upp­lýs­ingum frá fjár­mála­stofn­unum um með­höndlun reik­ing­anna.

Í nýjasta tölu­blaði Lög­manna­blaðs­ins er vakin athygli á því að tölu­verður mis­brestur er á því að lög­menn skili inn fjár­vörslu­yf­ir­lýs­ingum innan lög­bund­ins frests. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Lög­manna­fé­lagi Íslands var stjórn félags­ins til­neydd til að krefj­ast nið­ur­fell­ingar mál­flutn­ings­rétt­inda fimm lög­manna vegna van­rækslu þeirra á skilum yfir­lýs­ingar innan þeirra tíma­marka sem ákveðin eru í lögum um lög­menn.

Af þeim skil­uðu þó þrír lög­menn inn full­nægj­andi yfir­lýs­ingu undir rekstri mál­anna fyrir emb­ætti sýslu­manns­ins á Norð­ur­landi eystra og kom því aðeins til nið­ur­fell­ingar mál­flutn­ings­rétt­inda tveggja lög­manna.

14 kærur í fyrra

Í fram­haldi af þess­ari nið­ur­stöðu lagði stjórn Lög­manna­fé­lags­ins fram kærur á hendur 14 lög­mönnum til úrskurð­ar­nefndar lög­manna. Í mars síð­ast­liðnum kvað úrskurð­ar­nefndin upp úrskurði í þessum málum, þar sem þremur lög­mönnum var veitt áminn­ing vegna van­rækslu á skilum yfir­lýs­ingar og fyrir að bregð­ast ekki við erindi nefnd­ar­innar, auk þess sem fundið var að störfum 11 lög­manna fyrir að skila félag­inu ekki fjár­vörslu­yf­ir­lýs­ingu innan lög­boð­ins frests.

Eitt til­vik er metið sér­stak­lega alvar­legt en í úrskurð­ar­orði segir að við­kom­andi lög­maður hafi „sýnt af sér hegðun sem telja verður veru­lega ámæl­is­verða auk þess sem hún er með öllu ósam­boðin lög­manna­stétt­inni.“

Úrskurð­ar­nefnd­inni þóttu brot lög­manns­ins svo stór­felld að hún lét sér ekki nægja að veita áminn­ingu heldur mun hún taka til skoð­unar hvort lagt verði til við sýslu­mann að við­kom­andi lög­maður verði sviptur lög­manns­rétt­indum.

Ingimar Ingason, fram­kvæmda­stjóri Lög­manna­fé­lags­ins.

Ingimar Ingason, fram­kvæmda­stjóri Lög­manna­fé­lags­ins, segir að í flestum til­fellum sé um trassa­skap lög­manna að ræða. Árlega sé á þriðja tug mála vísað til emb­ættis sýslu­manns­ins á Norð­ur­landi eystra sem hefur með leyf­is­mál lög­manna að gera en fæstum þess­ara mála ljúki þó með nið­ur­fell­ingu mál­flutn­ings­rétt­inda, þótt slíkt ger­ist reglu­lega.

„Oftast eru gerðar úrbætur undir rekstri mál­anna. Gríð­ar­legt aðhald felst hins vegar í eft­ir­liti félags­ins gagn­vart lög­mönnum enda eru starfs­rétt­indi og eftir atvikum lífs­við­ur­væri þeirra undir.“

„Gríð­ar­legt aðhald felst hins vegar í eft­ir­liti félags­ins gagn­vart lög­mönnum enda eru starfs­rétt­indi og eftir atvikum lífs­við­ur­væri þeirra undir.“

Aðspurður hvort í alvar­leg­ustu til­vik­unum leiki grunur á að við­kom­andi lög­menn hafi ráð­stafað fjár­munum í eigin þágu segir Ingimar svo ekki vera. Rekur hann minni til þess að eitt slíkt mál hafi komið upp fyrir rúmum ára­tug. Var við­kom­andi lög­maður dæmdur fyrir fjár­drátt og hann sviptur lög­manns­rétt­indum sem hann hefur ekki fengið útgefin að nýju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð